Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.03.1999, Side 76

Læknablaðið - 15.03.1999, Side 76
256 LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 um sem ekki hafa fengið næg- an undirbúningstíma og verða því á stundum handahófs- kenndar. Þetta hefur óþarfa kostnað í för með sér auk þeirrar óvissu sem þetta veld- ur hjá starfsfólki.“ - Ert þú maðurinn til að skapa frið í kringum starfsem- ina? „Um það skal ég ekki segja. Hins vegar held ég að það sé mjög brýnt að umræðan um heilbrigðismál einkennist af meira jafnvægi en verið hefur undanfarin ár. Hún hefur ein- kennst af peningaerfiðleikum, starfsmannadeilum og upp- hlaupum sem er ekki heppi- legt. En ég hef, að ég held, ekki skapað ófrið við að koma í stofnanirnar og ekki mætt öðru en velvilja hjá þeim sem þar starfa. Eg hef metnað til að skapa annað viðhorf til starfseminnar almennt. Þegar leitað er til almennings er mjög skýrt að fólk vill fá góða þjónustu og margir eru reiðu- búnir að greiða fyrir það.“ Einkavæðing og betri brýr - Þú hefur sett fram hug- myndir um einkavæðingu ákveðinna þátta í rekstri sjúkrahúsa og nefnt í því sam- bandi röntgendeildir og rann- sóknarstarfsemi. Ert þú boð- beri einkavæðingar í heil- brigðiskerfinu? „I því sambandi ber á það að líta að einkaaðilar sjá um ýmsa þætti heilbrigðismála og það hefur færst í vöxt. Ein af ástæðunum fyrir því er sú að margt af því sem áður var gert á spítölunum þarf ekki lengur að vinna á sjúkrahúsi. Þar hef ég nefnt myndgreiningu, rann- sóknarstarfemi og ýmis ferli- verk. Að vissu leyti hafa spít- alarnir sjálfir verið að leysa hlutina ineð öðrum hætti en áður, á göngudeildum svo dæmi sé nefnt. Spurningin er sú hvort menn vilji færa aukna starfsemi af spítölunum út í einkaumhverfið. Þar sem svo háttar til að komin er á samkeppni við einkaaðila, eins og raunin er í rannsóknarstarfi og mynd- greiningu, þá hlýtur sú spurn- ing að verða áleitin hvort ekki sé rétt að leyfa þessum deild- um sjúkrahúsanna að taka þátt í samkeppninni á jafnréttis- grundvelli. En ég legg áherslu á að viss verkefni verða aldrei unnin nema á sjúkrahúsum. Þau eru líka nauðsynlegt öryggi fyrir einkaaðilana sem gætu ekki haldið uppi sinni starfsemi án þess. Eg hef áður nefnt að ég telji Lækna- blaöiö á netinu: http://www.icemed. is/laeknabladid að göngudeildarþjónustu sjúkrahúsanna þurfi að efla og fækka á móti sjúkrarúmum. Þeim hefur reyndar fækkað um 130-150 á síðasta áratug. En það er ekki fjöldinn sem slfkur sem skiptir máli heldur hverjir liggja í þeim. Það segir sig sjálft að það er dýrt að hafa sjúkling liggjandi í rúmi á hátæknisjúkrahúsi þar sem dagurinn kostar 50.000- 100.000 krónur þegar hann væri betur kominn á hjúkr- unarheimili þar sem dagurinn kostar 10-20.000 krónur. Það þarf að byggja betri brú á milli þess annars vegar að vera heima og njóta göngudeildarþjón- ustu eða vera á hjúkrunar- heimili og hins vegar að leggj- ast inn á hátæknisjúkrahús til sérhæfðrar meðferðar.“ - Sjúkrahúsin hafa að und- anförnu mátt sæta því að sterk fyrirtæki á borð við Islenska erfðagreiningu hafa haslað sér völl á sviði þar sem sjúkrahús- in voru svo til einráð. Þessi nýju fyrirtæki hafa boðið góð kjör og laðað til sín marga góða starfsmenn. Eiga sjúkra- húsin ekki erfitt með að mæta þessari samkeppni? „Það er alveg rétt en það er engin ný bóla að einkafyrir- tæki kaupi góða starfsmenn út úr ríkisstofnunum enda fjöl- margir þeirra vel menntaðir og hafa yfir verðmætri reynslu að ráða. Þetta ásamt mikilli eftirspurn á vinnumarkaði al- mennt hefur upp á síðkastið gert sjúkrahúsunum erfitt að ráða til sín starfsfólk og halda því. Atök um kjör við nokkrar heilbrigðisstéttir á síðastliðnu ári mótuðust af þessu. Eg vil leggja mig allan fram um að úr þeim dragi," sagði Magnús Pétursson. -ÞH
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.