Læknablaðið - 15.03.1999, Qupperneq 25
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
213
Niðurstaða úr mælingu mótefna gegn herpes
simplex veiru samræmdist nýlegri frumsýk-
ingu. 4. Vefjasýni úr vélinda sýndi breytingar
er samræmdust herpes simplex vélindabólgu
og/eða herpes simplex veira ræktaðist úr vél-
indasýni. Sjúkdómsgreining var talin líkleg ef
þremur fyrstu skilmerkjum var fullnægt en ör-
ugg/ákveðin ef öllum fjórum var fullnægt.
Tilfelli sem fundust í rituðu máli voru talin
samrýmast herpes simplex vélindabólgu hjá
heilbrigðum einstaklingum ef höfundar lýstu
tilfellunum sem slíkum og þau fullnægðu skil-
merkjum 1,2 og 4.
Sjúkratilfelli greind á íslandi
Tilfelli 1. Tuttugu og eins árs gamall karl-
maður kom til læknis með tveggja daga sögu
um verk undir bringubeini, verk við kyngingu
(odynophagia) og hrollköst. Hvorki var saga
um áblástur né kynfærasýkingar. Vinkona hans
hafði sögu um endurtekinn áblástur en ekki ný-
legt sár. Við komu var hiti 39,4°C. Blóðprufur
og röntgenmynd af lungum voru innan eðli-
legra marka. Hjartalínurit sýndi vægar ST-T
takka breytingar í leiðslum VI og V2 en mæl-
ing á CPK (creatine phosphokinase) og hjarta-
ómun leiddu ekkert óeðlilegt í ljós. Gefin var
meðferð með lansóprasóli en án svörunar. Spegl-
un sýndi áberandi bólgu og grófar slímhúðar-
fellingar á mótum vélinda og maga. Vefjasýni
frá vélinda sýndi bráða bólgu og í þekju voru
Cowdry innlyksur af gerð A og margkjarna
risafrumur. Sjúklingur var lagður inn, gefinn
vökvi í æð og meðferð með acíklóvír 500 mg x
3/dag. Hann var hitalaus næsta dag, líðan betri
og útskrifaður á acíklóvír 400 mg þrisvar á dag
um munn í sex daga. Blóðræktanir og HIV mót-
efnapróf voru neikvæð. Mótefni gegn herpes
simplex veiru voru neikvæð í sermi við innlögn
en þremur vikum síðar voru bæði herpes simpl-
ex veiru IgM og IgG mótefni jákvæð.
Tilfelli 2. Tvítugur karlmaður kom til læknis
með fimm daga sögu um verki undir hægra
rifjabarði einkum við kyngingu. Hann hafði
haft daglegan hita, allt að 39°C og gat ekki
borðað fasta fæðu í þrjá daga fyrir innlögn.
Fimm dögum áður en kviðverkir hófust tók
hann eftir blöðru í hægra munnviki. Sjúklingur
átti skyndikynni um 10 dögum áður en einkenni
hófust. Lifrarpróf og ómskoðun af gallkerfi og
lifur voru innan eðlilegra marka. Við skoðun
var hann fölur með væg einkenni um þurrk og
sár á efri vör. Það var nokkur roði í afturvegg
koks og á hálskirtlum og á þeim voru töluverðar
hvítleitar skánir. Lítil sár greindust undir og á
hlið tungu og stærra sár á efra gómi. Kviður var
mjúkur og eymslalaus og ekki sár á kynfærum.
Speglun leiddi í ljós mörg sár á mótum maga og
vélinda. Vefjasýni frá vélinda sýndu bráða
sármyndandi bólgu en hvorki innlyksur né
risafrumur. Onæmisvefjalitun fyrir herpes
simplex veiru var neikvæð. Sjúklingurinn var
lagður inn, gefinn vökvi í æð og hafin meðferð
með acíklóvír, 400 mg x 3, í æð. Herpes simpl-
ex veira-1 óx úr sárum í munni og frá hálskirtl-
um. Líðan sjúklings batnaði smám saman. Hann
gat neytt fastrar fæðu fjórum dögum eftir inn-
lögn og var þá skipt yfir í valacíklóvír töflur,
500 mg x 2 og hann útskrifaður. Kviðverkir
minnkuðu smám saman og voru horfnir við út-
skrift. Tveimur vikum eftir upphaf einkenna
kvartaði hann enn um magnleysi. Mótefni voru
neikvæð í sermi í upphafi en níu dögum síðar
voru bæði IgM og IgG mótefni jákvæð. HIV
mótefnapróf var neikvætt.
Tilfelli 3. Tuttugu og fjögurra ára gamall
karlmaður veiktist skyndilega með hitatilfinn-
ingu og slappleika. Daginn eftir fékk hann
stingandi verki í uppmagálssvæði sem versn-
uðu eftir mat. Stundum fylgdu kviðverkjunum
uppköst og verkir í munni. Hann gat drukkið en
ekki neytt fastrar fæðu. Hann hafði reynt munn-
skol og lansóprasól en án árangurs. Sjö dögum
eftir upphaf einkenna kom hann á bráðamót-
töku Landspítalans. Við skoðun var hann veik-
indalegur, með hita, 38,3°C. Það voru lítil sár á
neðri vör, neðri gómi og tungu og vægur roði á
mjúka gómnum og hálskirtlum. Eitlar á efri
hluta háls voru vægt stækkaðir. Væg eymsli
voru í uppmagálssvæði. Blóðprufur voru innan
eðlilegra marka. Herpes simplex veira-1 rækt-
aðist úr sárum í munni. Speglun sýndi þindar-
slit (hiatus herniu) og grunn sár sem runnu
saman í neðsta hluta vélinda. Smásjárskoðun
vélindasýna sýndi ósértækar bólgubreytingar.
Veiruinnlyksur greindust ekki og ónæmisvefja-
litun fyrir herpes simplex veiru var neikvæð.
Meðferð fólst í vökvagjöf í æð, mjúkri fæðu og
acíklóvír töflum, 400 mg x 5 daglega. Einkenni
skánuðu hratt og var hann útskrifaður tveimur
sólarhringum síðar á acíklóvír. IgM mótefni í
sermi, tekið innlagnardag, var jákvætt gegn
herpes simplex veiru og IgG mótefni var lágjá-
kvætt. Fimmtán dögum síðar höfðu bæði IgM
og IgG mótefni hækkað. Mótefni gegn HIV
mældust ekki.