Læknablaðið - 15.05.1988, Page 45
LÆKNABLAÐIÐ
207
Hrafnkell Helgason, Jón Steffensen og Tryggvi Ásmundsson. (Ljósm. G.Ö.A.)
úr eigu Jóns Sveinssonar, sem tók við
landlæknisembættinu af Bjarna. Það er enginn
hlutur til sem með öryggi getur talist frá tíð
Bjarna. En frá Jóni og Klog eru til munir.
Hvað er úr eigu Jóns?
Það eru trokarar til að stinga á sullum sem nóg
var af hér, tvær silfurpípur af mismunandi gerð í
leðurhylki, ansi myndarlegt áhald. Jón Sveinsson
fær þetta nýtt þegar hann tekur við. Bréfabækur
landlæknis auðvelda mjög að átta sig á þessum
tækjum. Þau eru borguð af ríkiskassanum og þá
er skrifað upp hverju þeir taka við. Þegar Jón
Sveinsson tekur við af Bjarna er allt skrifað upp
og hann sendir þá nokkur tæki til viðgerðar.
Sumt er samt erfitt að eiga við, sérstaklega meðan
ekki var komið í tísku að framleiðandi setti merki
sitt á vöruna. Fyrsta merka áhaldið er
fæðingartöng sem sjá má í bréfabókum að Klog
hefur fengið. Þarna eru líka silfurþvagleggir og
alls konar bíldar. Bíldar og trokarar, það er það
sem veður uppi.
Hvernig hafa þessir munir varðveist?
Þetta var opinber eign og næsti landlæknir fékk
þá mann fram af manni. Þegar Læknaskólinn var
stofnaður gengu tækin þangað og þaðan svo í
Læknadeild Háskólans þegar hann var stofnaður.
Þúfannst þetta þá í safni Háskólans?
Já. Ég rændi þvi hreinlega þar. Því var úthýst í
stríðinu þegar öllu var eiginlega úthýst nema
stúdentum. Annars vantar þessar opinberu
stofnanir áhalda- og tækjaskrár. Tækin koma og
fara og enginn veit hvaðan þau koma eða hvert
þau fara.
Það hefur munað litlu að þetta yrði keyrt á
haugana?
Já, ábyggilega. Ég hafði engar skyldur frekar en
aðrir í deildinni til þess að bjarga þessu.
Læknadeildin hafði aðstöðu í sjúkrahúsinu í
Þingholtsstræti fyrsta árið. Þá var að vísu búið að
leggja það niður sem sjúkrahús, en það var gert
1902 þegar Landakot kom. Gömlu spítalarnir
voru sjálfseignarstofnanir, settir á laggirnar fyrir
samskotafé. Þegar Landakotsspítali byrjaði var
spítalinn í Þingholtsstræti seldur bænum og húsið
um tíma gert að íbúð. Þegar Læknadeild flytur í
Alþingishúsið voru tækin flutt með og sett þar í
geymslu, þó ekki öll. Eitthvað af þeim hefur þá
farið á tvístring. Lyfjasýnishorn sem Sæmundur
Bjarnhéðinsson notaði við kennslu voru líka flutt
í Alþingishúsið. Þegar Háskólabyggingin kemst í
gagnið voru þessi tæki flutt úr geymslum í
Alþingishúsinu í milliherbergi sem var næst við
stofu 11 á annarri hæð í Háskólabyggingunni,