Sagnir - 01.06.1996, Síða 7

Sagnir - 01.06.1996, Síða 7
Frægt verk Francisco de Goya: Svefn skynseminnar elur af sér ófreskjur. Upplýsingarmenn lögöu ofuráherslu á aö skynsemin stýröi öllum mannanna gerðum. Ef hugarflugið léki lausum hala, væri hætta á feröum. segir að eitt framfaraeinkenni aldarinnar sé hnignun hjátrúar: Skynsemin tók ... ad reka hjátrú í útlegd, en uppgntva náttúrlegar ors- akir til margs, sem þessi ádur hafdi svo lengi eignad yfirnáttúrlegum og einmidt Djofulsins verkunum ... Þvi er, og það er þér ecki litil Æruminn- íng, um þína tíð ollum ofsóknum fyrir kukl, ollum brennum og lifl- átum saklausra fyrir svo nefndann galdur oldúngis hætt ... Draugar dóu svo út med þeim, ad þegar gjordist hér á þeim ekla.11 Áhugaleysi um upplýst viðhorf? Hugmyndafræði og viðhorf einstakra íslenskra upplýsingarmanna hafa verið rannsökuð talsvert og ýmislegt rætt og ritað um tilraunir þeirra til að breiða boðskapinn út með fræðsluritum fyrir almenning. Minna hefur verið fjallað um áhrif stefnunnar meðal óbreyttra Islend- inga, viðtökur einstakra hugmynda og hversu lengi upplýst viðhorf voru að festast í sessi. Arangur af baráttunni gegn útbreiddri vætta- og draugatrú virðist ekki hafa orðið mikill fyrst I stað — a.m.k. ekki jafn mikill og Magnús Stephensen lét í Eftirmtelum átjándu aliar. Alþýðan var fast- heldin á siði sína og sagnaskemmtun.12 Þess eru jafnvel dæmi frá fyrstu áratugum 19. aldar að prestar og fyrirmenn segi frá eigin reynslu af draugum og þess er vart að vænta að almenningur hafi verið vantrúaðri á yfirnáttúrulegar verur en höfðingjarnir. Lýsing Magnúsar á útrým- ingu drauga og útlegð hjátrúar á 18. öld stenst því ekki, enda deilir hann sjálfur hart á útbreidda draugatrú í mörgum rit- um sem komu út eftir 1800.13 í Utvöldum smásögum sem út komu 1822 segir Magnús um alþýðumenninguna: ... lestur til dægrastyttíngar i Islands lánga vetrrar svartnætti eru helzt fornar, magrar frekju timaníia Sogur, af vígum, mordum, mordbrennum, nídingsverkum og svikrádum, goldr- um, hjátrú og draugum á vorri egin fóstur jordu — því útlendar, alls ómerkar og enn skadvænni Lyga- sogur, nefni eg ecki ...I4 Vera kann að það hafi haft sitt að segja að ólíkt forverum sínum virðist Geir Vídalín, biskup yfir Islandi frá 1801, að öðru jöfnu hafa verið umb- 7 — Sagnir 1996 urðarlyndur og aðgerðalítill í að halda boðskap upplýsingarinnar gegn þjóðtrú að mönnum. Hann leyfir sér jafnvel að vísa sjálfur að gamni sínu til vættatrú- arinnar í bréfi til Islandsvinarins Georgs Mackenzie, þar sem hann bendir honum á heppilega fylgdarmenn: „... Guðmund- ur Jónsson mun greiða yður aðgang að hinum forna fjallbúa, Bárði Snæfellsás, en án hans forsjár verður Snæfellsjökull vart eða ekki sigraður."15
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.