Læknablaðið - 15.03.1999, Side 22
212
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
á Landspítalanum. Greining var líkleg hjá
tveimur og ákveðin hjá tveimur. Einn þeirra var
upphaflega grunaður um að hafa hjartasjúkdóm
og annar að hafa gallblöðrubólgu. Allir reynd-
ust hafa herpes simplex veiru frumsýkingu,
voru lagðir inn á sjúkradeild og meðhöndlaðir
með vökva í æð og acíklóvír. Við leit í MED-
LINE fundust 12 tilfelli herpes simplex vél-
indabólgu í einstaklingum sem ekki voru ónæm-
isbældir og fullnægðu skilmerkjum. Að okkar
sjúklingum meðtöldum var aldursbil hópsins 18
til 50 ár (meðalaldur 26 ár). Konur voru tvær en
karlar 14. Algengasta einkenni var verkur við
kyngingu (69%). Hjá átta sjúklingum (50%) var
lýst hita en aðeins sex (37,5%) sjúklingar höfðu
greinanleg sár í húð og/eða slímhúð við skoðun.
Algengast var að greina sár við speglun, venju-
lega í neðsta hluta vélinda (13/16), en tveir
höfðu sár í miðhluta (2/16) og einn eftir endi-
löngu líffærinu (1/16). Herpes simplex veira-1
ræktaðist frá 10 sjúklingum. Hjá átta sjúkling-
um greindust innlyksur í þekjufrumum í vél-
indasýnum. Mótefnamælingar voru gerðar hjá
10 sjúklingum og samræmdust þær frumsýk-
ingu hjá sex þeirra.
Alyktanir: Herpes simplex vélindabólga
virðist sjaldgæf í annars heilbrigðum einstak-
lingum en sjúkdómurinn er sennilega van-
greindur. Flestir sem hafa greinst eru ungir
karlmenn. Vísbendingar eins og sýnileg mein í
húð og/ eða slímhúð eru oft ekki til staðar. Þörf
er árvekni og speglunar með sýnatöku til grein-
ingar.
Inngangur
Herpes simplex veira tilheyrir flokki herpes
veira og er algeng orsök útbrota í húð og slím-
húð. Smitun verður við nána snertingu. Al-
gengi mótefna gegn herpes simplex veiru eykst
með hækkandi aldri. í kjölfar sýkingar leggst
veiran í dvala í taugahnoðum en endurvirkjun
veirunnar getur átt sér stað hvenær sem er.
Veiran getur sýkt ýmis líffæri, oftast munn og
kynfæri. Af innri líffærum sýkist vélindað oft-
ast og er herpes simplex veiran talin með al-
gengari orsökum vélindabólgu af völdum sýkla
(1), tíðni er þó mismunandi eftir rannsóknum,
0,5%-25% (2,3), meðal annars vegna skorts á
þekkingu á útliti vefjasýna sem sýkt eru af völd-
um herpes simplex veiru (3). Hún greinist lang-
oftast hjá ónæmisbældum einstaklingum (3,4),
einkum þeim sem eru haldnir illkynja eða öðr-
um alvarlegum sjúkdómum. Sýkingin er hins
vegar sjaldgæf hjá þeim sem eru heilbrigðir en
lítt hefur verið fjallað um það efni áður.
Hér er lýst fjórurn ungum, annars heilbrigð-
um karlmönnum sem greindust með herpes
simplex veiru vélindabólgu og voru lagðir inn
á Landspítalann árið 1997. Einnig verður gerð
grein fyrir rituðu máli um efnið, sem fannst við
leit á MEDLINE.
Aðferðir
Mótefnamœlingar: IgM og IgG mótefni
gegn herpes simplex veiru voru mæld í sermi
með tveimur mismunandi óbeinum (indirect)
ELISA prófum. Annað er heimagerð ELISA en
hitt aðkeypt, það er Enzygnost Anti-HSVIgM
og Anti-HSVIgG (Behringwerke AG, Mar-
burg, Þýskalandi). I báðum prófum eru notaðir
herpes simplex veiru mótefnavakar úr frumu-
rækt sem ekki greina á milli mótefna gegn
herpes simplex veiru-1 og herpes simplex
veiru-2. Herpes simplex veiru frumsýking var
talin staðfest ef mótefni gegn veirunni, IgG og
IgM, voru neikvæð í fyrsta sermissýni eða að-
eins IgM jákvætt, en voru bæði jákvæð í síðara
sýni.
Veiruræktun: Herpes simplex veira var rækt-
uð í Vero og A-549 frumum og greind á grund-
velli frumuskemmda. Greiningin var staðfest
og veirugerðin (herpes simplex veira-1 eða
herpes simplex veira-2) fundin með ELISU
aðferð (Dako reagensar).
Vefjasýni úr vélinda: Sýni úr vélinda voru
lituð með HE (hematoxylin-eosin) og sveppa-
litun og smásjárskoðuð. Vélindabólga af völd-
um herpes simplex veiru var greind ef Cowdry
innlyksur af gerð A, sem eru dæmigerðar fyrir
herpes simplex veirur, fundust svo og marg-
kjarna risafrumur. Gerð var ónæmisvefjafræði-
leg litun fyrir herpes simplex veiru hjá sjúk-
lingum númer 2, 3 og 4.
Leit í rituðu máli: Leit var gerð í rituðu máli
á MEDLINE að herpes simplex vélindabólgu.
Hún náði yfir árabilið 1966 til 1998. í yfirliti
okkar voru tekin tilfelli herpes simplex vél-
indabólgu sem lýst hafði verið og fullnægðu
skilmerkjum okkar.
Skilmerki greiningar: Skilmerki greiningar
herpes simplex vélindabólgu voru: 1. Engin
fyrri saga um herpes simplex veirusýkingar,
ónæmisbælingu eða nýlega ísetningu tækja eða
tóla um vélinda svo sem magaslöngu. 2. Spegl-
un á vélinda og maga leiddi í ljós breytingar í
vélinda, sem samrýmdust vélindabólgu. 3.