Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1998, Síða 59

Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1998, Síða 59
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84/FYLGIRIT 36 51 E-56. Faraldsfræðileg rannsókn á iðra- ólgu hjá Islendingum Linda Björk Olafsdóttir*, Hallgrímur Guðjóns- son**, Bjarni Þjóðleifsson**, Rúnar Vilhjálms- son*** Frá *GlaxoWellcome hf, **lyflækningadeild Land- spítalans, ***námsbraut í hjúkrun Hl Inngangur: Faraldsfræðilegar rannsóknir á al- gengi iðrólgu á stóru úrtaki Islendinga hafa ekki verið gerðar hér á landi áður. Með þessari rannsókn fæst góð yfirsýn yfir algengi iðraólgu og ýmis önn- ur einkenni í meltingarfærunum sem tengjast henni. Fyrri rannsókn bendir til þess að iðraólga hjá ungu fólki á íslandi sé algengari en annars staðar. Markmið rannsóknarinnar var að kanna algengi iðraólgu, með sérstöku tilliti til annarra einkenna í meltingarfærum. Einnig að kanna tengsl milli iðra- ólgu og tíðaverkja hjá konum. Efniviður og aðferðir: Spurningalisti, staðfærð- ur fyrir ísland, var sendur út til 2000 einstaklinga á aldrinum 18-75 ára. Spurningalistinn samanstóð af 74 spurningum ásamt einkennalista til útfyllingar. Um 40 spurningar tengjast iðraólgu. Greiningarað- ferð Mannings og einkennaskor var notuð til að greina iðraólgu. Úrtak var fengið hjá Hagstofu ís- lands með heimild tölvunefndar. Framkvæmd rann- sóknarinnar byggði á svokallaðri heildaraðferð (Dillman, 1978). Niðurstöður: Alls bárust 1336 marktæk svöreða 67% (45% karlar, 55% konur). Meðalaldur reyndist 42 ár. Þeir sem greindir voru með iðraólgu reynd- ust vera 30,9% einstaklinga, 25,1% karla og 35,6% kvenna. Tíðni iðraólgu reyndist tvisvar sinnum hærri hjá ungu fólki en því eldra. Nær allir sem greindir voru með iðraólgu voru með verki í kviði (90,2%) og óeðlilegar hægðir (91,9%). Þriðjungur hafði leitað til læknis vegna verkja í kviði. Sýru- tengdir kvillar í meltingarfærum (92%) og þung- lyndi (38%) tengjast iðraólgu. Um þriðji hver ein- staklingur með iðrólgu hefur gengist undir upp- skurð vegna botnlangabólgu á móti fimmta hverj- um einstaklingi sem ekki er með iðraólgu. Ekki voru tengsl á milli menntunar og iðraólgu. Mun algengara er að einstaklingar með iðraólgu telji verki í kviði hafa áhrif á störf sín og einnig eru fjarvistir frá vinnu algengari hjá einstaklingum með iðraólgu. Einstaklingar með iðraólgu taka mun meira inn af verkjalyfjum og bólgueyðandi lyfjum en aðrir. Einnig er marktækt algengara að einstak- lingar með iðraólgu séu með blóð í hægðum, kyng- ingarörðugleika, megrun, astma og verki í kviði sem börn. Tíðaverkir voru marktækt algengari hjá konum með iðraólgu. Ályktanir: Iðraólga er mjög algeng á Islandi, al- gengari en annars staðar. Iðraólga er oft tengd sýru- tengdum kvillum, þunglyndi, botnlangauppskurði, verkjum í kviði á barnsaldri og tíðaverkjum. E-57. Faraldsfræðileg rannsókn á sýru- tengdum kvillum hjá Islendingum Linda Björk Olafsdóttir*, Hallgrímur Guðjóns- son**, Bjarni Þjóðleifsson**, Rúnar Vilhjálms- son*** Frá *GlaxoWellcome hf, **lyflœkningadeild Land- spítalans, ***Námsbraut í hjúkrun Hl Inngangur: íslendingar hafa undanfarin ár verið með mestu notkun lyfja við sýrutengdum kvillum (dyspepsia) á Norðurlöndum. Ástæða var til að rannsaka algengi sýrutengdra kvilla hjá almenningi á íslandi. Efniviður og aðferðir: Spurningalisti, staðfærð- ur fyrir Island, var sendur út til 2000 einstaklinga á aldrinum 18-75 ára. Spurningalistinn samanstendur af 74 spurningum ásamt einkennalista til útfylling- ar. Um 30 spurningar tengjast sýrutengdum kvill- um. Úrtak var fengið hjá Hagstofu íslands með heimild tölvunefndar. Framkvæmd rannsóknarinnar byggði á hinni svokölluðu heildaraðferð (Dillman, 1978). Niðurstöður: Alls bárust 1336 marktæk svöreða 67% (45% karlar, 55% konur). Meðalaldur reyndist vera 42 ár. Um 67% einstaklinga fundu fyrir sýrutengdum kvillum frá efri hluta meltingarvegarins, þar af höfðu 18% slæm eða mjög slæm einkenni og nær allir fundu fyrir verkjum í maga eða kviði. Tíundi hver einstaklingur var með verki í efri hluta kviðar- hols og langflestir sögðu verkinn minnka við það að borða eða taka inn sýrubindandi lyf. Um 7% sögðu verkinn minnka við að taka inn histamín- blokkandi lyf. Verkurinn eykst marktækt við að drekka áfengi hjá þeim sem hafa sýrutengda kvilla, en fjöldi drykkja hefur ekki áhrif. Ekki reyndist marktækur munur hjá þeim sem voru með sýru- tengda kvilla og öðrum, þar sem gallblaðran hefur verið fjarlægð. En marktækur munur var hins veg- ar hjá þeim sem hafa fengið maga- og eða skeifu- garnarsár. Um 9% einstaklinga hafa fengið maga- eða skeifugarnarsár, hjá flestum var það staðfest með speglun. Því verri sem einkennin eru frá efri hluta meltingarvegarins því oftar leita einstaklingar til læknis og eru frá í vinnu. Tengsl eru á milli reyk- inga og sýrutengdra kvilla. 42% sögðust hafa fund- ið fyrir brjóstsviða og 18% töldu brjóstsviðinn lag- ast við að taka inn sýrubindandi lyf, en 7,3% sögðu hann lagast við að taka inn histamínblokkandi lyf. Um 60% kváðust hafa fundið fyrir nábít, 5,8% kváðust finna fyrir nábít einu sinni eða oftar í viku. Mjög sterk tengsl eru á milli astma og nábíts. 92% einstaklinga með iðraólgu hafa sýrutengda kvilla. Því fleiri aspirín-, parasetamól- og bólgueyðandi
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.