Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.12.1929, Blaðsíða 48
F R I Ð A R
Eftir Charles
Meiri og öflugri vigbúnaður.
í októberhefti Stefnis var skýrt
frá skoðun Coolidge forseta á þess-
um málum, og heitið að segja síð-
ar frá skoðun Beards prófessors.
Hann ritar um þetta efni tvær
greinar í Harpers Magazine, eitt
af merkustu tímaritum Bandaríkj-
anna.
Fyrri greinina kallar hann „Meiri
og öflugri vigbúnaður“, og hefir
mál sitt með því að gera gys að
því, hve hátiðleg blöðin voru, þeg-
ar þau skýrðu frá undirskrift Kel-
logg-sáttmálans. Hann er, segir
Beard, alveg eftir höfði stjórnmála-
mannanna. Hann er eins og hver
vill. Englendingar eru fúsir að hafna
ófriði allstaðar, nema þar sem Eng-
lendingar verða að taka fastatök-
um »í þágu friðarins og menning-
arinnar«. — Bandaríkin vilja ekki
ófrið, nema þar sem Monroekenn-
ingin neyðir þá til þess að hefjast
handa, eins og t. d. í Suður- og
Miðameríku. Þá getur ekki heldur
náð nokkurri átt að »hafna ófriði«
við menningarlausar þjóðir.
Hvernig stóð á þessari fjarska-
legu sjálfsafneitun stórþjóðanna?
Upphaf Kellogg-sáttmálans mun
koma í ljós, þegar barnabörn okk-
ar fá að sjá í dagsljósinu þau
plögg, sem nú eru geymd og graf-
in í skjalasöfnum utanríkisráðuneyt-
anna. En gangur málanna sýnist
hafa verið þessi: Briand býður
Bandaríkjastjórninni til samkomu-