Sagnir - 01.04.1985, Page 66

Sagnir - 01.04.1985, Page 66
TÓLF ÁR í FESTUM Frú Sigríður Thorgrímssen (1790- 1878) landfógetafrú. Ingibjörg var hjá henni i sex ár á meöan hún beiö Jóns. Eftir aö Sigríöur varö ekkja flutti hún til Ingibjargar í Kaupmannahöfn og var hjá henni i 22 ár. hún alveg við stjórn heimilisins og annaðist föður sinn í ellinni. Hann dó 1839, eða sex árum eftir að Jón fór út. Sagt var að það hafi verið allerfitt að stunda hann og því reynt töluvert á Ingibjörgu. Þolin- mæði hennar var slík að orð var á gert. Bræður hennar kunnu vel að meta aðstoð hennar og létu hana njóta arfs til jafns við sig, en þá var arfhluti systur helmingi minni en bróður. Arfur hennar var 490 rd I munum, lausafé og húseign.6 Það var töluvert fé; til viðmiðunar má nefna til dæmis að húsaleigan sem þau Jón borguðu fyrir húsnæði fyrsta búskaparárið í Kaupmanna- höfn, voru 200 rd. Eftir lát föður hennar stóð hún á vegamótum. Hún var ung kona í festum og vænti unnusta síns, sem var að koma undir sig fótunum. í rauninni lá það beint við að hann vitjaði hennar, en það gerði hann ekki. Hún hefði getað rofið trúlofun- ina, en mat Jón það mikils að hún beið hans enn og fékk inni hjá vin- konu sinni frú Sigríði Thorgrímsson, konu Sigurðar landfógeta.7 Þessi bið reyndi á þolrifin. ,,Hún er ein- mana... og hefur ekkert að gjöra nema bíða“8, sagði Ólafur bróðir hennar í bréfi til Jóns. Ekki lét hann þá áskorun á sig fá svo að enn beið Ingibjörg. Henni hefur greinilega þótt hann traustsins verður. Ætla má að ýmislegt hafi hér komið til. í fyrsta lagi var hún þegar búin að bíða í sex ár eftir honum svo hvað munaði um eitt til tvö ár í viðbót. í öðru lagi gátu vinsældir hans hafa haft áhrif á afstöðu hennar og í þriðja lagi að rökfærslur Jóns fyrir þessari löngu bið hafi verið traust- vekjandi. Því einhverjar hljóta þær að hafa verið. Hvort ákvörðun hennar hefði ver- ið önnur hefði hún vitað að hún þyrfti að bíða önnur sex ár er ómögulegt að giska á. Dvölin á heimili land- fógetahjónanna varð Ingibjörgu hinn besti skóli. Þar lærði hún ýmis- legt nytsamlegt um rekstur slíks heimilis. Hvað hún sýslaði ná- kvæmlega er ekki hægt að fullyrða, nema þar hefur hún örugglega saumað af kappi, en saumaskap Ingibjargar var við brugðið. Gifting og búskapur Eftir tólf ára bið fékk Ingibjörg að líta unnustann aftur. Hann þótti glæsi- legur í sjón, var orðinn þjóðkunnur maður, nýkjörinn á þing. Giftingin fór fram 4. september 1845. Strax þá um haustið varð Ingibjörg að taka sig upp frá öllu sem hún þekkti og sigla til Kaupmannahafnar, þar sem hennar nýja heimili skyldi verða. Fyrstu árin í Höfn bjuggu þau á Admiralgötu 104, við fremur þröng- an kost. Þau borguðu 200 rd í leigu á ári, en með sparsemi og dugnaði Ingibjargar tókst þeim að ná endum saman.9 Frá 1845-1852 bjuggu þau á þrem stöðum, en haustið 1852 komust þau í það húsnæði, sem þau höfðu til frambúðar. Það var Östervold 48b eða Austurvegg- ur eins og það var kallað.10 Alla tíð reyndi á útsjónarsemi Ingibjargar við búreksturinn. Heim- ilishaldið bar ekki vott fátæktar þó fjárhagurinn væri oft erfiður. Jón var í ýmiskonar vafstri og tekjurnar ekki alltaf öruggar. Hún gekk að „hverju sem hún gjörði með stóru skapi, kappi og atorku“11 og hélt heimilinu fyrirmannlegu. Eftir að þau fluttu að Austurvegg varð heimilishaldið allt viðameira. Maður hennar barst mjög á og bæði voru þau hjón afar gestrisin og bauð Ingibjörg fólki gjarnan heim ,,upp á harðan fisk“. Munu þeirfáir íslendingar, sem til Kaupmannahafnar komu á árun- um 1852-79, hverrar stéttar sem voru, að eigi hafi leitað þangað og borið þaðan eitthvað til nytja eða til skemmtunar.12 Ingibjörg fékk oft sendan mat að heiman. Rjúpur, kjöt og ull fékk hún frá vinkonu sinni, frú Guðlaugu Gísladóttur, konu Gísla læknis Hjálmarssonar.13 Einnig útvegaði Ásgeir Ásgeirsson kaupmaður henni íslenskan mat.14 Það veitti ekki af að fá þessar sendingar að heiman. Stúdentar í Höfn kunnu vel að meta matinn hjá Ingibjörgu. Það var opið hús hjá þeim hjónum einu sinni í viku. Þá fóru þeir þangað að borða. Á eftir borðhaldi bauð Ingi- björg upp á púns, sem sumum þótti þó fremur veikt.15 Þótt stjórn heimilisins mæddi al- veg á Ingibjörgu gaf hún sér tíma til Silfurnisti úr eigu Ingibjargar. Þaö er varöveitt á Þjóöminjasafni. í nistinu er mynd afJóni öörum megin og hár- lokkur af honum hinum megin. Ingi- björg bar þetta nisti um hálsinn. 64 SAGNIR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.