Læknablaðið - 15.06.1995, Blaðsíða 50
492
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
Formannaráðstefna
Læknafélags íslands
Forniannaráðstefna LÍ var
haldin 19. maí síðastliðinn í
Hlíðasmára 8 í Kópavogi.
Sverrir Bergmann formaður
LÍ setti ráðstefnuna en fundar-
stjóri var Gestur Þorgeirsson
formaður LR.
Formaður rakti helstu mál er
komið hafa til kasta læknasam-
takanna frá aðalfundi síðastlið-
ið haust. Hann gerði grein fyrir
því hvernig unnið hefur verið að
afgreiðslu ályktana aðalfundar-
ins og hvar á vegi hver og ein
þeirra er stödd. Einnig sagði
hann frá lokum framkvæmda
við Hlíðasmára 8, í Kópavogi og
fór yfir stöðu Námssjóðs lækna,
en hætt var að greiða í sjóðinn
um síðustu áramót. Annars
staðar í blaðinu er nánar greint
frá Námssjóði lækna.
Talsverð umræða varð um til-
vísanamálið sem mjög hefur
reynt á þolrif læknasamtakanna
síðustu vikurnar. Umræðan var
hreinskiptin og vildu menn
greinilega bera klæði á þau
vopn sem beitt hefur verið. Þótt
skoðanir væru sem fyrr skiptar
um tilvísanaskylduna var greini-
legt að menn töldu miður að
heilbrigðisráðherra hefði tekist
að magna svo mjög óvinafagnað
meðal lækna. Tilvísanamálið
hafi ekki verið sett fram sem
heilbrigðismál heldur sem póli-
tískt baráttumál. Vandi lækna-
samtakanna væri ekki síst sá að
þau skorti heilbrigðispólitíska
stefnumótun til að bregðast við
svona uppákomum. Hvað gera
samtökin til dæmis þegar næsta
reglugerð um tilvísanaskyldu
verður dregin upp? Einnig
töldu ýmsir að innan læknasam-
takanna skorti hugmyndafræði-
lega umræðu um markmið
læknisfræðinnar.
Mjög ákveðnar hugmyndir
komu fram um nauðsyn þess að
endurskoða skipulag lækna-
samtakanna og var hugmyndum
þar að lútandi beint til stjórnar
LÍ.
Á formannaráðstefnunni var
gerð grein fyrir starfi einstakra
nefnda og starfshópa og verður
nokkurs getið hér:
— Orlofsnefnd var með ítar-
lega skýrslu, en hún hefur ný-
lega gert grein fyrir sínum mál-
um í Læknablaðinu (Lækna-
blaðið 1995; 81: 268-9).
— Verið er að rita sögu
læknasamtakanna. Til starfans
er ráðinn Jón Ólafur ísberg
sagnfræðingur. Skýrði hann frá
framgangi undirbúningsvinnu.
— Vilhjálmur Rafnsson rit-
stjóri og ábyrgðarmaður
Læknablaðsins gerði grein fyrir
stöðu útgáfumála sem segja má
að sé á góðu róli eftir samein-
ingu blaðanna.
— Formaður Námskeiðs- og
fræðslunefndar Stefán B. Matt-
híasson gerði grein fyrir tillögu-
drögum nefndarinnar, sem unn-
in eru í samvinnu við Fram-
haldsmenntunarráð lækna-
deildar HÍ um mat á símenntun
lækna (sérfræðinga innan LI).
— Nefnd sem farið hefur of-
an í saumana á starfsemi skrif-
stofu læknasamtakanna skýrði
frá niðurstöðum sínum.
— Loks urðu allnokkrar um-
ræður um lífeyrismál, ekki síst
stöðu eldri lækna, í framhaldi af
umræðu um hóptryggingu
lækna og tilboð sem borist hefur
í hana.
-bþ-