Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.03.1999, Page 95

Læknablaðið - 15.03.1999, Page 95
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 271 FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á AKUREYRI Sérfræðingur í geðlækningum Staöa sérfræðings í geðlækningum á geðdeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri er laus til umsóknar. Umsækjandi skal hafa fullgild réttindi í geðlækningum. Starfinu fylgir vaktaskylda á geðdeild FSA. Læknirinn tekur þátt í kennslu og þjálfun aðstoðar- og deildarlækna, ásamt kennslu heilbrigðisstétta svo og þátttöku í rannsóknarvinnu. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum sjúkrahúslækna og möguleiki er á ferliverkasamningi. Deildarlæknir Staða deildarlæknis á geðdeild FSA er laus til umsóknar frá 1. júlí 1999. Staðan er veitt til sex mánaða með möguleika á framlengingu. Læknirinn fær í starfi sínu leiðsögn og kennslu hjá fjórum geðlæknum deildarinnar og auk þess kost á að sækja fræðslufundi og námskeið á starfstímanum. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt upplýsingum um fræðilegar rannsóknir og ritstörf, auk kennslustarfa. Umsóknir, á þar til gerðum eyðublöðum sem fást hjá landlæknisembættinu, ásamt meðfylgjandi gögn- um skulu berast í tvíriti fyrir 31. mars 1999 til Þorvaldar Ingvarssonar, lækningaforstjóra FSA, 600 Akureyri. Upplýsingar um stöðurnar veitir Sigmundur Sigfússon, yfirlæknir geðdeildar og lækningaforstjóri í síma 463 0100, bréfsíma 462 4621, netfang: thi@fsa.is Yfirsálfræöingur Staða yfirsálfræðings á geðdeild FSA er laus til umsóknar frá 1. júlí 1999. Umsækjendur skulu hafa framhaldsmenntun í klínískri sálarfræði. Umsóknir um starfið með upþlýsingum um menntun og fyrri störf óskast sendar Sigmundi Sigfússyni, yfirlækni, sem gefur nánari upplýsingar í síma 463 0100. Umsóknarfrestur er til 31. mars 1999. Yfiriðjuþjálfi Staða yfiriðjuþjálfa á geðdeild FSA er laus til umsóknar frá 1. september 1999. Með yfiriðju- þjálfa er gert ráð fyrir að starfi annar iðjuþjálfi sem aðallega sinnir sjúklingum í dagvist og aðstoðarmaður í hálfu starfi. Umsóknir um starfið með upplýsingum um menntun og fyrri störf óskast sendar Sigmundi Sigfússyni, yfirlækni, sem gefur nánari upplýsingar í síma 463 0100. Umsóknarfrestur er til 31. mars 1999. Geðdeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri veitir bráðaþjónustu, meðferð og endurhæfingu vegna geðsjúkdóma og sálræns kreppuástands. Deildin þjónar fyrst og fremst íbúum Norður- og Austurlands. Árlega eru 150-200 innlagnir í 10 sólarhringsrými í aðalbyggingu sjúkrahússins og að jafnaði fá 12-14 sjúklingar þjónustu í átta rýmum á nýrri dagdeild geðdeildar á Skólastíg 7. Reynt er að sinna vaxandi fjölda beiðna um ráðgjöf við aðrar deildir og stofnanir, svo og um meðferð sjúklinga án innlagnar. Sam- starf er um rannsóknir við geðdeild Landspítalans. Á deildinni starfa geðlæknar, deildarlæknir, læknafulltrúi, hjúkrunarfræðingar, sálfræðingar, iðjuþjálfar, félagsráðgjafi, sjúkraliðar og aðstoðarfólk. Ennfremur eiga sjúklingar geðdeildar kost á kennslu. Við ráðningu verður lögð áhersla á faglega þekkingu ásamt áherslu á persónulega hæfni umsækjenda til að starfa með geðsjúkum og til samskipta, samvinnu og sjálfstæðra vinnubragða. Öllum umsóknum um störfin verður svarað. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. - reyklaus vinnustaður -
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.