Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.03.1999, Page 59

Læknablaðið - 15.03.1999, Page 59
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 243 Góð staða lífeyrissjóðsins kom mörgum á óvart - segir Eiríkur Benjamínsson formaður stjórnar Lífeyrissjóðs lækna sem haldið hefur fjölsótta kynningarfundi um lífeyrismál Lífeyrismál hafa verið þjóðinni hugleikin það sem af er árinu, svo er fjölmiðl- um og fjármálafyrirtækjum að þakka en þau hafa dembt yfir okkur miklu auglýsinga- flóði vegna þeirra breytinga sem urðu um áramótin. Þá var fólki leyft að leggja 2% af launum sínum til hliðar á þann reikning sem það kýs og verður hann bundinn þar til viðkomandi nær sextugs- aldri. Þessi Iífeyrir er skatt- frjáls og ofan á hann bætast 0,2% frá launagreiðanda. Ahuginn á lífeyrismálum nær einnig til lækna, það hef- ur Eiríkur Benjamínsson for- ntaður Lífeyrissjóðs lækna fundið. Hann hefur haldið tvo kynningarfundi um lífeyris- mál lækna að undanfömu, annan á Akureyri þar sem yfir 20 manns voru mættir og hinn í Reykjavík þar sem fundar- menn voru á annað hundrað. Þessi mikla aðsókn kom hon- um þægilega á óvart því yfir- leitt hafa fundir um málefni lífeyrissjóðsins verið fámenn- ir. Læknar hafa reyndar fleiri ástæður til að sýna lífeyris- málum áhuga en þær breyt- ingar sem að ofan voru nefnd- ar. Nú um áramótin varð einn- ig sú breyting á starfsemi Líf- eyrissjóðs lækna að Verð- bréfaþing Islandsbanka (VIB) tók við rekstri sjóðsins. Læknablaðið tók Eirík tali og innti hann fyrst eftir ástæðum þessarar breytingar. Auknar kröfur kölluðu á breytingar „Aðdragandi hennar er sá að 1. janúar 1998 tóku ný lög um lífeyrissjóði gildi. Þetta er fyrsta heildarlöggjöfin um líf- eyrismál en með gildistöku hennar aukast kröfurnar á hendur sjóðunum umtalsvert. Þeir þurfa að sinna innri end- urskoðun mun betur og veita sjóðfélögum meiri og ítarlegri upplýsingar. Það er gerð krafa um betri reikningsskil, árs- fjórðungsuppgjör, árlega út- tekt tryggingafræðings á skuldbindingum sjóðsins og fleiri atriði sem ekki var áður gerð krafa um. Við vorum reyndar komin í ákveðinn vanda vegna umfangs sjóðs- ins. Hann er kominn í rúma níu milljarða króna og stækk- aði um milljarð á árinu sem leið. Fjárfestingarmöguleikar eru orðnir miklu fjölbreyttari og flóknari, ekki síst vegna þess að ríkið býður ekki leng- ur upp á sjálfvirka og örugga spamaðarleið í formi húsbréfa og ríkisskuldabréfa. Við stóðum því frammi fyr- ir tveimur kostum. Annars vegar var að auka rekstrar- kostnað sjóðsins, ráða fleiri starfsmenn og bæta við hús- næðið. Hin leiðin var sú sem við ákváðum að fara eftir að hafa ráðfært okkur við fjögur verðbréfafyrirtæki og banka. Við sömdum við VIB um að taka við rekstri sjóðsins og teljum okkur fá þar faglegri og betri vinnu. Það flýtti svo fyrir þróuninni að fram- kvæmdastjórinn veiktist í júní í fyrra. Þá sáum við að annað hvort var að flýta viðræðunum eða ráða nýjan mann og setja hann inn í starfið.“ - Hvaða breytingar hefur þetta í för með sér fyrir sjóðs- félaga? „Við í stjóm lífeyrissjóðs- ins erum sammála stjórn LI um að sjóðurinn sé hluti af kjörum lækna og samstöðu þeirra og að samstarfið um hann verði að vera gott. Þess vegna gerum við ráð fyrir að áfram verði starfsmaður í að minnsta kosti hálfu starfi á skrifstofu félagsins. Sá starfs- maður mun fá þjálfun hjá VIB og til hans eiga sjóðfélagar að geta leitað því hann á að geta veitt þeim öll svör. Læknar geta því eftir sem áður leitað til skrifstofu félagsins og feng- ið þar allar upplýsingar um sjóðinn og stöðu sína. Við hvetjum sjóðfélaga hins vegar til að hafa samband við VIB, ekki síst vegna þess að lífeyrissparnaður er aðeins hluti af fjármálum hvers ein- staklings. Við í stjórn sjóðsins
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.