Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.1995, Page 22

Læknablaðið - 15.10.1995, Page 22
716 LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 Bandaríkjunum, þar sem nær væri að klípa fyrst af því ógnarfé sem fer til hermála og geimrannsókna, en sökum þess að jafnvel heyrist rætt um forgangsröðun á Islandi, þar sem engum hernaðar- og geimútgjöldum sé fyrir að fara, hljóti að verða að taka mark á vandamálinu. Hann stingur upp á mörgum kostum, áður en gripið sé til forgangsröðunar sjúklinga, svo sem að böndum verði komið á laun lækna og starfsfrelsi þeirra skert, hjúkrun- arfræðingar og sjúkraliðar taki að sér veiga- meiri verkefni og að meiri áhersla verði lögð á forvarnir en nú er gert (34). En að þessu slepptu hlýtur þörfin fyrir þjónustu að ráða forgangi: Brýnustu þörfina er mest að meta. Gagnrýni: 1) Þarfahugtakið er æði afsleppt og hefur valdið heilabrotum í stjórnfræðum þar sem allt kapp er lagt á að þjóna þörfum við- skiptavinanna. Þar, eins og hér, er óljóst hvort einungis er átt við raunverulegar eða einnig ímyndaðar þarfir; þarfir sem velta á löngunum eða einhverjum varanlegri hagsmunum', þarfir hér og nú eða einnig þarfir framtíðar. I hvaða skilningi /tu/'/'þrítugur hjartasjúklingur meira á hjartaígræðslu að halda en sextugur? Er ekki hætt við að hjólið sem mest ískrar í fái smurn- inguna þó að önnur þarfnist hennar kannski ekki síður? 2) Þessi kvarði virðist vera fram- setning á vandanum fremur en lausn. Að vísu er skiljanlegt að þörf ráði forgangi; en vandinn var nákvæmlega þessi: Hverjir þurfa mest á heilbrigðisþjónustu að halda og hvað á að gera ef margir þarfnast hennar jafnt? Er ekki þarfa- sekkurinn í raun botnlaus hít, eins og rakið var í kaflanum Vandinn í hnotskurn? Vegna þessara almennu ágalla hafa jafnað- armenn hyllst til að setja fram afmarkaðri og betur skilgreinda þarfakvarða, bl) og b2): bl) Samfélagsþarfakvarði. Það eru ekki þarfir einstaklinga heldur heildarhagsmunir samfélagsins sem ráða skulu forgangsröðinni. Gagnrýni: 1) Mat á samfélagshagsmunum er torvelt. Hvor þjónar slíkum hagsniunum betur — og á því að hafa forgang — sex barna ein- stæð móðir eða nýr Mozart? 2) Mat samfélags- hagsmuna er ekki aðeins torvelt; það getur auðveldlega skapað þann vanda að saklausir, heilbrigðir einstaklingar séu gerðir að blóra- bögglum, það er fórnað heildarinnar vegna (notaðir í varahluti í líffærabönkum og svo framvegis) (35). b2) Tekjukvarði. Þeir skulu njóta forgangs sem minnst hafa auraráðin; hinir sem betur mega sín verða, ef allt um þrýtur, að sjá um sig sjálfir. Það kann að þykja skjóta nokkuð skökku við, en sterkustu rökin á íslandi fyrir þessari tekjujöfnunarleið hefur verið að finna í leiðurum Morgunblaðsins. Blaðið er ósam- mála þeirri afvegaleiddu jafnaðarstefnu að eitt skuli yfir alla ganga, óháð aðstæðum, en leggur þess í stað til „að tekin verði upp víðtœk tekju- tenging bœði í heilbrigðiskerfinu og trygginga- kerfinuþað er að fólk greiði kostnað þar „í samrœmi við tekjur sínar" (36). Blaðið leggur að vísu til að á sama tíma verði boðið upp á „einkarekinn valkostíheilbrigðiskerfinu" (37), þannig að þeir sem vilja og efni hafi á geti keypt sig út úr hinni opinberu forgangsröð — en það breytir því ekki að meginhugmyndin er tekjujöfnunarættar, það er að segja sósíalísk. Gagnrýni: 1) Þeir sem borga mest í skatta (hinir tekjuhæstu) fá minnst í sinn hlut. Þetta er í senn óréttlátt og hlýtur að skapa megna óvild í garð ríkisrekins heilbrigðiskerfis hjá hátekjuhópum, yfirstétt. 2) Kostnaður við legu á sjúkrahúsum og hvers kyns meðferð er svo mikill að jafnvel er ofviða meðaltekjufólki að axla hann sjálft. Sparnaðurinn yrði því mjög lítill af þessu kerfi og bitnaði í raun aðeins á hinum allra tekjuhæstu. c) Frjálshyggjumenn stinga upp á markaðs- kvarða: Þeir skulu koma fyrst í forgangsröð- inni sem mest vilja borga fyrir þjónustuna. Markaðsöflin leysa því vandann hér sem ann- ars staðar — eða öllu heldur leysa hann upp. Það er enginn vandi lengur til varðandi opin- bera ákvarðanatöku eftir að heilbrigðiskerfið hefur verið einkavætt og einstaklingarnir taka sjálfir ákvarðanir um það, eftir ólíkum for- sendum sínum og hagsmunum, hvaða þjónustu þeir kjósa sér. Þeir taka þannig ábyrgð á eigin heilsu, til dæmis með því að kaupa sjúkratrygg- ingar fyrir sig og börnin sín (38). Flestir frjáls- hyggjumenn leggja þó til að sett verði upp ákveðið öryggisnet fyrir þá allra tekjulægstu; þeir fái opinbera fjárhagsaðstoð (til dæmis með einhvers konar ávísanakerfi) til að kaupa sér þá þjónustu sem þeir æskja, þó að þeir eigi í strangasta skilningi engan rétt á slíku (39); en að öðru leyti verði líknarsamtökum falið að sjá fyrir þeim sem ekki hafa bolmagn til að skapa sér hlutgengi á markaðnum. Með hugmynd- inni um öryggisnet nálgast markaðskvarðinn ögn tekjukvarða sósíalistanna (b2), þótt úr ólíkri átt og með öðrum áherslumerkjum sé. Gagnrýni: 1) Heilbrigði er mjög sérstök

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.