Læknablaðið - 15.06.1995, Page 26
472
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
Mynd 1. Tölvusneiðmynd af kviði. Stórt belgmein með milliveggjum og virðist samsett úr minni
belgjum. Útlit er talið geta samrýmst belgœxli og hugsanlega af smábelgjagerð.
fjarlægður ásamt eggjastokki (góðkynja fyrir-
ferð). Ágætlega gekk eftir aðgerð. Magaspegl-
un þá sýndi áfram vélinda- og magabólgu og á
tölvusneiðmynd af kviði sást lítil fyrirferð við
skurðbrún brissins. Fyrirferðin var horfin við
endurtekna sneiðmyndatöku mánuði síðar.
Vefjarannsókn af brisi sýndi fjöl- eða smá-
belgjaæxli. Sjúklingi heilsaðist vel þremur
mánuðum eftir aðgerðina og er útskrifaður.
Tilfelli 2
Fimmtíu og átta ára gömul kona var lögð inn
á lyflækningadeild til rannsóknar á smásærri
blóðmigu. Hún reyndist samkvæmt nýrna-
ástungu hafa „mesangial proliferative“ gaukla-
bólgu en þar sem belgur hafði sést á vinstra
nýra var einnig tekin tölvusneiðmynd af kviði
til að útiloka fyrirferð. Þá sást auk belgsins á
vinstra nýra, stór belglaga fyrirferð í brisi á
mótum bols og skotts. í fyrirferðinni sáust ör-
smáir minni belgir og skilrúm en engar kalkan-
ir (mynd 1). Sjúklingurinn hafði lést um 12 kg
síðasta hálfa árið fyrir innlögn, verið lystarlaus
og slappur. Einnig hafði sjúklingurinn haft
kviðverki og hægðatregðu um all langt skeið.
Við skoðun var konan mjög grannholda en
ekki veikindaleg. Töluverð þreifieymsli voru í
efra vinstri fjórðungi kviðar en skoðun var
annars ómarkverð.
Ómskoðun af kviðarholi sýndi eðlilega gall-
blöðru og gallvegi og lifur án meinvarpa. Þá
sást í brisskottinu belgmein sem var ómríkt og
innihélt marga minni belgi. Fjarhluti briss var
tekinn ásamt milta. Auk þess fundust í aðgerð-
inni miklir samvextir og voru þeir losaðir.
Vefjarannsókn sýndi smábelgjaæxli og sérlit-
anir að þekjan innan á belgnum myndaði fjöl-
sykrunga en lítið slím. Ágætlega gekk eftir að-
gerðina, sjúklingurinn útskrifaðist eftir viku og
var við góða líðan við komu á göngudeild mán-
uði síðar.
Tilfelli 3
Þrjátíu og sex ára kona var innlögð til að-
gerðar á skurðlækningadeild Borgarspítalans
árið 1972 vegna belgmeins í brisi. Hún hafði 10
mánaða sögu um kviðverki og flökurleika, og
lýsti kviðverkjunum sem þrýstingstilfinningu