Sagnir - 01.04.1985, Blaðsíða 73

Sagnir - 01.04.1985, Blaðsíða 73
EF UNGIR MENN ... íþróttir, sem gætu kennt þeim bæði, ,,að bera sig vel og karlmannlega og að verja hendur sínar ef á lægi“.11 Þetta er efnislega það sama og Jón sagði í tímariti sínu 15 árum áður. Aðalatriðið er að kenna mönnum að bera sig vel og karl- mannlega jafnvel fremur en að vera til taks að mæta aðvífandi árásar- mönnum. Dýrafjarðarmálið Á þinginu 1857 kom fram annað mál, sem ekki var síður athyglisvert en útboðsmálið. Þannig var að á Al- þingi tveimur árum áður hafði komið fram beiðni frá frönsku stjórninni um að franskir útgerðarmenn fengju aðstöðu til að reisa fiskverkunar- stöð hér á landi og bætta aðstöðu til útgerðar. Talað var um Dýrafjörð sem ágætan stað fyrir þessa bæki- stöð. Stefna Frakka var um þessar mundir að taka fyrir fiskinnflutning annarra þjóða en styðja við bakið á eigin fiskimönnum til sóknar á fram- andi mið og hefði sú aðstaða, sem þeir sóttust eftir að fá á Dýrafirði, aukið að mun hagræði á fiskveiðum þeirra við íslandsstrendur. En það varekki allt. Napóleon III, keisariyfir Frakklandi, ól með sér háar hug- myndir um franska stórveldið og hugði á frekari umsvif eftir sigur þess og Breta á Rússum í Krím- stríðinu 1856. Keisarinn sendi mik- inn leiðangur til Norður-Atlants- hafsins að kanna möguleika á frek- ari útþenslu í norðri og komu leið- angursmenn á land í Reykjavík og á Vestfjörðum. Bretum leist rétt mátu- lega á þessar tiltektir bandamanna sinna og sendu lávarð til íslands að fylgjast með þróun mála.12 Danska blaðið Fædrelandet, helsta málpípa stjórnarinnar í þann tíð, tók jákvæða afstöðu til beiðni Frakka (16. sept. 1856): Leyfum þeim að reisa þar við- skiptastöðvar, sem þeir vilja, ef þaer hafa ekkert hernaðargildi. Leyfum þeim að fiska og versla að vild, ef þeir lúta dönskum lög- um og löggæslu.13 Þjóöólfur, sem Jón Guðmundsson ritstýrði, taldi varasamt að veita Frökkum takmarkalausan afnota- rétt af íslensku landi, því að franska fiskihöfnin hér gæti orðið að her- bækistöð án þess að rönd yrði við reist.14 Hugsunin um að fiskverkunar- stöðin breyttist í herbækistöð hlýtur að hafa verið mönnum kunn á Al- þingi árið 1855 en þeir vissu ekki alveg hvernig þeir áttu að taka á þessari beiðni. Þeir afgreiddu hana með því að vísa henni til stjórn- arinnar í Kaupmannahöfn,15 en Frakkar höfðu einmitt gengið fram- hjá henni með því að senda beiðnina beint til Alþingis íslendinga. Og ekki vissi danska stjórnin hvernig fara bæri með málið eða þá að hún vildi ekki styggja frönsku stjórnina, því hún sendi beiðnina aftur til íslend- inga og var hún því aftur tekin fyrir á þingi árið 1857. Alþingi bárust nokkrar bænar- skrár þar sem fiskverkunarstöðin var afþökkuð. Báðust menn undan því ,,að frakknesk nýlenda verði stofnuð við Dýrafjörð'1.16 Sendar voru ma. þrjár samhljóða bænar- skrár á þingið, sem gerðar höfðu verið á „frjálsum fundi“ í Suður- Múlasýslu og mæltu gegn stöðinni. Ein af ástæðunum, sem tilteknar voru fyrir þeirri bón var að ,,þjóðerni voru Íslendínga geti með því verið hætta búin“.17 Það er nú kannski ekki nema von að Sunnmýlingar hafi haft áhyggjur af óbrotnu ís- lensku þjóðerni í þessu sambandi því svo virðist, eftir því sem Guð- mundur Brandsson, hreppstjóri, frá Landakoti, þingmaður fyrir Gull- bringu- og Kjósarsýslu segir, að um 10.000 Frakkar yrðu settir á land. Óttast Guðmundur þessi það helst að þegar fram í sækti yrðu íslend- ingar „lítið annað en púlsmenn Frakka".18 Jón Sigurðsson talar ekki um Dýrafjarðarmálið á þinginu og verð- ur það að teljast undarlegt því hann er þingmaður ísfirðinga og ætti því málið að hafa staðið honum nær en mörgum öðrum. En hann varforseti þingsins og sem slíkur talaði hann örsjaldan nema sem stjórnandi. í þessu sambandi er rétt að benda á villu Björns Þorsteinssonar sagn- fræðings í Tiu þorskastríöum þar sem hann eignar Jóni forseta ræðu alnafna hans, Jóns Sigurðssonar hreppstjóra frá Tandraseli, sem var þingmaður fyrir Mýrarsýslu og tjáði sig um Dýrafjarðarmálið.19 Það er ekki fyrr en flett er í bréfum þeim, sem Jón forseti átti eftir að skrifa nokkrum árum seinna, að af- staða hans kemur í Ijós. í bréfi til Eiríks meistara Magnússonar frá 18. nóv. 1866, talar Jón um að ís- lendingar séu lítið fyrir að fá Frökk- um fastar stöðvar hér á landi en Eiríkur hafði skrifað Jóni mánuði áður og farið orðum um að Frakkar seildust eftir yfirráðum.20 Jón skrif- ar: Það er enginn efi á, að Napóleon mundi geta þegið okkur, þó land- ið sé nokkuð hart undir tönn. Ef svo langt kæmi, þá þyrfti að vera kjarkur í mönnum, og eg trúi ekki öðru en að Englendingaryrði ekki mikið áfram um, að Frakkar kom- ist þangað norður á fastar stöðv- ar, enda held eg, að landar vorir sjálfir væri lítið fyrir það.21 Jóni er ekki vel við Frakka vegna þess hversu aðgangsharðir þeir eru á miðunum við ísland. Hann kvartar undan ágengni þeirra ma. í Oslóar- blaðinu Christiania Intelligens- sedler og er óánægður með að Frakkar komi hér í stórum hópum að veiða og hafi herskip til varnar sínum fiskiskipum.22 Aftur hafa ís- lendingarnir enga vernd og ekkert bolmagn til að stugga þeim í burtu. Jón segir að Danir telji það of dýrt að veita íslendingum þá vernd sem þeir þurfi.23 í átta ár hafi íslendingar beðið um að eitt eða fleiri herskip yrðu send hingað á hverju sumri24 en allt kom fyrir ekki. í maí árið 1863 sendi hann Jóni Guðmundi Ólafs- SAGNIR 71
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.