Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.06.1995, Page 28

Læknablaðið - 15.06.1995, Page 28
474 LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 Mikilvægt er að greina þetta æxli vegna þess að ólíkt slímmyndandi ættingja þess, er það full- komlega góðkynja (3,13,17-19). Ekki er talið að það geti orðið illkynja en þó hefur einu tilfelli verið lýst þar sem slíkt æxli hegðaði sér eins og það væri illkynja (20). Faraldsfrœði: Belgæxli eru um 10-15% belg- meina í brisi. Rúmlega helmingur slíkra meina reynast vera smábelgjaæxli (2,21). Þó er þetta mjög sjaldgæft æxli en samkvæmt uppgjöri frá 1985 er það um 1% allra æxla í briskirtli (22). Hinn helmingurinn eru slímmyndandi belg- æxli, annað hvort stórbelgjaæxli eða belgkirtil- krabbamein. Belgkirtilkrabbamein eru um það bil 1% af öllum illkynja æxlum sem vaxa út frá brisi (6). Æxli sem þessi finnast fyrst og fremst hjá konum á miðjum aldri en þó hafa þau greinst hjá sjúklingum á aldrinum 20-88 ára (3,4,14,23,24). Ein rannsókn sýndi að smá- belgjaæxlin geta verið án einkenna í langan tíma og finnast oft fyrir tilviljun á röntgen- mynd, í aðgerð eða við krufningu (16). Einkenni: Kviðverkir og megrun eru algeng- ustu einkenni sjúklinga með belgæxli í brisi, þar sem æxlin valda þrýstingi á meltingarfæri (24). Við skoðun á þessum sjúklingum má oft finna fyrirferð í efri hluta kviðar (13). I einni rannsókn komu fram ákveðin tengsl við syk- ursýki og illkynja sjúkdóma utan brissins (25). Ekki er þó enn vitað hvort aukin tíðni sykur- sýki hjá þessum sjúklingum stafi af sjúkdómn- um sjálfum, aldri sjúklinganna eða hvort raun- veruleg tengsl séu á milli þessara tveggja sjúk- dóma (21). Einnig hefur verið bent á að hjá sjúklingum með von Hippel-Lindau sjúkdóm er aukin tíðni smábelgjaæxla í brisi (26-28). Rannsóknir: í dag eru ómskoðun og tölvu- sneiðmyndir af kviðarholi þær rannsóknir sem gefa mestar upplýsingar um belgmein í brisi (15). Margir telja tölvusneiðmyndir vera fyrstu rannsókn þegar greina á hvort um belgæxli er að ræða (14,23,27,28). Einnig er tölvusneið- mynd oft hjálpleg við að greina á milli smá- belgja- og stórbelgjaæxla (14,27-29). Síðari rannsóknir hafa þó sýnt að ekki er hægt að treysta á tölvusneiðmynd eingöngu hvorki til að greina hvort belgæxli í brisi eru illkynja né til að greina þau frá öðrum belgmeinum frá sama líffæri (9,29,30). í einu tilfellanna sem hér er greint frá (tilfelli 2) var upphaflega talið samkvæmt tölvusneiðmynd að um smábelgja- æxli væri að ræða og síðar var það staðfest með vefjarannsókn (mynd 1). Á tölvusneiðmyndum, fyrir skuggaefnisgjöf, má venjulega sjá smábelgjaæxli sem fyrirferð með sömu röntgenþéttni og vatn. Eftir skugga- efnisgjöf lýsast hlutar eða allt æxlið upp. Þá koma fram bandvefsskilrúm sem mynda litla belgi og líkist æxlið þá býflugnabúi. Ef örið í miðjunni er kalkað kemur það vel fram. Ein- staka sinnum er æxlið þó meira einsleitt og líkist þá meira gervibelg eða öðrum þéttari æxlum (21,27,28,30). Á tölvusneiðmynd af stórbelgjaæxlum eru belgirnir stærri og kalkan- ir meira á víð og dreif um æxlið. Við ómskoðun á stórbelgjaæxlum sjást innri veggir æxlisins og fjölmargir belgir. Það aðgreinir þau frá gervi- belgjum sem yfirleitt hafa frekar fáa eða staka belgi (7). Séu holrúmin minni eins og í smá- belgjaæxlum getur æxlið orðið ómríkara. Ein- staka sinnum sjást einnig mjög ómrík svæði með eða án skugga sem þá eru kalkanir í miðörinu (mynd 1) (21). Kenningar hafa verið um að hægt væri að ákvarða tegund belgæxla í brisi með æða- myndatöku þar sem smábelgjaæxlin væru mjög æðarík andstætt stórbelgjaæxlum (3,4). Niður- stöður síðari rannsókna hafa verið mjög mis- vísandi hvað þetta varðar (14,28). í nýlegri rannsókn kom þó fram að smábelgjaæxli og belgkirtilkrabbamein voru æðarík við æða- myndatöku en hins vegar var æðafátækt frekar einkennandi fyrir góðkynja stórbelgjaæxli (9). Gallpípuþræðing (ERCP) er önnur greiningar- aðferð sem einnig hefur verið notuð til að reyna að greina þessi æxli fyrir aðgerð. Það sem iðulega sést við þá rannsókn er að æxlin hafa næstum aldrei samgang við brisganga sem er andstætt til dæmis gervibelgjum. Einnig get- ur þessi rannsókn verið hjálpleg við að greina illkynja æxli frá góðkynja en algengara er að þau fyrrnefndu þrengi að eða loki brisgöngum (1,9). Nú er farið að gera óm- eða tölvusneið- myndastýrða ástungu á þessum fyrirferðum til að greina hvers eðlis þær eru, þegar illa gengur að aðgreina þær með öðrum aðferðum (1,13,17,19,31). Þannig er mögulegt að fá vefja- sýni úr æxlinu fyrir aðgerð auk þess sem amýl- asi er mældur, CEA og CA 19-9, í vökvanum sem dreginn er úr belgnum. Venjulega mælist mjög hátt gildi amýlasa í gervibelgjum þó að til séu undantekningar. Aftur á móti er amýlasi ýmist lækkaður eða jafn því sem mælist í sermi í belgbrisæxlum (1). Einungis er vitað um eitt tilfelli þar sem amýlasi var mjög hækkaður í

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.