Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.12.1929, Qupperneq 79
St«fnir]
Frá Alþingi 1929.
269
En auk þess eru það ekki nema
fáein heimili, sem liggja svo við
vatnsafli, að þau geti notið þess-
ara hlunninda. Og enn er það, að
varla geta aðrir ráðist í þetta en
efnamenn, meðan allt hvílir á herð-
um einstaklingsins.
Hvað á þá að gera? Málið þolir
mjög illa biðina. Með hverju árinu
sem líður, verða þéir fleiri og fleiri,
sem brjótast í því, að koma sér
upp einkastöðvum, og það er hroða-
leg fjáreyðsla, ef á annað borð á
að koma upp almennings raforku-
veitum. Það er skaði bæði fyrir
þessa menn og fyrir væntanlegt
orkuveitufélag, því að margir þess-
ir menn eru í hóp efnuðustu manna
í hverju byggðarlagi, og ekki getur
komið til mála að knýja þá til að
vera með í félagsskapnum, meðan
þeir hafa bæði notin og byrðarnar
af einkastöðinni.
Enginn neitar því, að í mikið sé
ráðizt með þessu. Fjárhagsatriðið
er náttúrlega stóra atriðið í þessu
máli. En frumvarpið er líka ein-
mitt komið fram i þeim tilgangi, að
benda á leið gegnum þessa örðug-
leika. Er bent á tvö ráð:
1. Að haga virkjununum svo frá
byrjun, nð þær verði sem ódýrast-
ar og jafnframt sem tryggastar
(sem einnig er niðurfærzla á verði).
2. Að dreifa nokkru af kostnað-
PALL
Postuli
( eftir
MagnúsJónsson.
Bók þessi hefir fengið ó-
venju góða dóma í blöðum
og fímaritum. — Hún er
360 bls., afar vönduð að
frágangi öllura. — Mynd
er framan við og lands-
uppdráttur aftan við.
Bókin er gefin út með styrk
og því seld við afar lágu verði.
Hún kostar:
í kápu........kr. 5,50
Bundin........— 8,50
í skinnbandi . . — 14,50
Fæst hjá flestum bóksölum og
er einnig send gegn póst-
kröfu beint frá útgefanda,
Magnúsi Jónssyni, Laufásveg
63, Reykjavík.
TILVALIN
JÓLAGJÖF.