Læknablaðið - 15.08.1994, Síða 43
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
249
11. Acetazoiamide og
cyclodextrinmælingar í fólki
Jóhannes Kári Kristinsson1, Einar Stefánsson1,
Guðrún Guðmundsdóttir1, Þórður Sverrisson1,
Þorsteinn Loftsson2, Sigríður Þórisdóttir1, Hafrún
Friðriksdóttir2. Augndeild Landakotsspítala1,
lyfjafræðideild2, Háskóli íslands.
Acetazolamide var fyrst samtengt árið 1954. Meg-
innotkun þess hefur verið við meðhöndlun á gláku,
en einnig hefur lyfið verið notað við bjúg og einstöku
sinnum við „petit mal“ flogaveiki. Draumurinn um
að geta búið til karbónanhydrasahemjara sem
dreypa mætti í augu er áratuga gamall. Að baki
liggur sú hugsun að geta fengið lækkaðan augnþrýst-
ing án aukaverkana. Acetazolamide lækkaði ekki
augnþrýsting á þann hátt. (Foss 1955, Green og
Leopold 1955). Hægt var að lækka augnþrýsting
með acetazolamide þegar snertitími lyfs við horn-
himnu var lengdur, þ.e. með því að væta snertilinsur
upp úr 2.5% og 5% acetazolamide lausn (Friedman
1985) og koma lyfinu yfir á gelform (Tous, Nasser
1991). Gel og kontaktlinsur eru þó ekki líklegar til
vinsælda hjá glákusjúklingum og hætta á að compli-
ance yrði lélegur. A rannsóknarstofu í lyfjafræði
lyfsala við Háskóla íslands hefur verið þróað aceta-
zolamide blandað cyclodextríni (2-hydroxypropyl-
6-cyclodextrin) í styrkleikanum 1% með sérstökum
aðferðum sem eykur aðgengi (bioavailability) lyfs-
ins við hornhimnu og þar með það magn af lyfinu
sem kemst inn í augað (Loftsson 1992). Lyfið lækk-
aði augnþrýsting í kanínum. Mesta lækkunin varð
2.5 klst eftir augndropagjöfina, eða 2.7 torr. Til
samanburðar má geta þess að Timolol lækkaði
þrýstinginn um 5.6 torr 1.5 stundu eftir gjöf drop-
anna og 0,3% ethoxyzolamide í cyclodextrinlausn
lækkaði þrýstinginn um 2.6 torr.
EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR: Alls tóku 9
manns með glákugrun (ocular hypertension) þátt í
langtímarannsókn okkar á þrýstingslækkandi verk-
un acetazolamide 1%, 6 karlar og 3 konur. Meðal-
aldur var 64 ár. Augnþrýstingur varð að vera 21 torr
eða meira á öðru auganu og dreypt var í það augað
sem var með hærri meðalþrýsting fyrsta daginn.
Fólkið var ekki á neinni augnmeðferð, ekki á 6-
blokkum, hafði ekki gengist undir aðgerð á auganu
og var ekki með nein merki um glákuskemmdir við
augnbotnaskoðun eða sjónsviðsdefekta skv. mæl-
ingu. Mælingardagar voru 5, dagur 0, 3, 7,14 og 28
og var mælt 3x hvem dag, kl. 9,12 og 3. Dagur 0 var
grunnlína tekin í þrýstingi og eftir síðustu skoðun
þann dag dreypti viðkomandi í fyrsta sinn í augað.
Síðan var mælt á degi 3 og svo koll af kolli. Fólkið
dreypti þrisvar á dag í augað og þurfti að dreypa
tveimur klukkutímum fyrir fyrstu skoðun á skoðun-
ardögum, t.d. kl. 7 ef það átti að mæta í fyrstu
skoðun kl. 9. Jafnhliða þrýstingsmælingu var fram-
hluti augna skoðaður, sjón mæld og einstaklingamir
spurðir um aukaverkanir alla skoðunardaga. Augn-
botnar voru skoðaðir ódílaterað við upphaf og lok
meðferðar.
NIÐURSTÖÐUR: Augnþrýstingur lækkaði
marktækt miðað við grunnlínu alla skoðunardagana
(p<0.0001). Mest var lækkunin á degi 14, eða 14.6%
meðaltalslækkun yfir þessar þrjár mælingar. Þrýst-
ingur í augum sem ekki var dreypt í lækkaði einnig
marktækt, en ekki eins mikið. Mest var lækkunin
eftir 2 tíma, síðan eftir 8 tíma en minnst lækkun eftir
5 tíma. Sjón var óbreytt alla dagana, staðbundnar
aukaverkanir voru engar og ekki að sjá neina breyt-
ingu við skoðun á ytra auga eða í augnbotni. Einn
einstaklingur kvartaði um sjónstillingarvandamál
eftir 5 klst. skoðun á 7. skoðunardegi. Hann fann
jafnframt fyrir sérkennilegu málmbragði af og til.
UMRÆÐA: Augnþrýstingur lækkar marktækt
með þessu lyfi. Lækkunin er heldur minni en fæst
með acetazolamide í töflu- eða sprautuformi og
þeim staðbundnu lyfjum sem mest eru notuð við
lækkun á augnþrýstingi, s.s. timolol og pilocarpine.
Lækkunin er jafnframt nokkuð minni en fæst með
nýja karbónanhydrasahemjaranum dorzolamide
(Lippa 1993).
Lyfið þolist mjög vel og aukaáhrif lítil sem engin.
Þekktar eru bragðskynsbreytingar við notkun á
acetazolamide og lýst hefur verið tímabundinni nær-
sýni vegna acetazolamide (Bovino og Marcus 1974).
Ekki er enn hægt að segja með vissu hvort þetta
lyf eigi eftir að skipa sess meðal augnlyfja við gláku.
Þörf fyrir ný lyf er sífellt að aukast, ekki síst vegna
þess að áhrif þeirra lyfja sem mest eru notuð í gláku,
s.s. timolol minnka með tímanum. Hugsanlega
mætti nota lyfið með öðrum glákulyfjum og einnig
mætti hugsa sér að innlima aðra karbónanhydrasa-
hemjara í cyclodextrinsameindina.
12. Fertugur fyrirburi.
Sjúkratilfelli
Margrét Loftsdóttir, Einar Stefánsson.
Augndeild Landakotsspítala, Reykjavík
Fjörutíu og tveggja ára karlmaður var sendur á
augndeild Landakotsspítala vegna yfirborðsáverka
á augum af völdum glerbrota sem hann fékk í þau.
Neitar sögu um fyrri augnvandamál. Við skoðun var
sjón 6/12 á báðum augum með nærsýnisglerjum (-1,0
og -0,75). Yfirborðsáverkar voru á slímhimnum
(conjunctiva) augna og byrjandi drermyndun á
augasteinum. Við skoðun í augnbotna var sjón-
himna æðarýr og gráleit utanvert (perifert). Æðaór-
egla var til staðar.
í báðum augnbotnum sáust göt utarlega á sjón-
himnum, eitt í hægra auga en fjögur í því vinstra.
Götin voru öll kringlótt, með litarefnissöfnun á
köntum og virtust gömul. Einnig sást í vinstra auga