Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.06.1995, Page 37

Læknablaðið - 15.06.1995, Page 37
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 481 Table III. Bleedingsites and causes in affected males (N~22) andfemales (N—27) offamily A, B and C with mildhaemophilia A. Family A Family B Family C Males N=6 Females N=12 Males N=9 Females N=11 Males N=7 Females N=4 Wounds 12 2 9 5 8 5 Muscles 2 - - - 1 - Joints 2 - 1 - - - Bruises prone 6 6 2 6 3 6 Nasal - - 1 - - - Menorrhagia - 6 - 3 - 3 Renal, hematuria 6 - - - - - Intestinal 2 1 - - - - Dental surgery 4 1 5 1 5 3 Soft tissue surgery 5 3 3 - 1 1 Intracranial aneyrism 1 1 - - - - Telangiectasia 1 1 - - - konur, talin vera með dreyrasýkigenið sam- kvæmt sjúkdómseinkennum, storkuþáttar- rannsóknum og erfðahætti (tafla II). Gerðar voru storkuþáttarrannsóknir á 150 einstakling- um í fjölskyldum A, B og C, þar með eru taldir eðlilegir makar. Sjúkdómseinkenna um blæð- ingu var aflað skipulega hjá foreldrum og systkinum blæðara á 25-30 ára tímabili, með könnun á sjúkraskýrslum sjúkrahúsa og töku heilsufarssögu utan spítala hjá einstaklingum í fjölskyldum A, B og C. Helstu blæðingarein- kenni ættingja í fjölskyldu A eru skráð í grein árið 1970 (4) og fjölskyldu B árið 1970 (5). Upplýsingar fengust einnig um dreyrasýki í ættgrein fjölskyldu A í Kaliforníu (4). í fjölskyldu A (mynd 1) hafa auk dreyrasýki A verið greindir einstaklingar bæði með arf- geng æðaæxli (hereditary haemorrhage telan- giectasia) (III,4 og IV,8) og heilaæðagúl (cer- ebral aneurysma) (III,8 og IV,8). í þeim sjúk- dómstilfellum, þar sem saman fór dreyrasýki A og ofangreind æðamein, er réttara að rekja meiriháttar blæðingu til þeirra frekar en dreyrasýkinnar, sem síðan verður til að auka blæðinguna að magni og lengd þegar æðabilun verður. Helstu einkenni er tilhneiging til marbletta, bæði óeðlilega stórra marbletta af litlum áverka eða marbletta, sem hafa komið sjálf- krafa eða af óvituðu tilefni. Næst að tíðni er óeðlilega langvarandi blæðing eftir smáskeinur og vara- eða tungubit. Blóðnasir hafa ekki verið áberandi. Meiriháttar blæðing hefur orð- ið eftir tanndrátt og gert meðferð og fyrir- byggjandi meðferð með storkuþætti VIII nauðsynlega. Hjá kvenfólki með meingenið hafa tíðablæðingar valdið vandræðum í öllum þremur fjölskyldunum. Ákveðin blæðingareinkenni hjá mörgum kvenarfberum í fjölskyldum A, B og C (tafla III) var helsta ástæðan til þess að von Wille- brandssjúkdómur var talinn orsök dreyrasýk- innar auk viðbragða tveggja dreyrasjúkra karla í fjölskyldu A við skammti af storkuþætti VIII (4). Þótt kynjahlutfall dreyrasjúkra í fjölskyldun- um styrkti líkur á að um væri að ræða von Willebrandssjúkdóm, hefði mátt leggja meira upp úr þeirri staðreynd að ekki var hægt að finna dæmi um erfðir meingens frá föður til sonar í fjölskyldum A, B og C. Ættfræðiathuganir höfðu árið 1970 tengt dreyrasýkifjölskyldur A, B og C við ákveðnar samliggjandi sóknir í sömu sýslu og var á þeim tíma sett fram sú tilgáta að sama stökkbreyting lægi til grundvallar blæðingarsjúkdómnum í öllum þremur fjölskyldunum. Þessi tilgáta hef- ur nú hlotið staðfestingu með sameindafræði- legri rannsókn (tafla I). Storkuþáttarmælingar Blæðingartími gaf ekki vísbendingar um von Willebrandssjúkdóm í fjölskyldu A en sýndi væga hækkun í fjölskyldu B og ákveðna hækk- un í fjölskyldu C, þar sem einnig kom fram væg lækkun á von Willebrandsþætti hjá arfberum af báðum kynjum (tafla II). Mælingar á storkuþætti VIII sem gerðar voru árið 1970 sýndu gildi hjá körlum, sem komu heim við von Willebrandssjúkdóm. Þegar tveimur körlum með dreyrasýkina var gefinn skammtur af storkuþætti VIII, juku þeir

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.