Sagnir - 01.06.1996, Page 14

Sagnir - 01.06.1996, Page 14
E Q s E RT. .Þq.R . B E R N H A RÐ §.$.Q N. sögur af einstökum hermönnum dæmir fólk þá alla eftir því."11 Menn virtust gleyma að allt væru þetta bræður, synir, unnustar og eiginmenn sem kallaðir hefðu verið burt frá heimili sínu og vinum. Hvað væri eðlilegra en að þeir væru veikir af leiðindum í athafnaleysinu og rigningarveðrinu í Reykjavík? Hvað væri eðlilegra en að þeir reyndu að eignast kunningja? Ungu stúlkunni þótti „heimskulegt að dæma allar - sem eina - þær ungu stúlkur sem hafa eignast einkennisbúna kunningja.“ Einstaka sinnum var þó til þess vísað að Reykvík- ingar, og Islendingar almennt, væru enn „gestrisin sveitabörn" hvort sem þeir byggju í borg eða bæ. Auk þess hefðu þeir löngum litið upp til Englendinga vegna áralangra samskipta við þá. Þetta hafi ruglað fólk nokkuð í þvi hvernig taka ætti þessari „heimsókn" hernáms- liðs og umgangast „gestina", eins og forsætisráðherra landsins kallaði Bretana í ávarpi til þjóðarinnar að kvöldi her- námsdagsins 10. maí. Mótsagnir fælust í því að á sama tíma og stjórnvöld bæðu landsmenn um að líta á hernámsliðið sem gesti væru þær stúlkur sem sæjust tala við hermenn á almannafæri stundum „skrifaðar upp“ af lögreglunni eða jafn- vel fluttar á lögreglustöðina.12 Vitaskuld voru samskipti innfæddra og erlendra hermanna ekki árekstralaus og oft kastaðist í kekki milli þeirra. Harkaleg átök voru þó sjaldgæf og hart á þeim tekið þegar upp komst. En stúlkurnar, a.m.k. sumar hverjar, létu sér ekki segjast. Þær héldu áfram að umgangast útlendingana. Stungu af frá hversdagsleikanum í smástund i leit að ævintýrum með ókunnugu fólki. Fæstar voru í „ástandinu" en á stríðsárunum gáfust nýir möguleikar til þess að tolla í tískunni, stunda skemmtistaði, auka auraráðin, læra nýja dansa, hlusta á framandi tónlist og þannig mætti áfram telja. Hermennirnir báru með sér ýmsa nýja menningarstrauma. Og það voru ekki síst dætur Reykjavíkur, og raunar unga fólkið almennt, sem helst höfðu áhuga á nýjum háttum. Á styrjaldarárun- um fór vart hjá því að bilið milli hinna yngri og eldri breikkaði. „ Menningarlaust léttúðarlíf“ sagði landlæknir Sumarið og haustið 1941 náði umræðan um samband innlendra kvenna og hinna útlendu hermanna nýjum hæðum. Þá ritaði landlæknir, Vilmundur Jónsson, dómsmálaráðuneytinu tvö harðorð em- bættisbréf um málið. I hinu fyrra, frá þvi í júli, greindi hann m.a. frá athug- unum lögreglunnar í Reykjavík á því hvernig mál hefðu þróast. Að áliti land- læknis þóttu þær fletta ofan af svo geig- vænlegum staðreyndum að ekki mætti kyrrt liggja. Að vísu kæmi lausungin lítt á óvart og væri það „sök fyrir sig að hér er nú vitað um kvenfólk í tuga tali á allra lægsta þrepi skækjulifnaðar, svo og það að ótrúlegur fjöldi annarra fullorð- inna kvenna í ýmsum stéttum virðist lifa svo menningarlausu léttúðarlífi að furðu gegnir." Hitt þótti honum „viðbjóðsleg- ast, ef niðurstöður lögreglunnar um það eru á rökum reistar að ólifnaður stúlku- barna á aldrinum 12- 16 ára og jafnvel yngri sé svo almennur orð- inn og breiðist svo ört út að ekkert heimili frá hinum aumustu til hinna best settu geti talist öruggt öllu lengur."13 Landlæknir taldi hernámið vafalaust leiða marga lausung i ljós sem áður hefði verið til staðar og vissulega segði ástandið ekkert nema sannleikann um það hve veikt íslenskt kvenfólk væri á svellinu þegar á reyndi. Þá sagði hann að sér væri fullljóst að flestar ráðstafanir til að hnekkja sambandi karla og kvenna sem væru sjálfum sér ráðandi væru unnar fyrir gýg og myndu i hæsta lagi leiða til þess að fremur væru farnar krókaleiðir að því marki sem annars væri stefnt að eftir beinni leiðum. Landlæknir vænti því ekki mikils af þeim aðgerðum sem beint væri að því að bæta lifnað full- orðna fólksins þar sem í Reykjavík virt- ist ekki vera það almenningsálit fyrir hendi sem nokkurs mætti vænta af. Hann taldi þó sjálfsagt að lögreglunni væri gert kleift að nota lagaheimildir „um íhlutun um framferði þeirra kvenna, sem hafa beinlínis skækjulifnað að atvinnu. Þætti mér ráðlegast að lögreglan safnaði saman jteim tugum þess háttar vtendiskvenna, sem henni er kunnugt um, flytti j>cer á vinnu- hœli á afskekktum sta5 og léti þter húa j>ar vi5 holla vinnu, gott atlceti og heilbrigðan aga." Hugmynd landlæknis var sú að þær konur sem í þennan hóp kynnu að bæt- ast yrðu jafnóðum fluttar á slíkt eða slík hæli:14 „Þætti mér vel mega svo fara að þetta hefði ekki óholl áhrif á álit almennings á lausungarlifnaði, um leið og það mætti vekja nokkurn ótta meðal kvenna, því til varnaðar, að þær leggi jafn gálauslega og áður út á hið tæpasta vað Iéttúðugs lífernis." Um stúlkubörn á ósjálfráða aldri sagði landlæknir að gegndi allt öðru máli. Því gætu foreldrar og aðrir for- ráðamenn, barnaverndarnefnd og hlutað- eigandi yfirvöld ekki horft aðgerðarlaus á. Ef lögreglan hefði nokkurn veginn Bandaríkjamenn leystu Breta af hólmi sumarið 1941 eöa um þaö leyti sem landlæknir skrifaöi fyrra embættisbréf sitt.um „ástandsmálin". Ifíst þótti henni ansi margar stúlkur fara „á veiðar“ á kvöldin til að krækja sér í stráka og ekki datt henni í hug að verja málstað þeirra og gjörðir. Sagnir 1996 - 14

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.