Sagnir - 01.06.1994, Side 66

Sagnir - 01.06.1994, Side 66
Brynhildur Ingvarsdóttir Var Reykjavík hæli spillingar? Klöpp var cilt tómthúsbýlanna í Reykjavik. Bærinn var rcistur árið 1838 i landi Arnarhóls og stóð hann gegnt Klapparstíg, sem dreg- ur nafn silt af honum. Klapparvör var ein af liclstu vörum Skugga- hvefisins og fyrrum rcru þaðan margir sexæringar ogfieiri „skip“. / Arið Í933 er landsbyggðaifáIkið enn að streyma til Réykjavíkur, enda býr framtíðin í bœnum. Um þetta leyti er rúmur þriðjungur þjóðarinnar farinn að staifa i bcejum,' þvi langt er síðan sveitirnar fylltust affólki og gamla bœndasamfélagið lét undan þrýstingi fólksfjölgunar. Lífshringur undangenginna alda, þar sem börn bœnda ólust upp til vinnumennsku og urðu um síðir sjálf bændur, leyfði ekki nema takmarkaðan földa fólks til sveita. Til þess að stofna bú þuifti Viðhorf þriggja menntamanna 19. aldar til bæjarins jörð, en landrými var takmarkað og þegar þrengjast tók upp úr miðri 19. öld, fölgaði um of vinnufólki, sem ekki komst á bújörð.2 Það var því ekki einungis œvintýraþrá ungsfólks sem rak joað í bæinn, sumir voru nauðbeygðir. Arið 1933 yrkir Tómas Guðmundsson Ijúfega um höfuðstaðinn, liann er Reykjavíkurskáldið, hann er af nýrri kynslóð skálda; kynslóð sem er hætt að hoifa með bændaaugum á bæinn. Það gerðu hins vegar flest skáld og menntamenn 19. aldarinnar. Baldvin Einarsson, Jón Tlwroddsen og Gestur Pálsson skrifuðu allir um Reykjavík og öllum er þeim uppsigað við hana. Bændasamfélagi 19. aldar var meinilla við þéttbýlið enfróðlegt er að sjá á Iwaða forsendum menntamenn aldarinnar gagnrýndu bæinn. Hér eru viðhoif upplýsingarsinna, rómantíkers og raunsæismanns. 64 SAGNIR

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.