Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1998, Blaðsíða 48
42
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84/FYLGIRIT 36
Parsonett Clevland Tuman
__________________Stig (%)* Stig (%)* Stig (%)*
Lítil áhætta 0-9 (2) 1-3 (6) 0-5 (5)
Aukin áhætta 10-14(6) 4-6 (0)
Mikil áhætta 15-19(7)7-9(24) 6-9 (16)
Mjög mikil áhætta >20 (21) >10(43) >10 (50)
*(%) Sýnir dánarhlutfall.
Þeir sjúklingar, sem hafa litla áhættu með öllum
þessum aðferðunt, hafa góðar horfur. Ahættan í
hærri áhættuflokkunum er tiltölulega lág þrátt fyrir
alvarlegt heilsufarsástand sjúklings.
Alyktanir: Allar aðferðirnar höfðu góða mögu-
leika á að skilja rnilli lítillar og mikillar áhættu fyr-
ir lífshorfur fyrsta árið eftir kransæðaaðgerð.
Rosknir kransæðasjúklingar með aðra alvarlega
sjúkdóma, geta gengist undir kransæðaaðgerð með
viðunandi lífshorfum.
E-38. Lungnastarfsemi og áreynslupróf
hjá sjúklingum 20 og 30 árum eftir að-
gerð á opi á milli gátta og tetralogy of
Fallot
Hjörtur Oddsson*, Kent Wall, Tomas Riesenfeld,
Britt Mari Temested, Inger Grot, Jens Schollin
Frá *Fjórðimgssjúkraiuísimi á Akureyri, Reg-
ionsjukhuset Örebro, Högskolan Örebro og barna-
deild Akademiska sjúkrahússins Uppsölum
Inngangur: Undanfarin 40 ár hafa mörg börn
gengið í gegnum hjartaaðgerðir vegna meðfæddra
hjartagalla. Areynslugeta þeirra hefur verið góð, en
viss hópur sjúklinga hefur skert þol. Upplýsingar
um lungnastarfsemi þessara sjúklinga hafa verið
takmarkaðar og lítið vitað um hvernig hún breytist
löngu eftir aðgerð.
Efniviður og aðferðir: Sjúklingar sem höfðu
gengist undir hjartaaðgerð fyrir 1963 í Uppsölum
vegna ops á ntilli gátta (atrial septal defect, ASD)
(n=14) eða vegna tetralogy of Fallot (TOF) (n=l 1)
og voru yngri en 15 ára við aðgerð. Sjúklingar voru
kallaðir til rannsóknar 22 og 32 árum eftir aðgerð.
Meðalaldur við aðgerð var: við TOF 8±3 ár og op á
milli gátta 9±3 ár.
Niðurstöður: Sjúklingarnir voru við góða líðan
að undanteknum tveimur með TOF. Öndunarrýmd
(vital capacity) og FEVi gildin voru lægri bæði 22
og 32 árum eftir aðgerð miðað við samanburðar-
hóp. TOF hópnum versnaði hraðar en hópnum sem
hafði op á milli gátta og sú versnun var mun meiri
en hægt er að skýra með auknum aldri sjúkling-
anna. Sjúklingar með slæma niðurstöðu á áreynslu-
prófi höfðu lélegri lungnastarfsemi. Sex sjúklingar
höfðu einkenni frá lungum og fjórir þeirra voru á
lyfjameðferð vegna lungnaeinkennanna.
Saman-
burðar-
TOF ASD hópur
Vital capacity 1 follow-up 91 ± 12 97± 14 100± 18
Vital capacity 2 follow-up 85± 14 91 ±13 100±19
FEVi 1 follow-up 91 ±20 99±13 I00±18
FEVi____________2 follow-up 81 ±17 91±14 I00±19
Alyktanir: Rannsókn okkar á litlum hópi sjúk-
linga, sem gengust undir hjartaaðgerð sem börn,
bendir til að sú versnun sem verður á lungnastarf-
semi með hækkandi aldri, gerist hraðar hjá þessum
sjúklingum og mesta breytingin verði hjá einstak-
lingunt með alvarlega hjartagalla svo sem TOF.
E-39. Hjartaþelsbólga á íslandi 1986-
1995
Ingólfur Einarsson*, Herbert Eiríksson*, Sigurð-
ur B. Þorsteinsson**, Guðmundur Þorgeirsson**
Frá *Barnaspítala Hringsins, **lyflœkningadeild
Landspítalans
Inngangur: Rannsóknin varðar algengi og sjúk-
dómsmynd hjartaþelsbólgu á íslandi á 10 ára tíma-
bili, 1986 til 1995. Gerð hefur verið samskonar
rannsókn fyrir tímabilið 1976-1985 og eru þær nið-
urstöður hafðar til samanburðar.
Efniviður og aðferðir: Sjúkraskýrslur lands-
manna, sem greindust með hjartalokusjúkdóm
og/eða hjartaþelsbólgu á árunum 1986 til 1995,
verða skoðaðar og mat lagt á réttmæti sjúkdóms-
greiningar. Skráð eru einkenni, áhættuþættir, rann-
sóknarniðurstöður, meðferð og afdrif sjúklinganna.
Niðurstöður: Þegar hafa sjúkraskrár þeirra sjúk-
linga, sem greindust á Landspítalanum 1986-
1994 (níu ár), verið yfirfarnar. Alls greindust 34
sýkingar í 33 sjúklingum. Aldursdreifing var frá
einum mánuði í 86 ár (miðgildi 60 ár), karlar 79%.
Blóðræktanir voru jákvæðar í 28 tilvikum (82%),
algengustu sýkingavaldar voru stafýlókokkar (12),
þar af S. aureus í 11 tilvikum og streptókokkar (11),
þar af viridans í sex tilvikum. í þremur tilvikum
ræktuðust Actinobacillus actinomycetemcomitans.
Candida albicans ræktaðist í eitt skipti, svo og
Clostridium perfringens og Peptokokkus. Sýking
var oftast í vinstri hluta hjarta (68%).
Algengustu áhættuþættir voru gervilokur/bót 10
tilfelli (29%) og meðfæddur hjartasjúkdómur (án
gerviefna) sex (18%). Tveir einstaklingar höfðu
gengist undir tannaðgerð án viðeigandi fyrirbyggj-
andi sýklalyfjameðferðar. Fjórir sjúklingar (12%)
höfðu ekki sögu um hita, þrír höfðu merki um sýkt-
ar húðbreytingar (septic embolism), en skráning
húð- og augnbotnabreytinga var oft ónákvæm. Hvít
blóðkorn voru yfir 12.000 í 41% tilvika og sökk
yfir 20 í 68%. Ekki heyrðist hjartaóhljóð í 26%
sjúklinga. Hjartaómskoðun var gerð í öllum tilvik-