Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.12.1929, Blaðsíða 75
Stefnir]
Frá Alþingi 1929.
265
hún yrði sett upp. Það er því varla von,
að maðurinn færi að leggja á móti því!
Hér skal ekki farið neitt út í
umræður um það, hvort þessi prent-
smiðjukaup hafi verið skynsamleg.
Það mun reynslan sýna. Það getur
vel verið, að þeir sé margir í land-
inu, sem telja það góða ráðstöfun,
að skera niður fjárveitingar til sam-
göngubóta á landi, til þess að kaupa
prentsmiðju í Reykjavík. Allur skoð-
anamunur um þetta getur horfið í
svip við það að horfa á það, hví-
líkt regin hneyksli öll þessi máls-
meðferð er. Stjórninni er falið að
láta rannsaka málið fyrir næsta
þing. Það er ekki gert. Það er
væntanlega ætlast til þess, að þing-
menn fái svo að kynna sér vel og
rækilega rannsóknina áður en þeir
taka ákvörðun. Það fá þeir ekki
heldur, eða það sem verra er, sum-
ir fá það en aðrir ekki. Hér er
framið svo óheyrilegt brot á þing-
legu velsæmi, að það ætti að réttu
lagi að varða brottvisun þess ráð-
herra, sem þetta fremur. En þó er
ekkert af þessu aðalatriðið. Aðal-
atriðið er það, að um svona mál
átti vitanlega að bera fram frum-
varp til laga, láta það sæta með-
ferð frumvarpa með þrem umræð-
um í hvorri deild og rannsókn
nefnda í báðum deildum. Hér var
bæði um allstórt fjárhagsmál að
Lesarkasafn
Jóns Ófeigssonar er nýjung
sem allir kennarar og foreldr-
ar œttu að kynna sjer. Út eru
komnar um 100 arkir af afar
margvíslegu lestrarefni fyrir
yngri og eldri.
Hver örk kostar 30 aura.
Bindið kostar 50 aura.
Skrá um innihald safnsins
er send hverjum sem þess
óskar, ókeypis.
Bókaverslun
Sigfúsar Eymundssonar.
0OK4VERSIUTW ilGTUSAR L V MyM OiSONAft