Sagnir - 01.06.1994, Side 11
Árið 1767 markar straumhvörf í sigl-
ingum Frakka hingað til lands. Þá er
sendur hingað til lands opinber leiðangur
undir stjórn Kerguelen-Tremarecs er
nánar verður drepið á síðar. I kjölfar hans
fýlgdi annar leiðangur Verdun de la
Crennes í upphafi sjöunda áratugarins.
Það sem eftir lifir aldarinnar er Frakka
lítið getið i íslenskum heimildum. Espi-
hólsannáll getur um strand fransks skips
undir Vesturlandi árið 1784 og varð
mannbjörg. Virðast nokkrir skipbrots-
mannanna hafa byggt sér búð hér og haft
hér vetursetu/’1
Tíu árum síðar kemst hollensk húkk-
orta við illan leik inn á Grundarfjörð, illa
leikin eftir frönsk sjóræningjaskip/’2 Ári
síðar getur „Hra. M. Stephensen sem
constitueraður landfógeti" um brak úr
hollenskum duggum er Frakkar höfðu
leikið illa árið áður.63
Það að hægjast tekur um Frakka í ís-
lenskum annálum þegar líður á átjándu
öldina má ef til vill rekja til þess að Is-
lendingar hafi farið að líta á komur þeirra
sem hversdagslegan atburð. En fleira hef-
ur komið til. Af undangengnu má sjá að
Frakkar hafa verið nær árlegir gestir hér
við land í þau tvöhundruð ár sem hér eru
til umfjöllunar. Flest þessara frönsku
skipa hafa þó eingöngu komið hingað til
hval- eða fiskveiða og þvi eytt litlum
tima í landi nema hjá því væri ekki kom-
ist. Samt sem áður virðast samskipti
þeirra við Islendinga hljóta að hafa verið
allnokkur í ljósi þess hversu mörgum
skipbrotsmönnum skolaði hér á
land. Aðeins tvisvar sinnum senda
frönsk stjórnvöld hingað leiðangra og eru
einu heimildirnar sem við höfum í raun
um álit Frakka á landi og þjóð frá þeim
komnar.
Frönsk stjórnvöld láta að sér
kveða
Þrátt fyrir að fisk- og hvalveiðar Frakka í
Norðurhöfum hafi verið nokkuð um-
fangsmiklar þegar leið á 18.öldina höfðu
stjórnvöld þar á bæ aldrei séð ástæðu til
að senda hingað opinbera leiðangra af
neinu tagi. En á þvi var unnin nokkur
bragarbót árið 1767 þegar leiðangur und-
ir stjórn Kerguelen-Tremarecs var sendur
hingað til lands. Reyndar kvað svo
rammt að leiðangursládeyðu franskra
framámanna að þessi leiðangur var einn
sá allra fyrsti sem frönsk stjórnvöld sendu
i Norðurhöf.64
Tremarec sigldi hingað á freigátunni
La Folle og var yfirlýstur tilgangur ferð-
arinnar að verja franskar fiskiduggur fyrir
Dönum, bæði kaupmönnum og strand-
gæslumönnum. Það var ekkert einsdæmi
á þessum tima að stjórnvöld þeirra landa
sem sóttu á Islandsmið sendu hingað
stríðsskip en það er tvennt sem aðallega
gerir leiðangur Tremarecs athyglisverðan.
Annars vegar að hann ritaði ferðalýsingu
og eins það að hann lagði grunninn að
marktækum staðarútreikningum hér við
Iand.
I ferðalýsingu sinni Rclation d’un uoya-
gc dans la wer du Nord lýsir Tremarec því
sem á daga hans dreif í þau tvö skipti sem
hann kom hingað til lands árin 1767 og
legar skekkjur í stærð og lögun landsins
og hafa leitt til þess að reglulegar sjómæl-
ingar Dana hófust hér við land.66
Tremarec leitaðist einnig við að kort-
leggja upp á nýtt strandlengju Vestfjarða
og hefur það vakið athygli á síðari tímum
í ljósi þess hversu rík áhersla er þar lögð á
þau atriði landlýsingar sem að gagni
koma í hemaði, svo sem herskipalægi.67
Á leiðangrum sínum virðist Tremarec
ennfremur hafa skroppið í land og kynnt
sér náttúmfar og þá einkum skriðjökla.68
Þess utan lýsir hann landi og þjóð á
nokkuð ítarlegan hátt, bæði í máli og
myndum. I nýlegu riti Sumarliða Isleifs-
sonar bendir höfundur á að meðal teikn-
inga úr leiðangri Tremarecs sé að finna
mynd af „Dame íslandoise" eða íslenskri
konu sem sé glettilega lík teikningu með
Uppdráttnr Kerguelen-Tremareques af Patrcksfirdi. - Þráttfyrir að yfirlýstur tilgangur ferðar lians
liafi verið að verja firönsk skip fyrir ágangi Dana, liefur hans einkum verið minnst sem brautryðjanda
á sviði marktœkra staðarútreikninga licr við land.
1768. Virðast Tremarec og menn hans
hafa lent í aftakaveðri við komuna hing-
að til lands og hrakið inn á Seyðisfjörð
og vom þar þá fyrir 36 skip en segir höf-
undur alls 80 frönsk skip og 200 hollensk
hafa verið hér við land þetta ár.66
Af leiðarlýsingum Tremarecs má helst
ráða að hann hafi mest haldið sig við
Vest- og Austfirði þau ár sem hann dvaldi
hér. Við Vestfirði gerði Trenrarec ýmsar
athyglisverðar mælingar, bæði á dýpi og
eins nokkrar staðarákvarðarnir, athugaði
segulskekkju og fleira til. Virðast mæl-
ingar hans og einnig Verdun de la
Crennes þremur ámm síðar, hafa orðið
til þess að menn uppgötvuðu stórkost-
sama myndefni úr fórum Eggerts Ólafs-
sonar. Varpar Sumarliði meðal annars
fram þeirri tilgátu að þeir Tremarec og
Eggert hafi hist hér.69 Um það er erfitt að
fullyrða en Þorvaldur Thoroddsen hefur
bent á að lýsingar Trenrarecs á landi og
þjóð líkist í mörgu lýsingunt Nielsar
Horrebows.'" Því er auðvitað hugsanlegt
að myndefni sé þaðan komið til Tremar-
ecs en um það er auðvitað erfitt að full-
yrða.
I ferðabók Tremarecs kemur fram að
skipslæknir hans hafi hjálpað mörgum
sængurkonum hér á landi og að hér sé
dánartíðni sængurkvenna mjög há vegna
læknisleysis. Annars telur Tremarec Is-
SAGNIR 9