Læknablaðið - 15.03.1999, Side 58
Eitt hy I ki ó d a g!
50 mg
150 mg
Nýr styrkleiki 200 mg
Omega Farma
www.omega.is
HYLKI; J 02 A C 01 R E. Hvert hylki inniheldur: Fluconazolum INN, 50 mg, 150 mg
eða 200 mg. Eiginleikar: Sveppalyf af bis-tíazólflokki. Vírkar á sveppi með því að hindra
ergósterólframleiðslu í fmmuveggnum. Hefur lítil áhrif á mannafiumur. Lyfið frásogast
hratt og vel frá þörmum (95%). Um 80% útskilst óbreytt í þvagi. Helmingunartími í blóói
er 25-30 klst. Hjái börnum viröist útskilnaðarhraði meiri, en hjá fyrirburum og nýfæddum
talsvert lengri. Ábendingar: Candida-sýkingar, t.d. í slímhúðum, leggöngum, þvag-
færum o.fl. líffærum. Cryptococcosis og fyrirbyggjandi gegn sveppasýkingum hjá
ónæmisbældum einstaklingum (þó ekki Candida krusei og Candida glabrata vegna
ónæmis). Sveppasýkingar í húö af völdum flúkónazólnæmra sveppa.Frábendingar:
Ofnæmi fyrir lyfinu eða skyldum tríazólsamböndum. Meðganga og brjóstagjöf: Tak-
mörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum, en í tilraunum á rottum
hefur sést aukin tíðni fósturláta og meðfæddra galla á þvagfærum. Lyfið á því aðeins
að nota á meðgöngutíma að vandlega íhuguðu máli. Ekki er vitað hvort lyfið skilst út
í brjóstamjólk í magni sem gæti haft áhrif á bamið. Aukaverkanir: Yfirleitt þolist lyfiö
vel. en um 10% sjúklinga fá einhverjar aukaverkanic Um 1% sjúklinga verða að hætta
meðferð vegna þeirra. Algengar (>1%): Almennar: Höfuðverkur. Meltingarfæri: Ógleði,
kviðverkir, niðurgangur. vindgangur. Sjaldgæfar (0,1-1%): Húð: Útbrot. Breytingar á
lifrarenzýmum koma fyrir. Alnæmissjúklingar hafa mikla tilhneigingu til að fá alvarleg
húðútbrot af mörgum lyfjum. Nokkrir hafa fengið mikil blöðruútbrot á flúkónazólmeðferð,
en jafnframt tekið önnur lyf, sem gætu verið orsök útbiotanna. Bráöaofnæmi af völdum
lyfsins hefur sést. Milliverkanir: Lyfið getur aukið virkni díkúmaróls og skyldra lyfja
og lengir jafnframt helmingunartíma tólbútamíðs og annarra súlfónýlúreasambanda.
Lyfið getur aukið blóðþéttni fenýtóíns. Rífampicín styttir og hýdróklórtíazíð lengir
helmingunartíma flúkónazóls. Háir skammtar af flúkónazóli
geta hindraó niðurbrot cíklóspóríns og blóðþéttni þess
því hækkað verulega. Þarf því að fylgjast grannt með
cíklóspóríngildum í blóði séu þessi lyf gefin saman.
Skammtastærdir handa fullorönum: Við
Cryptococcasýkingar og alvarlegar Candida-sýkingar er u gefin 400 mg á fyrsta degi,
síðan 200-400 mg á dag í einum skammti. Meðferðarlengd er breytileg en venjulega
allt upp í 6-8 vikur. Fyrir candida sýkingar í hálsi: 50 mg á dag í 1-2 vikur Við sýkingar
í vélinda og þvagfærum: 50-100 mg á dag í 2-4 vikur. Candida sýkingar í fæóingar-
vegi: 150 mg gefið í einum skammti einu sinni. Fyrirbyggjandi meðferð: 50 mg á dag
meðan hætta er talin á sveppasýkingu. Við hættu á alvarlegum endursýkingum getur
þurft að nota 100 mg á dag. Til aö hindra endurtekna heilahimnubólgu af völdum
cryptococca þarf að gefa 200 mg á dag. Vid sveppasýkingum í húö: 50 mg á dag eða
150 mg á viku í 2-4 vikur. Sveppasýkingar á fótum þurfa oftast lengri meðferð eða í
6 vikur. Varúd: Viö skerta nýrnastarfsemi þarf að lengja tíma milli lyfjagjafar eóa
minnka skammta. Útlit: Hylki 50 mg: Hvítt, lengd 15,5 mm. Hylki 150 mg: Hvítt, lengd
19,0 mm. Hylki 200 mg: Hvítt, lengd 21,2 mm.
Pakkningar og verd:
Hylki 50 mg: 7 stk. kr. 4.345,- 30 stk. kr. 15.346,- 100 stk. kr. 46.093,-
Hylki 150 mg: 1 stk. kr. 2.247.- 2 stk. kr. 3.323,- 4 stk. kr. 5.184,-
Hylki 200 mg: 7 stk. kr. 11.456,- 30 stk. kr. 42.567,-
Hámarksmagn sem ávísa má með lyfseóli er sem svarar 30 daga skammti.
sýkin ga r
CANDIZOL
(Flúkónazól)