Sagnir - 01.04.1985, Side 17

Sagnir - 01.04.1985, Side 17
BJARNABORG Bjarni Jónsson snikkari (1859-1915). Hann var ættadur úr Mosfellssveit og ólst þar upp í mikilli fátækt. Hjá fööur sínum komst hann i kynni við gull-, silfur- og koparsmíðar, auk þess sem hann vann almenn bústörf. Eftir nokkurra ára vinnumennsku réðst hann ísnikkaranám til Reykjavíkurog útskrifaðist með sveinspróf árið 1886. Hann stundaði mublu-, glugga- og hurðasmiðar að vetrum, en húsbygg- ingar á sumrin og óx fiskur um hrygg. Árið 1902 keypti hann sér borgara- bréf og gerðist athafnasamur mjög. Árið 1907 var hann gerður að danne- brogsmanni og skreytir hann sig orð- unni á þessari mynd. Eftir 1909 fór heldurað halla undan fæti hjá Bjarna, hann hafði færstofmikið í fang. Hann lést 56 ára að aldri eftir langvarandi veikindi, slyppur og snauður. olíulampar mest notaðir innandyra, en úti voru gasluktir á hverju götu- horni og var ein þeirra á suðurstafni Bjarnaborgar. Magdalenu og Mar- gréti var það minnisstætt þegar raf- magnið kom í Bjarnaborg í kringum 1922, og Ijósin voru kveikt í fyrsta skipti. Allir íbúarnir höfðu keppst við að kaupa sér fallegar Ijósakrónur, sem þeir kveiktu á, og fóru út á torg til að sjá Ijósadýrðina. Stolt Bjarna snikkara Ijómaði við Vitatorgið, sem var þéttskipað fólki, því Bjarnaborg himaði ótrúlegan mannfjölda. Þétt setið á leigumarkaðinum Þegar Reykjavíkurbær keypti Bjarnaborg árið 1916, fékk Fá- tækranefnd hana til ráðstöfunar5 og veitti fólki í húsnæðisvandræðum. Margir íbúar fengu húsaleigustyrk fyrstu árin, en fáir voru á fátækra- styrk.6 Smám saman féll húsaleigu- styrkurinn niður eftir því sem fólk kom undir sig fótunum. Magdalena og Margrét fluttu inn í Bjarnaborg fyrsta árið sem bærinn átti húsið. Guðrún Gísladóttir, mamma þeirra, stóð þá uppi hús- næðislaus með fimm börn. Odd Guðmundsson, mann sinn, hafði hún misst skömmu áður, en hann var sjómaður. íbúðina fékk hún ekki leigða nema sýna með einhverju móti fram á, að þau gætu séð fyrir sér. Þá varð það til ráða að amma stelpnanna, Magdalena Margrét Sigurðardóttir, og Þorbjörg Gísla- dóttir, móðursystir þeirra, fluttu inn með þeim og fyrirvinnunum fjölgaði. Þau fengu tvö herbergi og deildu eldhúsi með konu nokkurri og þremur börnum hennar, en þau voru í þriðja herberginu. Þetta var algeng skipting, því fjölskyldurnar voru oft jafn margar herbergjunum.7 Frá upphafi fyrri heimsstyrjaldar og næstu tvo áratugi á eftir var mannmergðin mest í Bjarnaborg. Fólkinu fjölgaði jafnt og þétt á með- an húsið var á frjálsum leigumark- aði og 1917, ári eftir að Fátækra- nefnd fékk það í hendur, náði íbúa- fjöldinn hámarki með 168 manns.8 Til marks um þrengslin má nefna að grunnflötur hverrar hæðar er sam- tals um það bil 270 fermetrar,9 sem líkja má við stórt einbýlishús í dag. Það gæti samsvarað því að þar byggju 50-60 manns. Enda var al- gengt að fleiri en einn svæfu í hverju rúmi. Systurnar Magdalena og Mar- grét mundu eftir tólf manna fjöl- skyldu sem bjó í tveimur herbergj- SAGNIR 15
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.