Læknablaðið - 15.09.1999, Blaðsíða 85
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
743
hávær á köflum. Hafið þið
merkt að hún hafi haft einhver
áhrif á faraldurinn?
„Fyrstu dagana eftir versl-
unarmannahelgi þóttumst við
sjá að eitthvað væri að draga
úr þessu en svo fjölgaði til-
fellum á nýjan leik. Það er
hins vegar of snemmt að segja
til urn það.
Umræðan um kampýló-
bakterfaraldurinn hófst í vor
en náði greinilega ekki eyrum
almennings því það dró ekkert
úr sýkingum. Þess vegna
ákváðum við að birta dálítið
áberandi auglýsingar í blöð-
unum í júlí, á sama tíma og
verslanir voru að auglýsa kjúk-
linga fyrir helgamar. Þetta olli
svolitlum titringi en aðalmálið
var að koma boðskapnum á
framfæri, hvernig menn eiga
að meðhöndla matvæli.“
- Hver hefur fjölgun tilfell-
anna verið?
„Ef við lítum á júlímánuð
þá voru tilfellin níu árið 1997,
í fyrra voru þau 50 og í ár 103.
Svipaða sögu er að segja um
aðra mánuði, það hefur orðið
allt upp í fjórföldun rnilli ára,
en júlí hefur verið verstur. Við
emm nú að horfa á hlutfalls-
tölur sem em langt umfram
það sem gerist á Norðurlönd-
um.“
- Er það grilltíminn sem
hefur þessi áhrif?
„Já, við höldum að það hafi
sín áhrif að þá koma til skjal-
anna grillmeistarar, karlarnir
sem ekki eru vanir að búa til
mat svona dags daglega. Og ef
þeir fá sér í glas með eins og
stundum vill brenna við þá
getur tilkoma þeirra verið
áhættuþáttur.“
Ekki vitað um ástæður
faraldursins
- Þú nefndir alvarlega fylgi-
kvilla, hefur sjúkrahúsinn-
lögnum af völdum kampýló-
bakter fjölgað?
„Já, það hefur orðið greini-
leg aukning á þeim. Árið 1997
voru lagðir inn á Landspítal-
ann og Sjúkrahús Reykjavíkur
níu manns vegna kampýló-
baktersýkinga, í fyrra voru
þeir 18 og það sem af er þessu
ári eru innlagnirnar orðnar 19.
Þetta sýnir hversu alvarlegt
mál er á ferðinni því fólk er
orðið verulega veikt þegar það
treystir sér ekki til að vera
heima. Einkennin geta verið
mismikil og við teljum að í
raun hafi 10-20 sinnum fleiri
smitast en sem nemur fjölda
þeirra sem hafa greinst með
sýkingu.“
- En þú nefndir líka að ekki
væri vitað hvað veldur þessari
fjölgun sýkinga núna.
„Nei, það er alls ekki ljóst.
Ég hef skoðað tölur frá ná-
grannalöndum okkar og í Nor-
egi og Svíþjóð hefur orðið
töluverð aukning tilfella þótt
ekki sé hún neitt í líkingu við
það sem hér er að gerast. Þar
hafa menn varpað fram þeirri
kenningu að ein ástæðan sé sú
að mengað yfirborðsvatn ber-
ist í vatnsból. Kannski þarf að
skoða vatnsbólin hér á landi.
Starfsfólk sýkladeildar
Landspítalans hefur spurt fólk
sem þangað leitar um hugsan-
legar ástæður fyrir kampýló-
baktersýkingu. Kjúklingar
koma þar oft við sögu en þá
þurfa menn að hafa í huga að
vinsældir þeirra hafa aukist
mikið og líkurnar á því að fólk
hafi neytt þeirra dagana áður
en það veikist eru því meiri en
áður. En hvort það er eina
ástæðan fyrir smiti vitum við
ekki,“ segir Haraldur Briem.
Því má bæta við að ríkis-
stjórnin samþykkti í ágúst að
veita þremur milljónum króna
til sérstaks átaks í rannsókn-
um á smitleiðum kampýló-
bakter.
-ÞH
Könnun á tóbaksnotkun lækna
Stjórn LÍ hefur ákveðið að
kanna meðal félagsmanna
sinna ýmislegt varðandi tób-
aksnotkun þeirra. Könnunin
mun fara þannig fram að
sendur verður spurningalisti
til félagsmanna. Spurningarn-
ar eru hinar sömu og sendar
eru félögum í mörgum öðrum
Evrópulöndum á þessu ári, að
frumkvæði European Forum
of Medical Associations
(EFMA).
Að auki verða ef ti! vill
nokkrar spurningar teknar úr
spurningalista þeim sem Tób-
aksvarnanefnd hefur notað til
margra ára til að kanna tób-
aksnotkun meðal íslensku
þjóðarinnar. Að sjálfsögðu
verður könnunin framkvæmd
með nafnleynd og væntir
stjórnin góðrar samvinnu við .
félagsmenn í þessu máli.
Starfsmenn LI ásamt undir-
rituðum munu standa að fram-
kvæmd könnunarinnar fyrir
hönd stjórnar.
Pétur Heimisson
læknir Egilsstöðum