Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.08.1994, Síða 55

Læknablaðið - 15.08.1994, Síða 55
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80 257 íðorðasafn lækna 56 í síðasta pistli var fjallað um heitin skor og kóða. Stungið var upp á að skor yrði notað um þær niðurstöður sérstakrar talning- ar eða stigagjafar, sem táknaðar eru með enska heitinu score, og að heitið kóði skyldi notað um tákn og táknakerfi (code) til skráningar sjúkdómsgreininga. Skor Tekið var dæmi um nýyrðið áverkaskor sem notað skyldi um niðurstöður mats á áverkum slasaðra manna (injuries severi- ty score). Heitið score kemur einnig fyrir í fæðingarfræði og nýburalækningum. Vissir þættir í líkamsstarfsemi nýbura á fyrstu mínútum lífs þeirra, hjartsláttur, öndun, vöðva- spenna, svörun við áreiti og húðlitur, eru metnir til stiga- gjafar eftir aðferð sem kennd er við svæfingalækninn Virginíu Apgar (1909-1974). Töluleg nið- urstaða úr slíkri stigagjöf er nefnd Apgar-score. Gildi eru á bilinu 0-10 og gefa hærri tölurn- ar til kynna meiri lífsþrótt. Á íslensku má tala um Apgar- skor, nýburaskor eða lífsþrótt- arskor. Styttri heiti væru þó vel þegin. í tölfræði koma fyrir heitin raw score, sem nefna má hráskor, og standard score, sem nefna má staðalskor. Rétt er að ítreka að tillaga undirritaðs ger- ir ráð fyrir að skor sé hér haft í hvorugkyni, það skorið. Kóði Af erlendum heitum, sem not- uð eru um sjúkdómakóða, má nefna disease code, morbidity code, morphology code og mor- tality code, sem í beinni þýð- ingu verða sjúkdóms- eða sjúk- dómakóði, sjúkleikakóði, formgerðar- eða meingerðar- kóði og loks dánar- eða dánar- meinakóði. í erfðafræði ertalað um genetic code og er þá verið að tákna þær upplýsingar sem kjarnsýra frumunnar ber, ýmist það táknkerfi þriggja núkleo- tíða, sem ræður amínósýrusam- setningu prótína, eða erfðaupp- lýsingarnar í heild. í íðorða- safni lækna er genetic code þýddur með heitinu erfðalykill og skal síst amast við því. Erfða- kóði eða genakóði virðast í fljótu bragði hafa fátt til síns ágætis. Gráða Nafnorðið grade og sögnina to grade er ekki að finna í íð- orðasafni lækna. Engu að síður eru þetta mikilvæg hugtök í krabbameinsfræðum. Við vefjarannsókn á krabbameinum er það oft regla að meta æxlis- frumurnar með tilliti til útlits þeirra og líkingar við eðlilegar frumur af sama vefjauppruna. Slík aðgerð nefnist á ensku grading og er hverju æxli þá skipað á eitt af þremur til fjór- um stigum mismunandi útlits, þ.e. grade I, II, III eða IV. Það virðist liggja beint við að nefna þetta gráður eitt til fjögur og aðgerðina gráðun. Enska heitið grade er talið komið úr latínu þar sem gradus merkir þrep eða skref. Nafnorðið grade er með- al annars notað um tilgreind stig í ferli breytinga og stig eða stöðu á ákveðnum mælikvarða. Þannig ber einnig að skilja notk- un heitisins við mat á útliti krabbameinsfrumna. Gráðurn- ar fjórar tákna mismunandi stig útlitsbreytinga hjá illkynja æxl- isfrumum, þannig að á hæstu gráðu eru krabbmein með mjög afbrigðilegum og óþroskuðum frumum, sem að öðru jöfnu hafa hvað verstar horfur. Krabbameinsmeðferð tekur oft mið af slíkri gráðun. Stigun I krabbameinsfræðum koma einnig fyrir hugtökin stage og staging. Iðorðasafn lækna þýðir nafnorðið stage með íslensku orðunum þrep og stig. í öðrum orðabókum má finna enn fleiri þýðingar; svið, leiksvið, pall, vinnupall, viðkomustað o.fl. Það virðist hins vegar komin á það nokkur hefð að tala um stig og stigun krabbameina. Stig krabbameinsvaxtar miðast við útbreiðslu meinsins frá upp- runastað sínum, til dæmis þann- ig að fyrsta stigs æxli sé bundið við upprunavef, s.s. slímhúð, að annars stigs æxli sé vaxið djúpt inn í líffærið, þriðja stigs æxli sé vaxið út úr líffærinu og að fjórða stigs æxli hafi sent frá sér mein- vörp. Nokkur mismunandi stigakerfi eru þó í notkun og stigin því táknuð með kóða á ýmsa vegu, til dæmis: A-D, 0- IV eða T0-T4,N0-3,M0-2, og verða þau kerfi ekki rakin hér. Stigun er hins vegar sú aðgerð að kanna og tákna útbreiðslu ill- kynja æxlis með kóða sam- kvæmt tilgreindu kerfi. Nauðsynlegt er að ofangreind hugtök: skor, gráða, gráðun, stig og stigun verði tekin inn í Iðorðasafnið. Jóhann Heiðar Jóhannsson

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.