Læknablaðið - 15.05.1988, Page 13
LÆKNABLAÐIÐ
177
LÆKNABLAÐIÐ
THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL
Læknafélag íslands og |L[R|
Læknafclag Reykjavíkur
74. ÁRG. MAÍ 1988
REYKINGAR OG ÆTTARSAGA
UM KRANSÆÐASJÚKDÓM
í athyglisverðri grein sem birtist í þessu hefti
Læknablaðsins um brátt hjartadrep á íslandi í
einstaklingum 40 ára og yngri benda höfundar á
að nær allir þessir einstaklingar hafi reykt tóbak.
Jafnframt höfðu yfir 50% þeirra ættarsögu um
kransæðasjúkdóm (1). Þetta er verulega hærra
hlutfall en í hóprannsókn Hjartaverndar þar sem
15-20% höfðu ættarsögu um kransæðastíflu (2).
Aðrir þekktir áhættuþættir reyndust ekki
marktækir í þessari rannsókn ef litið er á
meðaltalsgildi, en frá öðrum rannsóknum má
ætla að a.m.k. tveir af þessum 40 einstaklingum
sem hlutu hjartadrep hafi haft arfbundna
hækkun á kólesteróli í blóði
(hypercholesterolemia) (3). Rannsóknin
undirstrikar því afdrifaríkar afleiðingar reykinga,
einkanlega meðal þeirra sem hafa ættarsögu um
kransæðasjúkdóm. Þessar niðurstöður koma vel
heim við aðrar erlendar rannsóknir (4, 5). Þannig
fundu Hopkins og félagar í Utah í hópi
kransæðasjúklinga undir 45 ára aldri að 89%
þeirra höfðu reykt og 48% höfðu ættarsögu (5).
Önnur rannsókn frá Kaliforníu benti til að meira
en helmingur af ótímabærum dauðsföllum í
ættum með tíð kransæðatilfelli mætti rekja til
reykinga (5). Nýleg rannsókn meðal
hjúkrunarfræðinga í Boston undirstrikar að þessi
aukna áhætta samfara reykingum er engu minni
meðal kvenna (6). En afleiðingarnar með tilliti til
kransæðasjúkdóma virðast koma áratug seinna.
Þó er ljóst að eitthvað meira þarf að koma til en
reykingar þar sem meðal Japana sem reykja
mikið og hafa háa tíðni háþrýstings eru
kransæðasjúkdómar fátíðir. Því er líklegt að til
þess að skaðsemi reykinga á æðakerfið komi fram
þurfi vissa þéttni LDL-kólesteróls í blóði en flestir
Japanir eru vel undir þeim mörkum. Enn er margt
á huldu um hvernig reykingar hafa áhrif á tilurð
æðakölkunar og kransæðastíflu.
Umdeilt er hvort erfðir gegni sjálfstæðu hlutverki
utan þess að þær komi fram í háþrýstingi,
hækkaðri blóðfitu, sykursýki og fleiru (7, 8).
Ýmsar rannsóknir benda til að svo sé. Sumar
rannsóknir benda til að þessi erfðaþáttur komi
ekki fram nema viðkomandi reyki, því séu
reykingar miklum mun hættulegri meðal þeirra
sem hafa ættarsögu en annarra jafnvel þó að
aðrir áhættuþættir séu sambærilegir.
Rannsókn Óskars Þórðarsonar og Sturlu
Friðrikssonar (9) benti til að nánir ættingjar
einstaklinga með kransæðastiflu fyrir 65-70 ára
aldur hefðu nær þrefalda áhættu á því að fá
slíkan sjúkdóm samanborið við hina með enga
ættarsögu. Rannsókn Sigurðar Guðmundssonar
og samstarfsmanna þar sem mældir voru
áhættuþættir (aðrir en reykingar) meðal slíkra
ættingja kransæðasjúklinga leiddi ekki í ljós
verulegan mun á meðalgildum, t.d. blóðfitu,
blóðþrýstings og fleiru samanborið við heildina
(hóprannsókn Hjartaverndar). Niðurstöður
þeirrar rannsóknar bentu ekki til þess að vert væri
að gera allsherjar skimun á áhættuþáttum meðal
ættingja, fremur ætti að leita eftir þeim
áhættuþætti sem fundist hefði í viðkomandi
kransæðasjúklingi (3). Hins vegar má segja að
einföld blóðþrýstingsmæling og kólesterólmæling
sé ekki ofrausn á ættingjana en vert að hafa í
huga að þessir þættir, þó arfbundnir séu að vissu
marki, þurfa ekki að koma fram fyrr en um 40
ára aldur.
Við getum þó fullyrt, meðal annars frá
áðurnefndri rannsókn þeirra Axels Sigurðssonar,
Gests Þorgeirssonar og Guðmundar
Þorgeirssonar, að sterklega beri að vara við
reykingum meðal fólks með sögu um
kransæðasjúkdóm í nánum ættingja. Líklegt
verður að telja að yrði slíkum ráðleggingum fylgt
mætti koma í veg fyrir eða tefja fyrir
kansæðastíflu í ungu fólki að verulegu leyti. Sem
betur fer er kransæðastífla sjaldgæf undir fertugu
eða um 40 tilfelli á fimm ára tímabili en 8 þeirra
létust. Sá tollur er þó alltof hár ef unnt er að
koma í veg fyrir hann. Þessar tíðnitölur frá
íslandi virðast svipaðar og frá öðrum
Norðurlöndum. Heildardánartala af völdum
kransæðasjúkdóms í öllum aldurshópum er
einnig svipuð á íslandi og hinum Norðurlöndum
(10) þótt Finnar séu enn hæstir en hafi einir