Sagnir - 01.04.1985, Síða 11

Sagnir - 01.04.1985, Síða 11
VESTURGATA 30 nærföt frá hvirfli til ilja og sokka. Ull- in var aö mestu leyti unnin á heimil- inu. Fyrstu búskaparár þeirra hjóna fór Margrét inn í þvottalaugar meö þvottinn. Lagt var af staö í býtiö á morgnana og komið heim þegar líöa tók á daginn. Til flutninganna var notaöur handvagn. Þetta þótti bæði erfitt og lýjandi starf. Þegar líða tók á 20. öldina var fengin sér- stök þvottakona til aö sjá um þvott- inn. Á Vesturgötu 30 var hins vegar ekkert þvottahús og því varð fjöl- skyldan að fá aðstööu hjá nágrönn- um til þvotta en fyrir hana var greidd ein króna í hvert skipti. Óhætt er aö fullyröa að störf Mar- grétar hafi verið margvísleg, eink- um ef tekið er tillit til þess hve þæg- indi öll voru takmörkuð fyrstu ára- tugina eöa nánast engin á nútíma mælikvarða. Sem dæmi má nefna að eldað var á kolaeldavél og raf- magn kom í húsið árið 1923. Kalda vatnið var leitt í húsið um 1910 og í kjölfar þess kom frárennsli skolps- ins. Vatnssalerni kom ekki fyrr en í kringum 1940. Fram að þeim tíma var notast við útikamar sem stóð norðan við húsið. Gas var lagt í hús- ið árið 1928. Þrátt fyrir lítil þægindi leið fjöl- skyldan aldrei skort, en hafði nóg að bíta og brenna. Það byggðist mest á því hve örugga atvinnu Guðmundur hafði því nærallt árið. Börnin Ekki er það ofsögum sagt að börn þeirra hjóna hafi haft nóg fyrir stafni á bernsku- og æskuárum sínum. Vettvangur leikja þeirra var næsta nágrenni heimilisins og skólans, Slippurinn, fjörurnar og Örfirisey. í tengslum við skólann hafði Tjörnin aðdráttarafl. Systurnar gengu í Barnaskóla ^eykjavíkur frá 10 til 14 ára aldurs. Eftir skólagönguna starfaði Sess- e|ja í Laugavegsapóteki en tók síðan til við kjólasaum heima við eftir pöntun. Sesselja þótti sérlega lagin saumakona og hafði því nóg að gera. Þórdís vann bæði við fiskvinnu og á straustofu Þvottahúss Reykjavik- ur. Báðar héldu þær systur til Dan- merkur, Sesselja á árunum 1927- 29, þar sem hún lærði kjólasaum í Silkihúsinu í Kaupmannahöfn. Þór- dís dvaldist hins vegar í Danmörku á árunum 1929-31. Fyrst var hún í vist hjá dönskum stórkaupmanni en vann síðan í strauhúsi danska ríkis- spítalans. Þeir bræður, Gísli og Haraldur, gengu báðir í Barnaskóla Reykja- víkur, Gísli á árunum 1925-1929. Hann var því tíu ára gamall er hann hóf skólagöngu sína en hafði þó áður verið í tímakennslu í tvö ár. Haraldur byrjaði 8 ára í barnaskól- anum sama ár og Gísli og var þar allt til ársins 1931. Áður hafði hann verið eitt ár í skóla ísleifs Jónsson- ar. Gísli átti einnig að sækja þann skóla en var þar aðeins eina viku vegna veikinda. Báðir voru þeir bræður í sveit á sumrin, Gísli á árunum 1925-1929 og Haraldur fyrst tvö sumur árin 1928 og 1929 en seinna var hann sumarið 1933 í kaupavinnu hjá Magnúsi Þorlákssyni á Blikastöðum í Mosfellssveit. Þannig var í stuttu máli saga fjöl- skyldunnar fram til ársins 1930. En áður en frásögnin af fjórða áratugn- um hefst verður að gera grein fyrir heimildarmönnum, þeim bræðrum Gísla og Haraldi. Báðir eru skýrir og greinargóðir menn og áhugasamir um þjóðlegan fróðleik eins og ýmsir jafnaldrar þeirra. Báðir hafa þeir alið því nær allan sinn aldur á Vestur- götunni og gjörþekkja því sögusvið- ið: eykur það á traustleik heimildar- manna. Þá verður að geta þess að Haraldur mældi upp híbýli og hús- muni og vann þá teikningu sem grein þessari fylgir. Hvundags á fjórða áratugnum Fjölskyldan á Vesturgötu 30 tók daginn snemma. Þau hjón Guð- mundur og Margrét risu úr rekkju á Bræðurnir Haraldur og Gísli Guðmundssynir árið 1921. Myndin er tekin íportinu á Vesturgötu 30. i baksýn er vesturbær Hlíðarhúsa, síðasti bærinn í röð gömlu bæjanna á þessum slóðum. í hvita húsinu, sem sést glitta í til vinstri, var fiskverkun Helga Zoéga. SAGNIR 9
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.