Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.08.1994, Page 57

Læknablaðið - 15.08.1994, Page 57
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80 259 Um bréf „yf!rlæknaráðs“ heilsugæslunnar til frambjóðenda í Reykjavík Miðvikudaginn 15. júní sl. barst undirrituðum bréf „yfir- læknaráðs" heilsugæslunnar í Reykjavík til frambjóðenda í nýafstöðum borgarstjórnar- kosningum. í bréfi þessu, sem er dagsett 1. júní sl., er frambjóðendum til borgarstjórnar óskað góðs gengis í „kosningunum nú í maí“! Síðar í bréfinu segir: „ Við val fulltrúa þarf einnig að gœta þess að ekki veljist í stjórnirnar einstaklingar í hagsmunagœslu fyrir aðra starfsemi en heilsu- gœsluna eða sem eiga í sam- keppni við starfsemi Heilsugœsl- unnar, þvíþar sem sú staða hef- ur komið upp, hefur hún valdið ýmsum erfiðleikum í starfi við- komandi stjórna" Þrír læknar eru kjörnir full- trúar Reykvíkinga í stjórnun heilsugæsluumdæma íborginni. Undriritaður á sæti í stjórn heilsugæsluumdæmis Vestur- bæjar. Ingólfur Sveinsson lækn- ir er í stjórn heilsugæsluum- dæmis Austurbæjar nyrðra (Ár- bæjar-, Seláss- og Grafarvogs- hverfis). Þórarinn Sveinsson læknir er í stjórn heilsugæslu- umdæmis Austurbæjar syðra (Breiðholtshverfanna). Á stjórnarfundum í heilsu- gæsluumdæmunum nú í lok júnímánaðar höfum við Ingólf- ur og Þórarinn beðið viðkom- andi heilsugæslulækna um skýr- ingar á fullyrðingum þeirra um erfiðleika í starfi viðkomandi stjórna, en fátt hefur verið um svör. Á þessum fundum hafa stjórnir heilsugæsluumdæm- anna og fráfarandi forstjóri heilsugæslunnar í Reykjavík vísað fullyrðingum „yfirlækna- ráðsins" um samstarfserfiðleika á bug. Fram hefur komið, að „yfirlæknaráðið" á sér enga stjórnskipulega stoð og er aðeins heimatilbúin nafngift viðkomandi heilsugæslulækna! Þann 20. júní sl. sendi undir- ritaður yfirlæknum heilsugæslu- stöðva í Reykjavík bréf, þar sem óskað er skýringar á niður- lagsorðum áðurnefnds bréfs þeirra. Gera verður þá kröfu til þeirra að þeir geri grein fyrir því, við hvaða erfiðleika í starfi viðkomandi stjórna sé átt og hvaða einstaklingar séu valdir að þessum erfiðleikum. Að öðr- um kosti dragi þeir fullyrðingar sínar um samstarfserfiðleika til baka og biðji kjörna fulltrúa Reykvíkinga í stjómun heilsu- gæsluumdæmanna afsökunar á ummælum sínum. Ólafur F. Magnússon Bréf yfirlæknaráðs dagsett í Reykjavík 1. júní 1994 er svohljóðandi: „Frambjóðendur til Borgarstjórnar í Reykjavík 1994. Yfirlœknaráð Heilsugœslunnar í Reykjavík óskar ykkur góðs gengis í kosningunum nú í maí. Ráðið vill minna á, að eftir kosningar, þegar borgarstjórn hefur verið skipuð, þurfið þið að tilnefna fulltrúa ykkar í stjórnir Heilsugœslunnar í Reykjavík. Ráðið vill því benda á, að œskilegt er, að þið markið þá stefnu, að íhverja svæðisstjórn séu tilnefndir fyrst og fremst íbúar af viðkomandi svœði, sbr. stjórnir heilusgœslustöðva utan Reykjavíkur, og sóknarnefndir o.fl., enda eðlilegra, að þeir stjórni, á hverjum stað, sem þar eiga hagsmuna að gœta. Um er að rœða 4 svœðis- stjórnir og sljórn Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur. Skv. lögum skipa stjórnirnar 5 menn, 3 fulltrúar sveitarfélagsins, 1 fulltrúi starfsmanna og formaður skipaður af ráðherra ogskal formaður vera búsettur á svœðinu. Við val fulltrúa þarf einnig að gœta þess að ekki veljist í stjórnirnar einstaklingar í hagsmunagœslu fyrir aðra starfsemi en heilsugœsluna eða sem eiga ísamkeppni við starfsemi Heilsugæslunnar, þvt'þarsem sú staða hefurkomið upp, hefurhún valdiðýmsum erfiðleikum ístarfi viðkomandi stjórna. Virðingarfyllst, Atli Árnason, yfirlæknir Hgst. Grafarvogi, Austurbæjarumdœmi nyrðra. Haraldur Tómasson, yfirlæknir Hgst. Árbæ, Austurbæjarumdœmi nyrðra. PórðurG. Ólafsson, yfirlæknir Hgst. Efra-Breiðholti, Austurb.umdæmi syðra. Samúel J. Samúelsson, yfirlæknir Hgst. Mjódd, Austurbæjarumdæmi syðra. Gunnar H. Guðmundsson, yfirlæknir Hgst. í Fossvogi, Miðbæjarum- dæmi. Halldór Jónsson, yfirlæknir Hgst. Lágmúla, Miðbœjarumdæmi. Stefán Finnsson, yfirlœknir Hgst. Hlíðasvœðis, Vesturbœjarumdœmi. Margrét Georgsdóttir, yfirlæknir Hgst. Miðbæjar, Vesturbæjarumdœmi. Guðfinnur P. Sigurfinnsson, yfirlæknir Hgst. Seltjarnarnesi, Seltjarnar- nesi. “

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.