Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.1995, Page 55

Læknablaðið - 15.10.1995, Page 55
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 745 stofureksturs, móttöku sjúk- linga og lækningastarfsemi. Ef unnt er að meta þörf aukinnar sérfræðiþjónustu væru slíkar upplýsingar vafalaust gagnlegar fyrir þá sem hyggjast flytjast heim til að hefja störf á íslandi. Upp í hugann koma atriði eins og hversu margir eru starfandi í greininni, eru biðlistar til stað- ar, hvenær kom síðasti sérfræð- ingur inn á samninginn í við- komandi grein og svo framveg- is. Sérstök sameiginleg bókun var undirrituð af báðum aðilum samningsins þar sem meðal annars kemur fram að við ákvörðun á einingafjölda í næsta samningi skuli líta til þess hvort ný læknisverk sé verið að vinna, fjölgunar íbúa og fleira. Eg vil geta þess að lokum að einn fulltrúi Heilbrigðisráðu- neytisins hefur stungið upp á því að TR og Heilbrigðisráðuneytið ákveði þörfina fyrir nýja sér- fræðinga og létti þannig af læknafélögunum eða fulltrúum þeirra því erfiða hlutskipti. Væri það heppileg leið fyrir lækna? I ljós kann að koma að fulltrúar almennings á íslandi kjósi að þrengja svo mjög að sérfræðingsþjónustunni að sér- fræðingar sjái þann kost einan að segja sig alfarið af samningi við TR jafnvel strax um næstu áramót. Engu að síður er mikil- vægt að Iæknasamtökin setji þær leikreglur sem sanngjarnar geta talist fyrir samráðsnefnd á meðan unnið er eftir nýgerðum samningi við TR. Með kveðju og þökk fyrir samráð Gestur Þorgeirsson formaður LR“ Frá ritstjórn Nú þegar liðið er um ár frá sameiningu Fréttabréfs lækna og Læknablaðs skal áréttað að undir fyrirsögninni Umræða og fréttir birtast aðsend bréf og athugasemdir lækna um hvað eina sem þeir óska að tjá sig. Einkum er hér haft í huga efni sem lýtur að félags- og hagsmunamálum lækna, skipulagi heilbrigðismála og hlutverki lækna í víðum skilningi. Sem áður bera menn sjálfir ábyrgð á skrifum sínum, enda birtast þau undir nöfnum. Það er ósk ritstjórnar að læknar noti blaðið sitt sem málgagn, þeir hugsi stórt þannig að blaðið eflist og verði meira lesið, en læknar sjálfir þroskist af. Alþjóðlega sjúkdóma- og dánarmeinaskráin, 10. útgáfa Heilbrigðisráðherra hefur að tillögu landlæknis ákveðið að 10. útgáfa Alþjóðlegu sjúk- dóma- og dánarmeinaskrárinn- ar verði tekin í notkun hér á landi eftir rúmlega eitt ár eða 1. janúar 1997. Ekki er heimilt að taka 10. útgáfuna í notkun á ein- stökum stöðum fyrir þann tíma. Utgáfa Læknafélags íslands verður sú útgáfa sem fara ber eftir hér á landi, en í henni verða bæði ensk og íslensk heiti við hvert númer. Þess er vænst að þrátt fyrir þetta verði ís- lenska útgáfan ódýrari en sú enska og er læknum og stofnun- um eindregið ráðlagt að kaupa ekki ensku útgáfuna. í íslensku útgáfunni verða nokkrar breyt- ingar frá frumútgáfu WHO, til dæmis hvað varðar samnorræna slysaskráningu, sem er talin henta mun betur en sú enska. Breytingarnar eru gerðar í sam- ráði við WHO og með leyfi stofnunarinnar. Jafnhliða gildistöku 10. út- gáfu Alþjóðlegu sjúkdóma- og dánarmeinaskrárinnar verður tekin upp samnorræn aðgerða- skráning, en vinnsla þeirrar skráningar er nú á lokastigi. Talsverð vinna er þó eftir í tölvukerfum sjúkrahúsanna við báðar skrárnar. Ráðgert er að hafa námskeið í notkun beggja skránna sam- tímis næsta haust og verður það nánar tilkynnt síðar. Frá Heilbrigðis- og trygginga- niálaráðuneytinu og landlækni

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.