Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.08.1994, Síða 56

Læknablaðið - 15.08.1994, Síða 56
Tryggingafréttir Sex mánaða biðtími eftir sjúkratryggingu Ný lög um almannatryggingar, sem gengu í gildi um áramótin, fela í sér ákvæði um biðtíma eftir sjúkratryggingu hérlendis. Flytji fólk hingað frá landi utan EES, þarf það að bíða í sex mánuði eftir að fá sjúkra- tryggingu hér. Læknar og forráðamenn sjúkrahúsa ættu því að kanna hvort sjúklingur sé sjúkra- tryggður, áður en hann er látinn greiða fyrir þjónustuna. Sé sjúklingur ekki tryggður, greiðir Tryggingastofnun ekki kostnaðarhlut sjúkra- trygginga. í skyndilegum sjúkdómstilfellum er stofnuninni þó heimilt að greiða nauðsyn- lega læknisþjónustu. Atvinnulausir greiða lægri gjöld fyrir læknisþjónustu Atvinnulausir eiga nú rétt á heil- brigðisþjónustú á sama verði og lífeyrisþegar. Atvinnuleysistryggingasjóður gefur út skírteini fyrir þá, sem hafa verið atvinnulausir í sex mánuði eða lengur. Gegn framvísun skírteinis greiðir atvinnu- laus einstaklingur lægra gjald fyrir komu til læknis, læknisvitjun, rannsóknir, krabba- meinsleit og komu á bráðamóttöku. Skírteinið veitir ekki afslátt af lyfjum. Umsóknarfrestur vegna endurgreiðslu kostnaðar Umsóknarfrestur vegna endurgreiðslu á læknis- og lyfjakostnaði sjúklinga á tímabilinu 1. janúar til 1. júlí 1994 rennur út 1. september. Sjúklingum, sem hafa orðið fyrir miklum útgjöldum vegna lyfja og læknisþjónustu á þessu tímabili, skal bent á að sækja um endur- greiðslu hluta þess kostnaðar til Trygginga- stofnunar á sérstöku eyðublaði. Útskrift frá lyfjaverslun og kvittanir verða að fylgja umsókn. Við mat á rétti til endur- greiðslu er tekið tillit til tekna einstaklings eða hjóna, auk heildarútgjalda vegna læknishjálpar og lyfja. Vissir þú... ... að öldrunarstofnunum ber að greiða að fullu öll hjálpartæki vistmanna, nema gleraugu, heyrnartæki og hjólastóla? ... að gagnlegar leiðbeiningar um örorkumöt vegna lífeyrissjóða eru á bakhlið vottorðseyðublaða lífeyris- sjóðanna vegna umsóknar um örorkulífeyri? ... að Tryggingastofnun greiðir að jafnaði ekki kostnað vegna forvarna og hóprannsókna? TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.