Sagnir - 01.04.1985, Blaðsíða 25

Sagnir - 01.04.1985, Blaðsíða 25
FÉLAGSHYGGJA OG FRELSISÁST róg um fjárhag Sambandsins og ásakanir í garö Hallgríms Kristins- sonar, bæði utanlands sem innan.8 Fullyrðingar Sambandsstjórnarinn- ar um þetta virðast hafa átt við ein- hver rök að styðjast, þó ekki finnist merki þeirra í Reykjavíkurblöðun- um. í Timanum 26. mars 1921 var td. haft eftir samvinnumanni á Aust- urlandi, að þar gengju þær sögur fjöllum hærra að Sambandið væri að fara á höfuðið. í blaðinu sagði að slíkar sögur hefðu verið bornar út um allt land. Einnig var nefnt að ásakanirnar hefðu ekki komið fram í blöðum andstæðinganna, heldur verið breiddar út manna á meðal.9 Samvinnulöggjöf Vorið 1921 samþykkti alþingi lög um samvinnufélög. Samkvæmt lög- unum var aðgangur að samvinnu- félögum öllum frjáls, allir félags- menn báru sameiginlega ábyrgð á öllum fjárreiðum hvers félags og at- kvæðisréttur var jafn. Um úrsögn úr samvinnufélögum gilti að félags- maður eða bú hans að honum látn- um átti að bera ábyrgð á skuldbind- ingum félagsins næstu tvö árin. Samvinnufélög áttu að greiða fast- eignaskatta og útsvar af ágóða vegna viðskipta við utanfélags- menn en samkvæmt lögum um tekju- og eignaskatt, sem einnig voru sett á alþingi 1921, var arður er samvinnufélög greiddu félags- mönnum sínum í árslok undanþeg- in skatti.10 Mjög lítið var rætt um frumvarpið á þinginu. Auk framsóknarmanna naut það stuðnings flestra sjálf- stæðismanna þversum og eldri heimastjórnarmanna. Aðrir þing- menn létu málið að mestu afskipta- iaust, utan Jón Þorláksson. Gagn- Þ/ndi hann einkum hve vítt sam- vinnufélög væru skilgreind, því litla öreytingu þyrfti að gera á lögum hlutafélaga, svo þau gætu talist samvinnufélög. Taldi hann þetta hættulegt vegna þeirra hlunninda sem þau nytu. í öðru lagi gagnrýndi Jón skattaákvæðin og taldi að verið væri að skipta á lítilfjörlegum fast- eignaskatti fyrir sveitaútsvar. Taldi Jón eðlilegra að samvinnufélög greiddu sama útsvar og umboðs- og heildsölur.11 Nokkuð var skrifað í Reykjavíkur- blöðin um samvinnulögin og lögðu andstæðingar samvinnumanna áherslu á, að vegna skattfríðinda samvinnufélaga væri tæpast um samkeppni á jafnréttisgrundvelli að ræða. Félagsmenn væru látnir ganga í ábyrgð á öllum skuldum fé- laganna og út á þessar ábyrgðir hefðu Sambandið og kaupfélögin fengið lán eftir þörfum upp á milljón- ir króna.12 Á Akureyri voru samvinnulögin olía á þann ófriðareld er fyrir var. Gekk þetta svo langt að á aðalfundi Sambandsins í júnílok 1921 var skipuð sérstök nefnd til að rannsaka reikninga Sambandsins og stöðu þess. Nefndin komst að þeirri niður- stöðu að ekkert væri hæft í ,,rógi þeim og kviksögum, er gengið hafa víða um land um það, að Samband- ið væri að fara á höfuðið.“ Staða þess væri eins góð og vænta mætti miðað við þá erfiðleika, sem steðj- uðu að atvinnulífi í landinu. And- stæðingarnir töldu þetta hins vegar kattarþvott af hálfu Sambandsins.13 Morgunblaðið lögsótt í ársbyrjun 1922 dóu deilurnar í Ak- ureyrarblöðunum að mestu út. Um vorið tók aftur á móti að hitna veru- lega í koiunum í Reykjavík. Ástæð- an var sú að landskjör átti að fara fram í júlímánuði. í marsbyrjun skrifaði Garðar Gíslason stórkaupmaður grein í Morgunblaöid þar sem hann deildi mjög á Sambandið. Taldi hann það einn af þeim steinum er stjórnvöld hefðu lagt í götu kaupmanna og að samvinnustefnan hefði hnekkt ís- lenskri verslunarstétt. Sambands- félögin hefðu fengið sérstaka laga- Jón Þorláksson. Hann var eini alþing- ismadurinn sem beitti sér að ein- hverju ráði gegn lögum um sam- vinnufélög árið 1921. vernd, sérréttindi, skattfrelsi og vild- arkjör í viðskiptum við Landsversl- un og Landsbankann. Sambandið væri orðið hringur kaupfélaga í landinu, sem teldi sig ríki í ríkinu, bæði viðskiptalega og pólitískt séð. Aðalgallinn væri þó sameiginlega ábyrgðin á skulda- viðjurnar, samfara ábyrgðarleysi þeirra, sem ráðsmenskuna hafa á hendi.... Bændaverslun verð- ur að standa jafnfætis annarri verslun í landinu, að hlíta sömu lögum, annaðhvort sem pöntun- arfjelög innan sveita, eða hluta- fjelög með takmarkaðri ábyrgð.14 Greinilegt er af grein Garðars að hann taldi Sambandið höfuðóvin verslunarstéttarinnar. Gagnrýni á samvinnufélögin beindist ma. að því að þau hefðu í hyggju að kljúfa þjóðina í flokka eftir því hvort verslað var við kaupmenn eða kaupfélög. Bent var á tengsl- in við Framsóknarflokkinn og að bændum væri att gegn kaupmönn- um og þeim er lifðu af sjávarútvegi. Sambandið hefði beinlínis verið stofnað til „skuldaverslunar í stór- um stíl með ógreiðanlegri sam- ábyrgðarflækju, sem á að ná lands- SAGNIR 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.