Sagnir - 01.06.1994, Blaðsíða 59

Sagnir - 01.06.1994, Blaðsíða 59
Minning Jóiis Sigurðssonar Iteiðruð á alþingishátíðinni 18. jiiní 1944 í Rcykjavík. Þátturjóns i sjálfstceðisbaráttunni var mikilvœgur og því ekki að ósckju að nafni hans er haláið á lofti. En œttu landsmenn ekki að huga bctur að tninningu þeirra burðarása atvinnulífsins sem fylgdu I kjölfar Jótts og skutu stoðum undir raunventlegt ,frclsi ogfullveldi “ Islendinga? setja saman hugvekjur og ljóð á önd- verðri nítjándu öld, þótt ástæðulaust sé að lasta það. Birta tók, þegar einkavæð- ing hófst á Islandi á átjándu öld. Einka- væðing er síður en svo ný af nálinni á Is- landi: Sala stólsjarðanna í lok átjándu ald- ar er fýrsta og líklega viðamesta einkavæðing á Islandi. Þá varð til stétt sjálfseignarbænda, og hún myndaði grundvöll efnalegra og andlegra framfara á nítjándu öld. Siðan tóku Danir að koma á meira frelsi á Islandi, oftast þvert á vilja prestanna og stórbændanna, sem niestu réðu á þingi. Konunglegar tilskip- anir um trúfrelsi, viðskiptafrelsi og prent- frelsi og um afnárn vistarbandsins og um afnám banns við öreigagiftingum ásamt mannréttindaákvæðunum í stjórnar- skránni, seni Danakonungur færði okkur árið 1874, mynduðu hinn lagalega grundvöll fyrir breytingu Islands úr forn- eskjulegu bændaveldi í nútímalegt út- gerðar- og viðskiptaskipulag. Island komst á hið danska myntsvæði, þar sem krónan var stöðug, enda á gullfæti; hún var ekki aðeins innleysanleg í gulli í Reykjavík og Kaupmannahöfn, heldur líka Edinborg, Osló og Lundúnum. Þetta frjálsræðisskipulag stóð til 1914. Thor Jensen, Jón Olafsson, Pétur Thorsteins- son, Jón Þorláksson og aðrir athafna- ntenn hófu stórkostlega verðmætasköpun á mælikvarða þeirrar tíðar, fólk tók að streyma í bæina i stað þess að hrökklast til Vesturheims, stórbændastéttin missti kverkatök sín á ríkisvaldinu. Upp úr 1930 varð nokkurt afturhvarf til hins fyrri siðar. Þá náðu menntamenn, sem töluðu í nafni bænda og verkalýðs, tökum á ríkisvaldinu og notuðu það til að hefja á ný innheimtu auðlindaskatts: I kreppunni var svo sorfið að sjávarútveg- inum með rangri gengisskráningu, að hann var að falli kontinn árið 1939, þegar versta tímabilinu lauk og gengið var leið- rétt. Jafnframt komst upp úr 1930 á viða- mikið kerfi úthlutunar- og skömmtunar- valds, sem tókst að vísu að afnema að mestu leyti í tveimur áföngum, 1950 og 1960. Til varð ríkisverndaður einokunar- hringur, Samband íslenskra samvinnufé- laga, sem hvarf eins og dögg fýrir sólu, þegar sérréttindi hans voru afnunrin. Síðustu einn eða tvo áratugi hefur ver- ið nokkurt afturhvarf til hins lagalega grundvallar áranna 1874-1914, þegar frjálshyggja réð ríkjum. Innflutningur er orðinn fijáls, útflutningur hefur orðið frjálsari, flutningur fjármagns á rnilli landa er orðinn frjáls, gjaldeyrisviðskipti eru orðin fijáls, skráning gengis og ákvörðun vaxta lúta að langmestu leyti frjálsu vali fólksins. Jafnframt hafa verstu mistök áranna frá 1930 verið leiðrétt með einkavæðingu; draugur Jónasar Jónssonar frá Hriflu hefur þokað fýrir anda Jóns Þorlákssonar. Nægir að nefna, að Ut- vegsbankinn, ríkisprentsmiðjan Guten- berg, Skipaútgerð ríkisins, bókaútgáfa Menningarsjóðs og Síldarverksmiðjur ríkisins hefur allt verið lagt niður eða selt. Og nú undir forystu Davíðs Odds- sonar hafa Islendingar fengið að reyna lengsta samfellda stöðugleikatímabil sitt frá því að Jón Þorláksson vék úr stjórnar- ráðinu haustið 1927. Enn er þó margt ógert. Ríkið rekur tvo af þremur viðskiptabönkum, svo að talsvert úthlutunarvald er í höndum stjómmálamanna. Rikið rekur ásamt öðmm opinberum aðilurn Landsvirkjun, sem nýtir aðra helstu auðlind landsins. Sveitarfélög starfrækja hitaveitur, sem nýta hina helstu auðlind landsins auk fallvatna og fiskistofna. Veitir reynslan hér og erlendis vísbendingu um það, að slík fýrirtæki séu betur komin i höndum stjórnmálamanna með sérhagsmuni, sem ekki fara saman við almannahagsmuni, en i höndum einkaaðila með sérhags- muni, sent geta farið saman við almanna- hagsmuni og gera það á frjálsum mark- aði, eins og Adam Smith sýndi fram á SAGNIR 57
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.