Læknablaðið - 15.10.1995, Síða 38
730
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
Table I. Components of antibody pools used.
Pools Components
T 1, 3, 13, B3264
U 2, 4, 6, 28,
W 5, 11, 12, 27, 44
X 8, 14, 25, lmp.19
Y 9, 18, 22, 23
efnasöfn voru notuð til þess að afmarka ákveð-
ið safn mögulegra T-prótíngerða (tafla I). Síð-
an var eingildum mótefnum úr viðeigandi safni
beitt við kekkjunarprófin.
Þrjátíu og einn stofn var sendur til Strepto-
coccal Reference Laboratory, Central Public
Health Laboratory í Lundúnum, til greiningar
á M-prótínum. Þetta voru stofnar af algeng-
ustu T-prótíngerðum frá þeim tímabilum þegar
tíðni var hæst og voru þeir valdir af handahófi.
Frá árinu 1989 voru sendir fimm stofnar af
prótíngerð Tl, fjórir af T28 og fjórir af T4.
Jafnframt voru sendir fjórir T4-stofnar og fjórir
af gerð T28 frá 1991 og fimm stofnar af Ti
ásamt fimm af gerð T3 frá árinu 1993.
Niðurstöður
A árunum 1986-1993 ræktaðist S. pyogenes
úr 8746 sýnum á sýklafræðideild Landspítal-
ans, það er að meðaltali úr 1093 sýnum á ári
(tafla II). Þessar ræktanir voru flestar úr háls-
strokum (85%) en hlutdeild þeirra í heildar-
fjölda sýna hafði aukist úr 81% í tæplega 91%
árið 1993. Heildarfjöldi innsendra sýna og já-
kvæðra S. pyogenes ræktana sveiflaðist rnikið á
milli ára en fjöldinn virtist stöðugt aukast
seinni hluta rannsóknartímabilsins (tafla II).
Meðalfjöldi jákvæðra S. pyogenes ræktana
hækkaði á vetrum og náði hámarki í febrúar og
mars en lækkaði þar á eftir og var lægstur á
haustin.
Niðurstöður stofngreininga á S. pyogenes
(tafla III og IV) sýndu að T1 var algengust á
árunum 1988-1989, T4 og T28 1991-1992 en T1
var þá nánast horfin. Árið 1993 var T1 aftur
orðin algengasta stofngerðin auk T3. Ekki var
marktækur munur á stofngerðunum í febrúar
og í ágúst og virtist sem sömu stofngerðirnar
hafi valdið flestum S. pyogenes sýkingum allt
árið um kring. Af þessu má ljóst vera að miklar
sveiflur voru á algengi einstakra stofngerða S.
pyogenes á því tímabili sem rannsóknin náði
til. Munar þar mestu um tíðnisveiflur Tl, T3,
T4 og T28.
S. pyogenes ræktaðist úr 29 blóðsýnum sem
bárust sýklafræðideild Landspítalans á árunum
1989-1993. Af þeim voru til 26 frystir og voru
T3, T12 og T28 algengastar.
Lítið samhengi virtist vera á milli stofngerða
og tegundar sýnis. Ekki reyndist umtalsverður
munur á stofngerðum sem ræktuðust úr hálsi
annars vegar og á sýnum sem ræktuðust annars
staðar frá hins vegar, og gildir einu hvort um
blóð, sár eða einhver önnur sýni var að ræða.
Þó ber að hafa í huga að hlutur annarra sýna en
hálsstroka var tiltölulega lítill þannig að fara
verður með gát varðandi vangaveltur þessu lút-
andi.
Um marktækan mun á milli febrúar og ágúst
var ekki að ræða ef bornar voru saman stofn-
gerðir með tilliti til aldurs sjúklinga. Aftur á
móti var tölfræðilega marktækur munur milli
aldurshópa eldri en 14 ára eða 14 ára og yngri,
óháð rannsóknartímabili. Á árunurn 1991-1992
var T4 algengust hjá þeim yngri eða 43% en
þessu var öðruvísi farið hjá þeim eldri, þar sem
T28 var algengust, eða um 49%.
Allir stofnar (31 talsins) sem sendir voru til
Bretlands til ákvörðunar á M-prótínum höfðu
hliðstæð T-prótín (Mx,Tx, My,Ty og svo fram-
vegis) nema einn. Hann var af stofngerð
M1,T3.
Table II. Number ofS. pyogenes strains isolated from different specimen types 1986-93. Percentage of total in parentecies.
Year Pharynx Wounds Blood Other Total
1986 591 (81) 37 (5) 9(1) 95 (13) 732
1987 714 (80,5) 72 (8) 5 (0,5) 98 (11) 889
1988 783 (81) 64 (7) 8(1) 109 (11) 964
1989 509 (81) 37 (6) 5(1) 78 (12) 629
1990 1112 (86,5) 40 (3) 4 (0,3) 131 (10,2) 1287
1991 1311 (88,4) 61 (4,1) 5 (0.3) 106 ( 7,2) 1483
1992 575 (82) 78 (11) 7(1) 45 (6) 705
1993 1864 (90.6) 81 (4) 8 (0.4) 104 (5) 2057
Total 7459 (85) 470 (5) 51 (1) 766 (9) 8746 (100)