Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1998, Síða 42
40
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84/FYLGIRIT 36
almennings en einnig til lækna og annarra heil-
brigðisstétta. Einnig er hlutverk stöðvarinnar að
safna saman nákvæmum upplýsingum um eitranir á
íslandi og að gera gagnagrunn yfir ýmis efni sem
framleidd eru á íslandi og gætu valdið eitrunum. Þá
er stöðinni ætlað mikilvægt forvarnarstarf með
upplýsingum til almennings. Við stöðina starfa þrír
fastir starfsmenn, læknir sem er sérfræðingur í
bráðalækningum og klínískri eiturefnafræði, einn
lyfjafræðingur í fullu starfi og lyfjafræðingur frá
Rannsóknastofu HÍ í lyfjafræði með sérþekkingu á
eiturefnafræði. Auk þess vinna læknar sjúkrahúss-
ins og lyfjafræðingar að ýmsum verkefnum vegna
stöðvarinnar og hjúkrunarfræðingar taka á móti
fyrirspurnum, veita ráðleggingar og vísa þeim
áfram eftir því sem ástæða er til hverju sinni.
Stöðug bakvakt er á vegum stöðvarinnar.
Á þeim þremur árum sem stöðin hefur starfað
hefur fyrirspurnum farið fjölgandi, úr 552 árið
1995 en 740 árið 1997. Langflestar fyrirspurnir
bárust vegna barna yngri en sex ára, eða 60% allra
fyrirspurna. Árið 1997 leitaði móttökuhjúkrunar-
fræðingur ráðgjafar í 64% tilfella og 12% var vísað
á sjúkrahús, heilsugæslustöð eða læknavaktina. Um
var að ræða lyfjaeitranir í 40% tilfella en aðrar eitr-
anir í tæplega 60% tilfella.
Unnið er að því að kynna Eitrunarupplýsinga-
stöðina betur meðal almennings, meðal annars í
samvinnu við Slysavarnafélag íslands.
E-34. Hættulegar aukaverkanir kíníns
Þorvarður R. Hálfdanarson*, Runólfur Pálsson*,
Agnes Smáradóttir*, Vilhelmína Haraldsdóttir*,
Þórður Sverrisson**, Sigurður B. Þorsteins-
son***, Ásbjörn Sigfússon****
Frá *lyflœkningadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur,
**augndeild og ***lyflœkningadeild Landspítal-
ans, ****Rannsóknastofa Háskólans í ónœmis-
frœði
Inngangur: Kínín er lyf sem notað hefur verið
gegn mýrarköldu en á síðari árum einkum verið
beitt gegn vöðvakrömpum í fótlimum. Aukaverk-
anir kíníns eru margvíslegar og geta verið alvarleg-
ar til dæmis sjón- og heyrnarskerðing, hjartsláttar-
truflanir og lost. Á síðustu árum hefur verið lýst til-
fellum af blóðfrumnafæð, blóðstorkusótt (dissem-
inated intravascular coagulation, DIC) og hemolyt-
ic-uremic syndrome (HUS). Við greinum frá sex
tilfellum alvarlegra aukaverkana kíníns sem upp-
götvast hafa hérlendis á undanförnum árum.
Efniviður og aðferðir: Farið var yfir sjúkraskrár
umræddra sjúklinga og sérstaklega litið eftir
klínískum einkennum, blóðfrumnafæð, DIC og
skerðingu á nýrnastarfsemi.
Niðurstöður: Allir sjúklingarnir voru konur á
aldrinum 50-80 ára og tóku þær kínín vegna vöðva-
krampa i fótlimum. Fjórar höfðu endurtekin köst
með hita, hrolli, ógleði og uppköstum, þar af voru
tvær með kviðverki. Köstin komu jafnan um miðja
nótt og vöruðu stutt. Tvær höfðu blóðleysi, fækkun
á hvítum blóðkornum og blóðflögum og hafði önn-
ur þeirra merki um DIC. Ein kona fékk bráða kvið-
verki og háan hita og reyndist hafa HUS. Nýrnabil-
un var svæsin og lét ekki undan plasmaskiptum og
sterameðferð. Sjúklingur er nú í blóðskilunarmeð-
ferð vegna nýrnabilunar. Sjúklingur fékk síðar ann-
að kast með svipuðum einkennum ásamt hvítkorna-
fæð og DIC. Ofangreindar fimm konur voru lagðar
endurtekið inn á sjúkrahús og algengt var að grun-
ur léki á blóðsýkingu. Þrátt fyrir að jafnan væri
spurt um lyfjanotkun fengust upplýsingar um notk-
un kíníns ekki fyrr en seint og um síðir. í öllum til-
vikum höfðu konurnar tekið eina kíníntöflu fáein-
um klukkustundum fyrir upphaf einkenna. Nokkra
sérstöðu hefur greindarskert kona sem tók inn fá-
einar kíníntöflur í bræðiskasti og missti alla sjón
skömmu síðar. Augnbotnabreytingar voru dæmi-
gerðar fyrir kíníneitrun og hjartarafrit var afbrigði-
legt. Blindan varð varanleg.
Umræða: Ofangreindar aukaverkanir kíníns eru
vel þekktar. Sýnt hefur verið fram á kínínháð
mótefni sem líklega orsök eyðingar blóðfrumna og
eiga þau mögulega þátt í bráðum æðaþelsskaða sem
er einkennandi fyrir HUS. Óvenjulegt er að nýrna-
bilun sé óafturkræf hjá sjúklingum með HUS af
völdum kíníns. Sjónskerðing er skammtaháð eitur-
verkun kíníns en sjaldgæft er að sjúklingar verði
varanlega blindir. Mikilvægt er að hafa kínín í huga
hjá sjúklingum með óskýrð hitaköst, blóðfrumna-
fæð eða HUS. Nauðsynlegt er að ábendingar fyrir
notkun kíníns séu vel ígrundaðar. Kínín er selt án
lyfseðils en vegna hættu á alvarlegum aukaverkun-
um má deila um hvort það sé réttlætanlegt.
E-35. Heilsufar íslenskra unglinga á
aldrinum 11-18 ára sem eiga við áfengis-
og fíkniefnavanda að stríða
Helga Hannesdóttir*, Þórarinn Tyrfmgsson**
Frá *geðdeild Sjúkrahúss Reykjavíkur, **Sjúkra-
luisinu Vogi
Inngangur: Markmið með rannsókn þessari er
að meta algengi geð- og atferlisvandamála meðal
unglinga á landinu öllu og bera niðurstöður við 103
unglinga sem eiga við áfengis- og fíkniefnavanda
að stríða og hafa verið lagðir inn á Sjúkrahúsið Vog
til afeitrunarmeðferðar.
Efniviður og aðferðir: Spurningalistum Achen-
bachs (Youth Self Report) var dreift til úrtaks ung-