Sagnir - 01.06.1996, Síða 15

Sagnir - 01.06.1996, Síða 15
BLQRABOGGLAROG.QLNB.QfiABÖRN Úr blaðinu Midnight Sun sem hermennirnir gáfu út á stríðsárunum. Neöst á myndinni segir: „algengur misskilningur". rétt fyrir sér væri framferði stúlkubarna þannig að Reykjavík mætti heita ein uppeldisstöð fyrir skækjur, stórum lík- legri til áhrifa á framtíðarkonur höfuð- staðarins en allar kirkjur og skólar samanlagðir. „Ef slíkt fær að viðgangast til lengdar,“ ritaði hann, „má fara nærri um, hver áhrif það muni hafa á framtíð þjóðarinnar, ekki síst ef landið verður um ófyrirsjáanlegan tíma hernaðarstöð erlendra stórvelda og aðsetursstaður setuliðsmanna tugþúsundum saman. Sé ég ekki betur en að því stefni að Island verði þá aðallega vændiskvennabúr fyrir þau stórveldi, sem hingað telja sig eiga erindi, og ef til vill fyrst og fremst á þann hátt „útvörður" hinnar svokölluðu menningar."15 Landlækni blöskraði ástand- ið og gerði ýmsar tillögur um aðgerðir, þar á meðal um flutning 12 til 16 ára stúlkna úr bænum. Einnig áttu þær sem eftir yrðu að vera undir nákvæmu eftirliti lögreglu og barnaverndarnefnd- ar. I lok bréfsins tók hann fram að sér- stök ástæða væri til að bregðast skjótt við og leitast við að koma á nýjum sið- um þar sem nýtt herlið, bandarískt, flyttist nú inn i landið. Annars mætti búast við að enn versnaði stórum. I síðara bréfi sínu til dómsmála- ráðuneytisins, í september 1941, ítrek- aði landlæknir hættuna sem gat fylgt þeim ofurfjölda karlmanna sem dvaldist í Reykjavik. „Fram hjá þvi verður ekki komist að fari fjöldi karla á einum stað verulega fram úr tölu kvenna, leiðir það óhjákvæmilega til meiri og minni sið- ferðilegra vandræða," ritaði hann. Og bætti við:16 Verði tala karlmanna til langframa tvöföld eða meira á við tölu kvenna á sama stað, má gera ráð fyrir að voði sé á ferðum, er nálgast fullkomna siðferðilega upplausn, þvi meira sem karlmönnunum fjölgar, og eykur það að sjálfsögðu á vandann, ef fjölgunin verður fyrir aðflutta útlendinga, ekki sist hermenn á hinum óstýrilátasta kynþorstaaldri og meira og minna á valdi þeirrar lausungar og ábyrgðar- leysis í kynferðismálum, sem her- mennska er alkunn fyrir að hafa í för með sér. Enda þótt landlæknir teldi almennings- álitið í bænum gagnslítið virtist það ekki alveg ónýtt. Það gat sveigt fólk til annarrar breytni. „Ég get ... sagt það alveg hreinskilnislega að ég var líka í „ástandinu" ...,“ mælti ung Reykjavíkur- snót árið 1941, og hélt áfram:17 „Stuttu eftir að hernámið fór fram kynntu bæði enskir og íslenskir vinir mínir ... mig fyrir nokkrum breskum liðsforingjum. Ég gat ekki séð neitt rangt í þessu; hugsaði alls ekki um það frá stjórn- málalegu sjónarmiði, og fannst hermenn- irnir ekkert öðruvisi en við, þótt þeir töluðu ensku." Eftir nokkurn tíma fór stúlkunni að skiljast að ekki litu allir á málið frá sama sjónarhorni og hún sá að kynni við þessa menn gætu skaðað mannorðið. Hún þorði því ekki annað en „hætta í „ástandinu", því þótt það sé ef til vill þröngsýni að láta sér ekki á sama standa um almenningsálitið, meðan maður hefur sjálfur hreina samvisku, þá er það ekki auðvelt í smábæ eins og Reykjavik," bætti hún við og hún vissi um margar aðrar stúlkur sem fóru eins að. En stjórnvöld töldu að bregðast þyrfti við málum af mciri festu. Blóraböggull fundinn? í kjölfar áminningar landlæknis í júlí skipaði dómsmálaráðuneytið nefnd til þess að kanna hversu mikil brögð væru að því að konur og ungar stúlkur ættu náið samneyti við hermenn. I nefndinni sátu þrír ungir menntamenn og ekki leið á löngu uns þeir sendu frá sér skýrslu sem hristi rækilega upp i ráðamönnum og almenningi, „ástandsskýrsluna" svo- nefndu. Og nú fóru hjólin að snúast af krafti. Niðurstöður nefndarinnar þóttu ískyggilegar og marg- ur maðurinn þóttist fá þarna staðfestingu á ístöðuleysi kven- þjóðarinnar. Skraf- skjóður bæjarins færð- ust allar í aukana. Skýrslan náði til rúm- lega 450 kvenna á aldrinum 12 til 61 árs, scm komist höfðu á skrá lögregl- unnar vegna „mjög náinna kynna" við setuliðið: 12 ára 2 25 ára 14 38 ára 6 13 ára 14 26 ára II 39 ára 5 14 ára 25 27 ára 10 40 ára 3 15 ára 32 28 ára 9 41 árs 6 16 ára 37 29 ára 9 42 ára 4 17 ára 42 30 ára 16 43 ára I 18 ára 30 31 árs 8 45 ára 3 19 ára 24 32 ára 3 46 ára 2 20 ára 37 33 ára 5 48 ára 2 21 árs 19 34 ára 3 49 ára 2 22 ára 24 35 ára 5 50 ára I 23 ára 22 36 ára 3 53 ára I 24 ára II 37 ára 4 61 árs I Samtals voru þetta 456 konur. Á aldrin- um 12-15 ára voru 73 (16%), á aldrin- um 16-35 ára voru 339 (74%) og á „Sé ég ekki betur en að þvístefni að ísland verði þá aðallega vændiskvennabúr fyrir þau stórveldi, sem hingað telja sig eiga erindi, og ef til viII fyrst og fremst á þann hátt „útvörður“ hinnar svokölluðu menningar. “ 15 — Sagnir 1996
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.