Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.12.1929, Blaðsíða 41
StefnLr]
Amazón-landið.
231
jöðrum Amazón-sléttunnar.
dýr. Þar er og Trahira m’boi
íiskurinn, sem hefir bæði tálkn og
lungnapoka, svo að hann getur
lifað á þurru landi. Kemur það sér
vel, því að hann fer upp um mýrar
og flóa, sem stundum þorna alveg.
Þá sækjast íbúarnir og mjög eftir
skjaldbökum og skjaldbökueggjum,
og er talið að um 250 miljónir
skjaldbökueggja sé notaðar á ári
að meðaltali. Fiskur er oft hertur,
og er harðfiskur þessi eitt af því,
sem mest er etið á Amazón-bátun-
um. Ganga þeir milli helztu hafn-
anna við fljótið, svo sem Manaos
og Tabatinga. Ef maður vill halda
lengra en þessir bátar ganga, verð-
ur að fara í róðrarkænu og eiga
alt sitt undir Barackistunum svo-
kölluðu. Þeir hafa sezt að hingað
og þangað meðfram fljötinu, og
reka smá verzlanir. Þeir kaupa tog-
leður og láta safna því, og flytja
til sín langar leiðir þá fáu hluti,
sem togleðursafnararnir vilja fá,
einkum tóbak og brennivín, veiðar-
færi og eitthvað af matvælum. Líf
þessara manna er alræmt. Það er
í viðskiftum við þessa menn, að
Amazón-Indiáninn hefir mótað skap-
gerð sína. Þar var ekki nema um
tvennt að velja: Annaðhvort varð