Læknablaðið - 15.08.1994, Blaðsíða 14
226
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
Niðurstaðan er sú að vel hafi tekist til með
fyrstu gallblöðrutökurnar um kviðsjá á Borgar-
spítala. Legutími er margfalt styttri en við
opna aðgerð og sjúklingarnir komast miklu
fyrr til vinnu eða fyrri færni. Aðgerðartími er
lengri í byrjun en samkvæmt reynslu okkar og
annarra styttist hann mjög með aukinni
reynslu. Heildarsparnaður er mikill.
Inngangur
Kviðspeglun hefur löngum verið notuð í
kvensjúkdómalækningum bæði í greiningar- og
meðferðarskyni. Það var ekki fyrr en árið 1987
er Frakkinn Philippe Mouret tók fyrstu gall-
blöðruna um kviðsjá (1) að verulegur áhugi á
kviðsjáraðgerðum vaknaði hjá almennum
skurðlæknum enda höfðu kvikmyndavélin og
myndbandstæknin þá stóraukið möguleikana á
meiriháttar aðgerðum um sjá. Gallblöðrutök-
ur um kviðsjá hafa á örfáum árum unnið sér
sess innan skurðlækninga. Dubois og sam-
starfsmenn hans í París (2) lýstu röð slíkra
aðgerða fljótlega svo og Reddick og Olsen (3)
vestanhafs árið 1989. Síðan hefur aðferð þessi
breiðst mjög hratt út. Sem dæmi um það má
nefna að 1992 birtist yfirlit (4) þar sem farið var
yfir rúmlega 12.000 gallblöðrutökur um kviðsjá
sem skýrt hafði verið frá í 23 tímaritsgreinum á
árunum 1988-1991. í áðurnefndri grein og fleir-
um (5-7) var sýnt fram á að skurðaðferð þessi
er örugg fyrir sjúklinginn. Hún styttir legutíma
eftir aðgerð verulega, svo og þann tíma sem
tekur að ná aftur fyrri færni, hvort heldur mið-
að er við hefðbundna gallblöðrutöku eða gall-
blöðrutöku um minnsta skurð (minicholecyst-
ectomy) (8).
Hér á landi voru gallblöðrur fyrst teknar um
kviðsjá á Landakotsspítala í september 1991
(10). I nóvember sama ár hófust þessar aðgerð-
ir svo á Borgarspítala og Landspítala að und-
angengnu námskeiði sem skoskur læknir J.
Saunders að nafni stóð fyrir og voru fyrstu
aðgerðirnar framkvæmdar undir umsjá hans.
Síðan hafa þessar aðgerðir einnig verið teknar
upp á sjúkrahúsunum á Akureyri og Akranesi.
Tilgangur þessarar rannsóknar var að at-
huga hvernig fyrstu 100 sjúklingunum sem
gengust undir gallblöðrutöku um kviðsjá á
Borgarspítalanum reiddi af. Jafnframt var
kannað hvaða áhrif hin nýja tækni hefði á að-
gerðartíma, legutíma, vinnutap og kostnað.
Efniviður og aðferðir
Farið var yfir sjúkraskrár, aðgerðarlýsingar
25%
20-
| | I I I I |
<20 21-30 31-40 41-50 51-60 61-70 71-80 =s81
ára ára ára ára ára ára ára ára
Mynd 1. Aldursdreifing fyrstu 100 sjúklinganna sem fóru í
gallblöðrutöku um kviðsjá.
60%
Mynd 2. Fjöldi legudaga eftir aðgerð. Fyrstu 90 aðgerðirnar
setn tókst að Ijúka utn kviðsjá.
50%
Mynd 3. Lengd kviðsjáraðgerða í mínútum. Fyrstu 90 að-
gerðirnar setn tókst að Ijúka utn kviðsjá.