Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.12.1929, Blaðsíða 93
Stefnir]
Kviksettur.
283
Vetrarfrakkar,
Karlm. Föt,
Kvenkápur,
Kvenkjólar,
Regnfrakkar,
Rykfrakkar,
Matrosföt,
Matrosfrakkar,
Barnakápur.
Divan
Borð
Vegg
Ullar
TEPPI.
SOKKAR
fyrir fullorðna og
börn.
„MAY0“ nærfötin
eru best, fást aðeins i
VÖRUHÚSINU
Golftreyjur
Barnapeysur
Smábarnaföt.
Næríatnaður
allskonar, fyrir
fullorðna og börn.
Álnavörur, mest
úrval hjá okkur
„Getur vel verið, góði minn“,
sagði læknirinn, „ef eg verð ekki
fljótur að fá eitthvað heitt handa
yður“.
Húsbóndi og þjónn.
„Þarf að fara fram rannsókn?“
spurði Priam Farll kl. sex um
morguninn.
Hann sat máttlaus í hæginda-
stólnum. Henry Leek, hans önnur
hönd, var farinn úr þessum heimi.
Hann gat ekki gert sér neina
grein fyrir því, hvernig lífið átti
að verða hér eftir. Og ofan á allt
bættist öll sú rekistefna og um-
stang, sem hlaut að leiða af and-
láti Leeks.
„Nei“, sagði læknirinn glað-
lega. „Alls ekki. Eg var viðstadd-
ur. Snögg lungnabólga í báðum
lungum. Þetta kemur fyrir. Eg
gef dánarvottorð. En þér verðið
náttúrlega að fara og tilkynna
andlátið. ,
Priam Farll sá það strax, að
jafnvel þótt hann losnaði við
rannsókn, hlaut þetta allt að verða
hræóUiga erfitt og andstyggilegt.
Hunn gat ekki séð, hvernig hann
ætti að lifa það af. Hann grúfði
í.ndlitið í höndum sér.
„Hvar eru ættingjar Farlls?“
spurði læknirinn.
„Ættingjar Farlls?“ spurði
hinn, án þess að átta sig.