Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.08.1994, Side 8

Læknablaðið - 15.08.1994, Side 8
220 LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80 slími í lungum sem leiðir til endurtekinna sýk- inga og er dánarorsök flestra þessara sjúklinga á unga aldri. Þrátt fyrir bætta meðferð á und- anförnum árum eru lífshorfur einstaklinga með cystic fibrosis aðeins um 30 ár. Genagallar sem valda cystic fibrosis voru nýlega uppgötvaðir og genið sjálft einangrað á langa armi litnings númer 7 (4). Gen þetta er skráir 1480 amínósýrur sem mynda 168 kd pró- tín (cystic fibrosis transmembrane cond- uctance regulator). Hlutverk þess er talið tengjast stjórnun á flæði klóríðjóna í slím- himnufrumum (5). Yfir 50 stökkbreytingar sem geta valdið cystic fibrosis, eru nú þekktar í þessu geni (1). Algengust er stökkbreyting sem kölluð er AF508. Hún veldur brottfalli þriggja basa-para sem skrá amínósýruna phenylalan- ine í stöðu 508 í prótíninu (6). Hér er í fyrsta sinn lýst íslendingum með þessa stökkbreyt- ingu. Aðferðir og efniviður Stökkbreytingar voru kannaðar hjá þremur sjúklingum sem voru grunaðir um að hafa cyst- ic fibrosis. Fyrstu tveir sjúklingarnir eru sex mánaða gamlir tvíburar. Mánaðargamlir voru þeir báðir lagðir inn til rannsóknar vegna end- urtekinna kröftugra uppkasta og gengust undir uppskurð vegna þrengsla í neðra magaopi. Lengd og þyngd beggja var í meðallagi við fæðingu og fram að uppskurði. Stuttu seinna fór að bera á endurteknum öndunarfæraein- kennum: Þrálátum hósta, kvefi og eyrnabólg- um. Annar tvíburinn fékk lungnabólgu sem meðhöndluð var með sýklalyfjum. Jafnframt fór að bera á óeðlilegum hægðum og minnkuð- um vaxtarhraða. Við sex mánaða aldur voru þeir lagðir inn á Barnaspítala Hringsins til frekari rannsóknar. Lengd beggja tvíburanna var þá innan við 10. hundraðshlutamark lengd- ardreifingar og þyngd innan við þriðja hundr- aðshlutamark þyngdardreifingar í þessum ald- urshópi. Endurtekin svitapróf sýndu natríum- gildi um og yfir 90 mmól/1 hjá báðum börnum (viðmiðunargildi fyrir sex mánaða börn er 30 mmól/1). Fita í saur mældist hjá báðum tvíbur- unt (4+) og engin trypsínvirkni fannst í maga- skoli. Aðrar rannsóknir sýndu ekkert mark- vert. Þriðji sjúklingurinn er tveggja og hálfs árs gamalt barn. Við 10 mánaða aldur var það rannsakað vegna vanþrifa. Barnið hafði væg öndunarfæraeinkenni og fituríkar hægðir. Rannsóknir sýndu litla trypsín- og chymotryps- ínvirkni sem benti til vanstarfsemi á briskirtli. Endurtekin svitapróf sýndu natríumgildi á bil- inu 68-78 mmól/1. Vöxtur sjúklings hefur síðan verið í meðallagi. Af og til síðan hafa greinst öndunarfærasýkingar (klasakokkasýkingar (Staphylococcae-)). Kjarnsýra var einangruð úr hvítum blóð- kornum sjúklinganna þriggja og nánustu ætt- ingja þeirra með stöðluðum aðferðum og fjöl- földuð með keðjumögnun (polymerase chain reaction) (mynd 1) með 0,5 U Taq polymerase í 50 pl lausn sem innihélt 50 mM KCl, 2,5 mM MgCl, 10 mM Tris-Cl (pH 8,3 við 25°C), og 200 pM dNTP. Basaröð þreifara var 5’-GTTTTCCTGGATTATGCCTGGCAC og 5’-GTTGGCATGCTTTGATGACGCTTC (8). Keðjumögnun fór fram við upphafshitastig 94°C í 2,5 mín, 58°C í 0,5 mín, 72°C í 0,5 mín. Síðan tók við 91°C í 0,5 mín og 35 endurtekin skref við 58°C og 72°C í 0,5 mín hvert skref. Að lokum var sýnið haft í 10 mín við 72°C og kælt að 4°C. Afurð keðjumögnunar var rafdregin (350 V) í fjórar klukkustundir í 10% acrylami- de geli (19:1 acrylamide: bis-acrylamide, 10% ammonium persulfat og temed), sem litað var með ethidium bromide. Afurð sem inniheldur stökkbreytinguna er 94 basapör (bp) að stærð samanborið við 97 bp við eðlilegar aðstæður (8). Niðurstöður Keðjumögnun á kjarnsýrum frá sjúklingun- um þremur og ættingjum þeirra leiddi í ljós að sjúklingarnir höfðu eingöngu 94 bp afurð. Þeir eru því arfhreinir (homozygous) og gen þeirra hafa stökkbreytinguna (AF508) á báðum litn- ingum (mynd 2). Foreldrar þeirra höfðu bæði 94 og 97 bp afurð og eru arfblendnir (heter- ozygous), það er hafa eðlilegt afbrigði gensins á öðrum litningi númer 7 og stökkbreytinguna á hinum. Umræða Cystic fibrosis hefur löngum verið talinn sjaldgæfur sjúkdómur á Islandi en engar opin- berar tölur eru til um arfberatíðni sjúkdóms- ins. Fyrirspurnir okkar benda til að algengi cystic fibrosis hérlendis sé svipað og í Svíþjóð og að tveir til þrír af hverjum 100 íslendingum séu einkennalausir arfberar. Hér er í fyrsta sinn lýst stökkbreytingum í erfðaefni íslenskra einstaklinga sem hafa sjúkdómseinkenni cystic

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.