Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1998, Blaðsíða 83
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84/FYLGIRIT 36
75
V-7. Heilkenni n. interossei anterioris
Guðjón Jóhannesson*, Halldór Jónsson**
Frá *taugalœkningadeild og **bœklunarlœkninga-
deild Landspítalans
Þessu heilkenni, þar sem um er að ræða lömun
bundna við n. interosseus anterior, var fyrst lýst
1948 af Parsonage og Turner. Hér er lýst þremur til-
vikum sem við höfum séð nýlega. Lýst verður
klínískum og elektrófýsíólógískum niðurstöðum og
þær ræddar.
V-8. Stofnanavistun aldraðra frá
Sjúkrahúsi Reykjavíkur
Eiríkur Ragnarsson, Arscell Jónsson, Pálmi V.
Jónsson
Frá öldrunarsviði Sjúkrahúss Reykjavíkur Landa-
koti
Inngangur: Miklir hagsmunir felast í því fyrir
bráðasjúkrahús að öldrunarþjónustan sé skilvirk og
fólk útskrifist heim eða á stofnun án tafa þegar
meðferð er lokið. Undanfarin ár hafa verið erfið í
Reykjavík vegna skorts á hjúkrunarrýmum.
Efniviður og aðferðir: Stuðst er við biðlista
öldrunarsviðs Sjúkrahúss Reykjavíkur og vistunar-
lista Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar á
tímabilinu september 1997 til og með febrúar 1998.
Aflað var upplýsinga frá Heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytinu um fjölda vistrýma eftir byggðar-
lögum og á landinu öllu.
Niðurstöður: Meðaltal sex vetrarmánaða hjá
Sjúkrahúsi Reykjavíkur sýnir að í hverjum mánuði
eru 83 (71-90) sjúklingar í bið eftir hjúkrunarplássi
(á legudeildum öldrunarsviðs 54, dagspítala og
móttöku 21 og öðrum legudeildum sjö). A sama
tímabili fengu aðeins 11 (6-15) sjúklingar frá
Sjúkrahúsi Reykjavíkur varanlega vistun á hjúkr-
unarheimili á mánuði. Þegar litið er á landið í heild
teljast 13,3 vist- og hjúkrunarrými vera í notkun
fyrir 100 íbúa 70 ára og eldri, fæst eru þau í
Reykjavík eða 10,2, en 22,4 rými þar sem þau eru
flest á landsbyggðinni. Yfirlit yfir metnar þarfir,
samkvæmt vistunarmati aldraðra fyrir landið allt
sýnir að í janúar 1998 voru 202 aldraðir einstak-
lingar taldir í mjög brýnni þörf fyrir vistun í hjúkr-
unarrými. Þar af voru 136 (67%) búsettir í Reykja-
vík.
Ályktanir: Verulegar hreyfingar eru á biðlistum
öldrunarsviðs Sjúkrahúss Reykjavíkur sem endur-
nýjaður er vikulega. Fjöldi þeirra einstaklinga sem
eru í bið eftir varanlegri vistun frá sjúkrahúsinu er
einnig breytilegur frá einum mánuði til annars. Á
sex mánuðum eru biðlistarnir í hvikulu jafnvægi
sem svarar til um þriggja legudeilda á sjúkrahús-
inu. Það þyrfti 120 vistrými til viðbótar á hjúkrun-
arheimilum í Reykjavík til að skapa eðlilegra jafn-
vægi hinna löngu biðlista á Sjúkrahúsi Reykjavík-
ur. Það kæmi til móts við metnar þarfir hinna öldr-
uðu og myndi jafnframt bæta öldrunarþjónustu
sjúkrahúsanna á Reykjavíkursvæðinu.
V-9. Fas og Fas-Ligand er tjáð saman í
eðlilegri og illkynja brjóstaþekju
*, Þórunn Rafnar*, Jón G. Jónasson**, Kristrún
Olafsdóttir**, Helga M. Ögmundsdóttir*
Frá *Krabbameinsfélagi Islands, **Rannsókna-
stofu Háskólans í meinafrœði
Fas-ligand (FasL) veldur stýrðum frumudauða
með því að tengjast Fas viðtakanum sem tjáður er á
ýmsum frumugerðum. FasL á örvuðum T-dráps-
frumum veldur stýrðum frumudauða í markfrumum
og kemur einnig í veg fyrir offjölgun örvaðra eitil-
frumna.
Nýlega hefur verið sýnt að æxlisfrumur úr mönn-
um (sortuæxli, krabbameinsfrumur úr lifur og lung-
um) tjá FasL. Þessar illkynja frumur geta valdið
stýrðum frumudauða í T frumulínum sem tjá Fas og
geta því komist undan eftirliti ónæmiskerfisins.
Við höfum notað mótefnalitun til að kanna tján-
ingu Fas og FasL á eðlilegum og illkynja brjósta-
vef. Tvílitun með flúrskini sýndi að Fas og FasL
eru tjáðir saman á kirtilfrumum úr eðlilegum
brjóstavef úr brjóstaminnkunaraðgerðum. Mót-
efnalitun með peroxíðasa merkingu á formalín fest-
um sýnum frá 76 brjóstakrabbameinssjúklingum
sýndi að Fas og FasL voru tjáðir í meira en 90%
æxlanna.
Þessar niðurstöður eru því ekki samhljóða rann-
sóknum á öðrum æxlistegundum sem sýndu aukna
tjáningu FasL og minnkaða tjáningu Fas. Niður-
stöður okkar sýna að tjáning Fas og FasL er ekki
breytt í brjóstakrabbameini.