Sagnir - 01.04.1985, Page 81

Sagnir - 01.04.1985, Page 81
FRELSI OG FRAMSÓKN Franskar fiskiskútur viö strendur íslands. Jón Sigurösson vildi aukin samskipti við erlendar þjóðir á sviði viðskipta og versiunar. á þjóðfundinum, og var það sent rík- isþinginu í Danmörku til samþykkt- ar. íslendingar fengu loks verslun- arfrelsi með reglugerð í apríl 1854. Þar með var þó ekki björninn unn- inn, því enn vantaði mikið á að ís- land yrði miðpunktur sinnar eigin verslunar. Til þess að svo gæti orðið urðu landsmenn að láta til sín taka á þessum vettvangi. Hér hafði okkar maður einnig eitthvað fram að færa. Félagsskapur og samtök I greininni um verslunina 1843 benti Jón Sigurðsson á að verslunarfrels- ið muni ekki sjálfkrafa verða til þess að „steiktar krásir fljúgi í munn landsmönnum sofandi". Hann vill að íslendingar undirbúi sig til að taka við verslunarfrelsi og að þeir verði að „reyna sig á fyrirtækjum þeim og samtökum sem við má koma“.18 Hann leggur til að borg- arar í kaupstöðum og útvegsbænd- ur leggi saman í stærri fiskiskip og bæti verkun fiskaflans, að þeir geri tilraunir til að flytja sjálfir út vörur sínar, og að þeir sendi unga menn erlendis til að nema verslun og sjó- mennsku. Loks leggur hann til að bændur taki sig saman, jafnvel heilu sveitirnar, og „kjósi menn til að standa fyrir kaupum af allra hendi fyrir sanngjarna þóknun“.19 Segir Jón að þetta hafi heppnast sums staðar, og mun þá eiga við tilraunir nokkurra forystumanna í Rangár- vallasýslu og víðar með slíka versl- un um 1830.20 Þegar svo verslunar- frelsið er fengið telur hann að þessi háttur muni gera verslunina þrótt- meiri og koma upp duglegum versl- unarmönnum, innlendum. í framhaldi af þessum hugleið- ingum ritar Jón grein í Ný félagsrit árið eftir og má kalla hana fræðslu- þátt um félagsstörf og samtök. Þar segir: Nauðsyn og nytsemd félags- skapar er augljós og margreynd. Eðli mannsins sjálft leiðir til fé- lagsskapar og öll framför mann- kynsins er á félagsskap bygð.21 Hann bendir á, að allt félagsstarf sé bundið skilyrði um frelsi einstak- linga til athafna, en að ófrelsi drepi öll slík samtök í dróma. Þá segir hann að féiagsandinn sé sál þjóð- lífsins og vörður frelsisins. Hann lýsir öflugu félagsstarfi og sam- komuhaldi í Vesturheimi og Bret- landi, og aðdáunin á þessum þjóð- um leynir sér ekki. Þegar horft er til íslands er hins vegar fátæklegt um að litast í þessu efni, og Jón hvetur landa sína til að mynda hverskonar félög og samtök um framfaramál. í atvinnumálum er helsta ráðið að mynda samlög og fyrirtæki til fram- fara í landbúnaði og fiskveiðum, og til að ná fram hagstæðari verslun.22 Hvort sem um áhrif frá Jóni Sig- urðssyni var að ræða, eða það sem SAGNIR 79
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.