Sagnir - 01.06.1996, Page 18

Sagnir - 01.06.1996, Page 18
.Eggert.Mr.Ber!mardssq.n. UL Bandarískur herlögreglumaður og íslenskur lögreglumaöur stjórna umferð saman. í baksýn má sjá Hótel Heklu við Laekjartorg sem þótti afar vafasamur staður. Hermennirnir kölluðu hann gjarnan „honky-tonk place“. raun ekki á óvart hver niðurstaðan varð. Fáir tóku upp hanskann fyrir kon- urnar og geðshræringin í samfélaginu yfir hátterni þeirra var mögnuð upp með dæmum, þ. á m. um samfarir hermanna við ólögráða stúlkubörn og ungar stúlk- ur. Dæmin voru síðan notuð til þess að sýna lágt siðferðisstig fjölda reykvískra kvenna. Kristinn Kristjánsson sagði:29 „Málið er sett upp eins og um sýki sé að ræða. Hún hefur stungið sér niður, kon- ur eru einstaklega veikar fyrir henni og munu sýkjast, og þeim fækkar sem hafa mótstöðuaflið og þekkja aðferðirnar til að vinna á henni." Efasemdir um það að bréf landlæknis og „ástandsskýrslan" stæðust nákvæma og gagnrýna athugun tóku að heyrast þegar leið á öldina en þær heimildir höfðu til þess tíma sennilega mótað mjög viðhorf og af- stöðu fólks til reykvískra kvenna á stríðsárunum.30 „Stafar þessi mikli áhugi á konum á stríðsárunum ekki af því að verið er að finna blóraböggul?" hefur verið spurt.21 Ottuðust menn kannski mest pólitíska framtíð Islands vegna her- námsins og nýrrar stöðu mála, og má þá ekki frá því sjónarhorni líta á skýrsluna og embættisbréfin í víðara samhengi, sem vitnisburði „um það hvernig for- dómar eru notaðir til að beina athyglinni frá því sem er að gerast. Með því að tala um sviksamlega framkomu kvenna er fundið viðfangsefni sem auðveldara er að fást við en breska herinn, jafnframt því sem uppbót er fengin fyrir slæma samvisku þjóðarinnar. Blóraböggullinn er fundinn.“22 Þannig hafi reykviskar konur orðið leiksoppar aðstæðnanna. Þær urðu síðan að gjalda fyrir það næstu áratugi með vafasömu orðspori frá styrj- aldarárunum. Reyndar gátu áhrifin verið langvinn og orkað á afkomendur kvenn- anna. Ungur sagnfræðingur, Þorgerður K. Þorvaldsdóttir, ritaði grein árið 1996 þar sem var kafli um „ástandsmálin". Ein vinkona hennar sagði henni frá því á meðan kaflinn var í smíðum „að hún væri barnabarn bandarísks hermanns og ástandskonu. Málið þótti á sínum tíma ættarhneisa og enn í dag hefur vinkona mín ekki fullkomlega sætt sig við það að amma hennar skyldi hafa orðið ástfangin af hermanni, jafnvel þótt sú ást hafi endað með hjónabandi."22 Þegar lcið á stríðsárin virtist þó draga talsvert úr „ástandinu" almennt. Yfirvöld lögðu þar sitt af mörkum en einnig virtist sem konur hefðu vanist þessum ofurfjölda karlmanna, vanist á að taka honum með meira jafnvægi en í upphafi þegar herinn var nýkominn og þótti ákaflega spennandi. Auk þess fór hermönnunum í Reykjavík verulega fækkandi eftir því sem nálgaðist styrj- aldarlok. Einnig er hugsanlegt að banda- rísku hernaðaryfirvöldin hafi haft meiri stjórn á sínum mönnum en þau bresku í upphafi stríðsins. Og kannski hafa ís- lenskir karlmenn lært að þola samskipti kvenna og erlendra karlmanna betur en áður. Jafnvel séð að í raun voru þau ekki ýkja alvarleg i fjölmörgum tilvikum, aðeins sakleysislegt daður og ævintýra- þrá kvenna sem heilluðust af hinum nýju aðstæðum sem sköpuðust tímabundið í höfuðstaðnum vegna fjölda karlmann- anna. Þær fengu þá óvænt tækifæri til þess að baða sig í ævintýraljóma og njóta óskiptrar aðdáunar og athygli föngulegra pilta. Kannski höfðu íslenskir karlmenn einnig íhugað þá stöðu sem hefði getað komið upp ef herliðið hefði nánast einvörðungu verið skipað ungum og glæsilegum stúlkum, hvernig þeir hefðu þá brugðist við. Og þeir hafa vafalaust einnig séð að samband kvenna og hermanna þurfti ekki að hafa á sér siðleysisblæ. Ötal sinnum var þar á ferð- inni einlæg ást sem endaði með ham- ingjusömu hjónabandi.24 Þá má ætla að innlendir karlmenn hafi lært að umgang- ast konur af meiri virðingu en áður tíðk- aðist, lært nýja umgengnishætti af „herra- mönnunum í herliðinu", séð að ekki væri vænlegt til árangurs að beita durgs- hætti og truntuskap í samskiptum við konur eins og gjarnan hafði loðað við. Og samfélagið í heild virtist róast þegar leið á stríðsárin. Dagblöð og tímarit hættu að gera siðferðisástandinu og sam- búðinni við setuliðið jafn hátt undir höfði og á fyrstu árum hernámsins. Þau gátu ekki endalaust fjallað um málið. Nýjar fréttir tóku við og kannski hafði jafnvel skapast nógu sterkt almenningsálit, m.a. fyrir tilstuðlan fjölmiðlanna, til þess sveigja stúlkur til hlýðni við kröfur samfélagsins um „rétta hegðun" eftir að þær sáu við hvers konar fordóma var að etja og hve viðbrögðin höfðu verið æsinga- kennd. Hælisvist og umkomulaus olnbogabörn Þegar „ástandsskýrslan" var gerð heyr- umkunn hrökk þjóðin í kút. Hafist var handa um aðgerðir til úrbóta og að Kannski höfðu íslenskir karlmenn einnig íhugað þá stöðu sem hefði getað komið upp ef herliðið hefði nánast einvörðungu irerið skipað ungum og glæsilegum stúlkum, hvernig þeir hefðu þá brugðist við. Sagnir 1996 - 18

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.