Sagnir - 01.06.1996, Page 9

Sagnir - 01.06.1996, Page 9
..O.BAUfiU.R.I.SWAlAS.AFN.LBISMP?.. Úr kirkjugaröinum í Garpsdal viö Gilsfjörö1898. Myndin er úr safni Daníels Bruun. var hægt að rugla afturgönguna í ríminu ef hún tæki það upp hjá sér að yfirgefa gröfina. I sama tilgangi tiðkaðist ennþá i Grimsey árið 1830 að snúa likkistum í þrjá hringi eftir að komið var með þær út úr kirkjunni.21 Geir biskup Vídalín upplýsir okkur einnig um sögusagnir eða atburði sem byggja á trú á afturgöngur. I bréfi til Stein- gríms Jónssonar segir hann: Jon br[óðir] m[inn] mun hafa skrifad ydur ad húskona á Akranesi Olöf ad nafni, köllud piatla hétz vid mann sem hún átti ordastad vid, og eftir sem lög giöra rád fyrir deydi strax, nú ottudust menn ad vonum ad hun mundi gunga aftr resolverudu þvi til ad skylia hana vid höfudid og giöra þad antipott af þvi sem adr var, ad svo um búnu var kerlinginn urdud, og hef eg ecki heyrt ad bæri á henni sídann. Sid fides sit penes author- em!22 Þótt óvist sé um sannleiksgildi frá- sagnarinnar, og biskupinn efist greinilega sjálfur, ber bréfið þess vitni að sagan hefur gengið manna á milli á þessum tíma og eflaust hafa margir trúað henni. Það er algengt minni i þjóðtrú og sagnahefð Islendinga að líkum sé misþyrmt til að koma i veg fyrir eða draga úr mætti afturgöngu. Sálin var i hugum fólks tengd likama hins látna og ef einhver gekk aftur gerði hann það i búk sinum, hvernig sem ástand hans var er hann hafnaði í gröfinni.23 Þá var trú á töframátt hins talaða orðs mjög útbreidd og ótti við heitingar var að sönnu raunverulegur.24 Endurminningar Gythu Thorlacius (1782-1861), sem bjó á íslandi 1801-15, varpa oft skemmtilegu Ijósi á íslenska lífshætti. Eins má finna reynslusagnir frá þess- um tíma þar sem undarlegir fyrirburðir eru óvéfengjanlega túlkaðir sem reim- leikar. Í minningum Gythu Thorlaciusar segir frá reynslu þeirra hjóna veturinn I8I3-I4 i húsi á Eskifirði sem þau bjuggu i um stundarsakir: Um hús þetta gengu margar undar- legar hviksögur; héldum við hjónin i fyrstu, að þær væru mjög ýktar, en seinna sannfærðumst við um, að þær voru sannar, þótt við gætum ekki skilið þau dularfullu fyrirbrigði, er gerðust. Ösjaldan heyrðum við að næturlagi, að dyr voru opnaðar og þrammað fram og aftur um eldhús- gólfið, loftshleranum skellt, svo að húsið hristist, stiginn fluttur til og margt þvi um likt. En við sáum aldrei neitt.25 Garpsdals Satans historian Ef marka má sagnir fólks af eigin reynslu hafa draugar verið raunverulegir í hugum manna í upphafi nítjándu aldar. Presta- stéttin hefur ekki einu sinni verið laus við þennan átrúnað. Þannig töldu heim- ilismenn séra Sæmundar Þorsteinssonar i Garpsdal við Gilsfjörð að draugur gengi þar ljósum logum haustið 1807. Fyrir- burðirnir urðu tilefni allnokkra bréfa- skipta Geirs biskups og presta í Barða- strandarsýslu. I april 1808 sendi séra Sæmundur bréf til biskups þar sem hann telur upp ýmsan óskunda sem þessi vondi gestur hafði gert. Hlutir höfðu verið færðir úr stað, brotnir eða skemmdir, þil og glugg- ar brotnir og skepnur drepnar. Þá kenndu menn draugsa um að vinnupiltur á heim- ilinu missi vitið um jólaleytið og sat um að gera sér skaða. Piltinum batnaði þó aftur „firer gudlega hialp ad viku lidinne."26 Bréfi Sæmundar er síðan fylgt eftir með bréfi séra Gisla Ólafssonar, aðstoðarprests á Stað á Reykjanesi. Hann segist hafa fundið sig knúinn til að grennslast vandlega fyrir um atburð- ina og hvort ekki gæti mennskur maður verið að verki.27 Með bréfinu sendir hann itarlega skýrslu þar sem fram kemur að heimilisfólkið i Garpsdal vildi sverja eið að því að enginn lifandi maður hafi ver- ið valdur að látunum.28 Geir biskup svaraði báðum prestun- um í desember sama ár. Svarið til Sæm- undar er ekki skráð í bréfabók biskups en i bréfadagbókinni kemur fram að hann ætlast til að Sæmundur láti yfirvöld vita sem fyrst ef ókyrrleikinn byrji aftur. Geir Vídalín (1761-1823), biskupí Skálholtsbiskupsdæmi frá 1797 og yfir Islandi frá 1801. 9-Sagnir 1996

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.