Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.12.1929, Blaðsíða 40
230
Amazón-landið.
[Stefnir
Nautgripahjarðir í út-
náð út yfir heimalandið, en nú
hafa auðmenn, og einkum »Guar-
anakongurinn« Jose Faraco, tekið
sér fyrir hendur að koma þessu
efni á framfæri. Guarana er aðal-
drykkur manna í Amazón-landinu.
Indíánar hafa mjög lítið gert að
því að nota sér hinn mikla gróður
landsins. Aftur á móti hefir dýralíf
Amazón-landsins verið þeim mikils-
virði, og þá einkum fiskarnir í fljót-
inu mikla. Amazón-búar eru miklir
fiskimenn, og fiskitegundir í fljótinu
skifta jafnvel þúsundum. Frægastur
er Pirarucufiskurinn, sem verður
um tvær vættir á þyngd og er
veiddur með skutli og dreginn á
land. Þá má og nefna Amazón-
höfrunginn, Boto, sem fer um fljót- .
ið í stórum hópum. Af honum eru
margar kynjasögur sagðar. Hann
seiðir til sín menn og drepur þá
og er hættulegur jafnvel þegar hann
er dauður, því að ef lýsi er unnið
úr lifur hans og notað sem Ijósmeti,
þá veldur það blindu. Fræg er einn-
ig vatnakýrin, Lamantin. Hún kvað
vera skyld fílnum, en lifir eingöngu
í vatni og er veidd með skutli eða
í net. Þar eru og margir hættuleg-
ir fiskar og undarlegir, nokkurs-
konar hrökkálar og önnur kynja-