Læknablaðið - 15.03.1999, Page 70
252
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
um um langt skeið rekið
marga spítala í Reykjavík með
alls kyns útibú, misstóra og
missjálfstæða spítala. Eg
nefni Kleppsspítala, Landa-
kotsspítala og síðan lands-
byggðarsjúkrahúsin sem sum
hver eru í næsta nágrenni við
Reykjavík. Ég er ekki á því að
hin landfræðilega staðsetning
sjúkrahúsa skipti öllu máli
heldur hvað gert er inni í
þeim, hvemig menn halda á
þeim verkum og skipta þeim á
milli sín. Það liggur ljóst fyrir
að sérhæfing er framtíðin en
jafnframt má ekki slíta stóru
sérfræðigreinarnar í sundur, á
því liöfum við ekki efni. Það
þarf að hugsa þennan rekstur
út frá þessu, hvernig sérfræði-
greinum og undirgreinum
þeirra er best fyrir komið. Og í
því verður verkaskiptingin og
sameiningin fyrst og fremst
fólgin.“
Öldrunarþjónusta til
fyrirmyndar
- Þú hefur talað um nauðsyn
þess að sameina vissar deildir
stóru sjúkrahúsanna. Hvemig
fellur það að þeirri röksemd að
viss tvöföldun sé nauðsynleg á
sjúkrahúsunum, meðal annars
til að tryggja ákveðna sam-
keppni því hún bæti þjónust-
una við sjúklingana?
„Samkeppnin á ekki að
vera á milli húsa því sjúkling-
arnir hafa í t'lestum tilfellum
lítið val um hvar þeir lenda.
Hún á að vera á milli lækna og
ég er fylgjandi því að viðhalda
henni. Þeir eiga að keppa sín á
milli í því hvaða þjónustu þeir
veita, hvaða aðferðum þeir
beita og svo framvegis. Eink-
um finnst mér rétt að skoða
hvort hægt er að koma á sam-
keppni milli ríkisrekinnar þjón-
ustu og einkastarfsemi. Þar er
hin eiginlega samkeppni.“
- Margir hafa líka bent á að
ef tekin er ákvörðun um að
hafa bráðaþjónustu á borð við
slysadeild á einhverjum stað
þá kalli það á tilteknar stoð-
deildir, helst undir sama þaki.
„Já, ég held að það sé al-
menn skoðun fólks að slysa-
deildin eigi að vera þar sem
hún er niðurkomin núna. Ég
hef ekki heyrt neinn andmæla
því. Þá kemur þessi ábending
sem þú vísar til. En ég bendi á
að það er verið að starfrækja
ýmsar deildir á báðum sjúkra-
húsunum sem ekki tengist þess-
ari starfsemi gagngert. Ég get
nefnt sem dæmi endurhæfingu,
geðdeildir og öldrunarþjón-
ustu. Þetta þarf ekki að vera í
beinum tengslum við bráða-
þjónustu á hátæknisjúkrahúsi.
Mér finnst rétt að athuga
hvort ekki er hægt að starf-
rækja þessa þjónustu með
sjálfstæðari hætti en nú er gert.
Raunar er fyrirkomulag
öldrunarþjónustunnar eins og
það er núna á margan hátt til
fyrirmyndar. A stóru sjúkra-
húsunum eru reknar litlar
matsdeildir þar sem lagt er mat
á það hvaða þjónustu aldraðir
sjúklingar þurfa á að halda.
Þurfa þeir að leggjast inn á
Landakot eða eitthvert hjúkr-
unarheimilanna eða geta þeir
kannski dvalið heima, fái þeir
aðstoð? Það er hins vegar eng-
in þörf á að reka stórar hjúkr-
unardeildir fyrir aldraða inni á
stóru sjúkrahúsunum. Þetta
fyrirkomulag hefur gefið góða
raun. Aðalvandinn er hins veg-
ar að koma fólki út af Landa-
koti, það vantar hjúkrunar-
heimili eða önnur úrræði til að
taka við þeim sem í hlut eiga.
Ég held að þetta gæti orðið
fyrirmynd að skipulagi ýmiss-
ar þjónustu, svo sem endur-
hæfingar."
Ekki nútímalegt að
fjölga rúmum
- Það var skipuð samvinnu-
nefnd sjúkrahúsanna sem í
eiga sæti fulltrúar frá þeim.
Var ekki í raun verið að búa til
nýja sameiginlega stjórn fyrir
bæði sjúkrahúsin?
„Það er nú of mikið sagt.
Formlega hefur þessi nefnd
ekkert vald því allt það sem
hún kemur sér saman um
verður að bera undir stjórnir
sjúkrahúsanna til samþykktar
eða höfnunar. Hins vegar má
alveg segja að þessi sam-
vinnunefnd hafi fengið mjög
veigamikil stefnumótandi
verkefni. Þau hafa komið frá
Heilbrigðisráðuneytinu og eru
fyrst og fremst skýrsla fag-
hóps um nokkra málaflokka.
Þar er bæði að finna nýjar
hugmyndir að breytingum,
jafnvel bryddað upp á alveg
nýrri starfsemi, og einnig eldri
tillögur sem ekki hafa komist
til framkvæmda. Þá er fjallað
um marga þætti sem eru með
svipuðum hætti hjá báðum
stofnunum, svo sem upplýs-
ingamál, gagnaskráning og
sjúkraskráning, heimatengd
þjónusta og göngudeildir. Það
er einmitt á þessum sviðum
sem nýjungamar verða til. Það
er ekki stefnan í dag að fjölga
sífellt sjúkrarúmum heldur er
það öflugri starfsemi göngu-
deilda, skammtímainnlagnir
og ýmislegt sem leyst er í
tengslum við sjúkrahúsin en
ekki gagngert innan veggja
þeirra.“
Umhyggja fyrir
starfsmönnum
- Þú nefndir áðan að við
sjúkrahúsunum blasti að
koma að gerð kjarasamninga
við fjölmarga hópa sem starfa
hjá sjúkrahúsunum. Nú er það