Læknablaðið - 15.03.1999, Qupperneq 57
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
241
Fundarmenn á fundi Norrœna lœknaráðsins, talið frá vinstri: Harry Martin Svab0 Noregi, Torben
Pedersen Danmörku, Kati Myllymaki Finnlandi, Hans Petter Aarseth Noregi, Jorgen Funder Danmörku,
Bernhard Grewin Svíþjóð, Ásdís Rafnar, Kari Pylkkiinen Finnlandi, Gunnar Lönnquist Svíþjóð, og
Guðmundur Björnsson.
s
Fundur Norræna læknaráðsins á Islandi
Dagana 18 og 19. febrúar
síðastliðinn var haldinn fund-
ur í stjórn Norræna lækna-
ráðsins á vegum Læknafélags
íslands í fundarsal félagsins í
Hlíðasmára. Mættir voru for-
brigðiskerfinu, á mótun heil-
brigðisstefnu og að læknar
komi fram sem ábyrgir fag-
menn í þjóðfélagsumræðu.
Nýr framkvæmdastjóri Ás-
dís J. Rafnar hdl. hóf störf hinn
1. febrúar síðastliðinn. Stjóm
Læknafélags íslands stendur
einhuga að baki nýjum
framkvæmdastjóra. Fram-
undan eru spennandi verkefni
eins og mótun kjaramálastefnu
og framtíðarstefnu öflugra,
samhentra læknasamtaka.
Á þessu tímamótum þakka
læknar á íslandi Páli Þórð-
arsyni af heilum hug fyrir mik-
ið og vel unnið starf í þágu
læknasamtakanna og óska
honum velfarnaðar á nýjum
starfsvettvangi.
Guðmundur Björnsson
menn og framkvæmdastjórar
bróðurfélaga okkar á Norður-
löndum.
Norræna læknaráðið er sam-
starfsvettvangur norrænu
læknafélagana og var fyrsti
stjórnarfundur ráðsins haldinn
á íslandi árið 1992. Annað
hvert ár er haldinn aðalfundur
ráðsins þar sem stjómir félag-
anna hittast og verður sá fund-
ur í Visby á Gotlandi á næsta
ári.
Starf ráðsins hefur eflst
mjög í áranna rás og hefur það
sýnt sig að Norðurlöndin hafa
mörg sameiginleg mál að ræða
og eru sterk sameiginlega í al-
þjóðasamstarfi lækna. Mörg
mál voru til umræðu að þessu
sinni. Hæst bar endur- og
símenntunarmál lækna, en
einnig var talsvert fjallað um
útgáfumál. Ákveðið hefur
verið að hætta útgáfu blasins
Nordisk Medicin, en fundar-
menn voru sammála um að
heillavænlegra væri að beina
kröftunum að sameiginlegri
útgáfu læknasamtakanna á
netinu. Gengið hefur verið frá
slitum útgáfufélagsins og er
full sátt um þá tilhögun.
Læknafélagi Islands gafst á
þessum fundi tækifæri til að
kynna ný lög um miðlægan
gagnagrunn á heilbrigðissviði,
en ráðið ályktaði um fyrir-
liggjandi frumvarp á síðasta
ári. Urðu um það mál tals-
verðar umræður og ákvað ráð-
ið að fara fram á formlegt álit
alþjóðasamtaka lækna WMA
á þeirri lagasetningu.
Ólafur G. Einarsson forseti
sameinaðs Alþingis bauð ráð-
inu til móttöku í Alþingishús-
inu að loknum fundi og kynnti
starf Alþingis og húsakynni.
Færir Læknafélag íslands
honum bestu þakkir fyrir góða
kynningu og hlýlegar móttök-
ur. Næsti stjórnarfundur ráðs-
ins verður haldinn í Kaup-
mannhöfn í júnímánuði næst-
komandi.
Guðmundur Björnsson