Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.08.1994, Side 38

Læknablaðið - 15.08.1994, Side 38
244 LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80 Ágrip erinda á vísindaþingi Augnlæknafélags íslands 18. mars 1994 1. Sjúkdómsgangur á disklaga öri í aldursrýrnun í miðgróf sjónu Harpa Hauksdóttir, Ingimundur Gíslason, Einar Stefánsson. Augndeild Landakotsspítala. Sett var fram tilgáta um að örmyndun í disklaga (disciform reaction) aldursrýrnun í miðgróf sjónu (age related macular degeneration) væri ekki út- brunnin skemmd heldur héldi áfram að stækka á löngu tímabili. Ákveðið var að gera frumkönnum á því hvort hægt væri að mæla stærð skemmdarinnar á löngu tímabili. Gerð var mæling á litmyndum af augnbotnum sjö sjúklinga með disklaga ör á mismunandi tíma. Mæl- ing var gerð í tölvu, mynd varpað á tölvuskerm og útlínur á skemmd dregnar og flatarmál skemmdar- innar mælt. f öllum tiifellum var upphafsstærð skemmdarinn- ar minni en lokastærðin. Stærð meinsemdar í hverju auga var fylgt eftir að meðaltali í 55,5 mánuði. Var lóðrétt þvermál sjóntaugaróss (DD) notað til að staðla mælingu á flatarmáli skemmdarinnar. í byrj- un voru örin 2,71 DD2 +1,78 DD2 og stækkuðu í 4,53 DD2+1.76 DD2(meðaltal+staðalfrávik). f öll- um tilfellum var upphafsstærð minni en lokastærðin. Ör í disklaga aldursrýrnun í miðgróf sjónu virðist fara stækkandi á löngu tímabili þó að það gerist ekki jafnt og þétt heldur í stökkum. 2. Augnskimun í sykursýki Jóhannes Kári Kristinsson1, Jóhann R. Guðmundsson1, Einar Stefánsson1, Friðbert Jónasson1, Ingimundur Gíslason1, Árni V. Þórsson2. Augndeild Landakotsspítala1, Háskóli íslands, barnadeild Landakotsspítala2. Hafið var reglubundið eftirlit með augum sykur- sjúkra á augndeild Landakotsspítala árið 1980. Sjúklingar með sykursýki hafa verið skoðaðir a.m.k. árlega. Það er lág tíðni af blindu hjá sykursjúkum á íslandi miðað við önnur lönd, eða 1.0% hjá týpu 1 sykursjúkum og 1.6% hjá týpu 2 sykursjúkum. Tíðni augnbotnabreytinga er hins vegar svipuð og í öðrum könnunum. Eftirlit af þessu tagi er mann- og fjár- frekt og þarf að leita leiða til að gera það eins hag- kvæmt og unnt er án þess að víkja frá kröfum um öryggi. Hér verður leitað svara við því hvort sleppa megi því að skoða augu sykursjúkra bama með tilliti til sykursýkisskemmda og þvf hvort nægi að skoða þá sem ekki eru með augnbotnabreytingar annað hvert ár í stað árlega eins og nú er gert EFNIVIÐUR, AÐFERÐIR OG NIÐURSTÖÐ- UR: Þegar könnunin var gerð voru 46 börn í landinu undir 15 ára aldri skráð með greininguna sykursýki. Jafnframt var farið í gegnum gögn sykursjúkra á aldrinum 12 til 14 ára sem vom skoðuð á augndeild- inni frá 1980 til 1993, 44 talsins. Aðeins eitt barn var með augnbotnabreytingar, 14 ára gömul stúlka. Ekkert barn undir 15 ára aldri í dag er með augn- botnabreytingar af völdum sykursýki. Farið var í gegnum gögn þeirra sem voru skoðaðir frá júlí 1989 til júní 1990 og greindust ekki með neinar augnbotnabreytingar. Þessir sjúklingar komu á hverju ári og hafði því hver komið í skoðun tvisvar tveimur árum síðar, í júlí 1992. Tveggja ára nýgengi frá engum augnbotnabreytingar yfir í bakgrunns- breytingar og preproliferatívar breytingar í 87 sjúk- lingum með týpu 1 sykursýki var 21% og 2% en 18% og 1% í 119 sjúklingum með týpu 2 sykursýki. UMRÆÐA: Þegar leitað er í gegnum greinafjöld er hvergi greint frá alvarlegri retinopathíu í börnum undir 12 ára aldri. Þar er í mesta lagi um nokkur microaneurysma að ræða og enginn hefur fengið meðferð undir þessum aldri. Palmberg (1981) og Klein (1989) greina frá mikilli aukningu á nýgengi augnbotnabreytinga milli 13 og 15 ára aldurs. Murp- hy (1987) og Frost-Larsen (1980) finna marktækan mun á uppkomu sjónhimnuskemmda vegna sykur- sýki meðal barna fyrir og eftir kynþroska þegar búið var að leiðrétta fyrir tímalengd með sjúkdóminn. I niðurstöðum McNally (1993) hefur árafjöldi fyrir kynþroska sitt að segja við uppkomu sykursýki. A.m.k. 2 einstaklingar hafa fengið nýæðamyndun í sjónhimnu fyrir kynþroska (Lund-Andersen 1989, Kimmel 1985). I evrópsku og bandarísku skimunarleiðbeiningum fyrir augnsjúkdóma í sykursýki er ráðlagt að hefja ekki skimun fyrr en við kynþroska. Þessar leiðbein- ingar virðast óljósar. Aldur við upphaf kynþroska er afar misjafn og ákvörðun á kynþroska krefst læknis-

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.