Sagnir - 01.06.1996, Page 26

Sagnir - 01.06.1996, Page 26
. K.RJ.5IR UN. H ALLA. H. E ue ADÓn! B. þeir grípa til svipaðra lýsinga og um norðlenskar konur. „Vestfírðingar hafa skemmtanir og dægradvöl lítt um hönd. Þeir unna kyrrð og einveru og eru því oft mjög hugsi og hneigðir til þung- lyndis.”11 Ekki er ólíklegt að þeir erlendu ferðamenn sem á eftir komu hafi verið undir einhverjum áhrifum af þessari gagnrýni því ljóst er að menn kynntu sér eldri Islandslýsingar áður en þeir komu hingað. Til dæmis vitnar William Hook- er í ferðabók Eggerts og Bjarna12 og Sir Steuart Mackenzie í Hooker13 svo eitt- hvað sé nefnt. Hæpið er því að taka orð ferðamannanna of bókstaflega því auk þess að vera litaðir af skrifum hvers annars er vafasamt hversu vel þeir hafa áttað sig á kvenfólkinu þar sem tungu- málaörðugleikar hömluðu yfirleitt eðli- legum samskiptum.14 Ferðabækur nýtast vissulega vel að því er varðar útlit kvenna, fatnað, vinnu, híbýli og fleira en til að nálgast upplýsingar um líðan þeirra og tilfinningar þarf að leita ann- arra miða og þá koma bréfin að góðum notum. Hér verður bréfasafn Sigríðar Páls- dóttur (I809-I87I) skoðað og athugað hvernig bréf hennar samræmast hug- myndum manna og viðhorfum til kvenna.15 Hún skrifaði um 240 bréf til Páls bróður síns en aðeins er fjallað um hluta þeirra hér, þ.e.a.s. bréf frá árunum I8I8-I842. Skrif Sigríðar veita einstak- ar upplýsingar að því leyti að hún segir nær eingöngu frá sjálfri sér, t.d. frá tilfinningum sínum, vinnu og sam- skiptum við fólk, en lætur aðra um að segja almennar fréttir. „Nu er ecki annad briefs efnid mitt en ad seigia frá sialfri mér”16 eða „Eg ætla ad eftiláta ödrum ad seigia þér frettirnar.”17 Páll bróðir hennar er hennar eini trúnaðarvinur og i bréfunum segir hún honum frá sínum hjartans málum, sorg og gleði. Foreldrar Sigríðar voru Páll Guð- mundsson sýslumaður í Norður-Múla- sýslu og Malen Orum, systurdóttir Geirs Vídalíns biskups. Má þannig segja að Sigríður fæðist inn í yfirstéttina. Faðir hennar lést árið 1815 er hún var aðeins sex ára, næstelst fimm systkina. I kjölfarið var Páli elsta bróður hennar komið í fóstur og heimanám til Stein- gríms Jónssonar prófasts í Odda.18 Þau bréf sem varðveist hafa eftir Sigríði eru öll til Páls en hann starfaði alla sína ævi sem skrifari hjá Bjarna Thorsteinsson amtmanni á Vesturlandi. Til hans leitar hún ráða og hann styður hana dyggilega og „... so brodurlega minnir mig á skildur mínar.”19 Segja má að ævi Sigríðar hafi verið talsvert viðburðarík. Hún bjó hjá móður sinni og ömmu að Hallfreðarstöðum í Norður-Múlasýslu. Eftir lát þeirra beggja flutti hún til Reykjavíkur og gerðist þjónustúlka hjá Steingrimi Jóns- syni biskupi, þá aðeins um tvítugt. Þessu hafði Páll komið í kring enda var hann þar vel kunnugur. A þeim tíma þótti upphefð að gerast þjónustustúlka á slíku fyrirmannaheimili og gátu aðeins stúlkur af góðum ættum komist þar að. Sigríður giftist Þorsteini Helgasyni og bjuggu þau í Reykholti þar sem hann varð prest- ur. Eftir stuttan hjúskap dó Þorsteinn sviplega og stóð Sigríður þá uppi „einmana og rádalaus með 3 börn elsta 5 ára enn ingst 15 vikna.”20 Sigríður bjó í nokkur ár að Síðumúla í Mýrasýslu og að sex ekkjuárum liðnum giftist hún séra Sigurði Thorarensen að Hraungerði í Árnessýslu. Hún lifði einnig síðari mann sinn og dvaldi síðustu æviárin hjá tengdasyni sínum, séra Skúla Gíslasyni, að Breiðabólstað í Rangárvallasýslu. Liott er klor mitt Fyrsta bréfið er frá árinu 1818 þegar Sigríður var aðeins 9 ára að aldri og hlýtur það að teljast einstætt að komast í bréf sem barn hefur skrifað frá þessum tíma. Af skriftinni að dæma er það móðir hennar sem ritaði það fyrir hana en þar segir: „... eg er ennþá so nær ekkert farin ad géta párad, og allrasídst Segja má að ævi Sigríðarhati verið talsvert viðburðarík. svo, ad eg blygdist ekki vid ad láta nokkurn mann siá þad”.21 Framan af eru bréfin uppfull af afsökunum vegna þess hversu lítið henni fór fram að skrifa og í hverju bréfi má lesa setningar líkt og „Liott er klor mitt”22 og fleira í þeim dúr. Oöryggið kemur einnig fram í þeirri lotningu sem Sigríður bar til bróður síns þrátt fyrir að hann væri einungis tveimur árum eldri en hún. „Já! eg kann frá þad í sannleika ad segia, besti bródir! ad ekkert af iardneskum hlutum géta framar gladt mig, enn ad heyra Vellídan þína og Framfarir til Líkams og Sálar.”23 Fram kemur að lítið er um ferðalög og virðist fólk vera hálf einangrað við sinn bæ eða a.m.k. kvenfólkið. Greina má vissan biturleika hjá Sigríði vegna Sagnir 1996 - 26 þessarar innilokunar. „Ei get eg neitad ad mér liggi vid ad öfunda Siggeir [bróður] sem bædi fær ad ferdast um há sumartíman og þad til þín”.24 Víðar kemur fram i bréfunum að hún fékk ekkert að ferðast yfir sumartímann nema i mesta lagi á einn bæ. Sigríður skrifaði aðallega um það sem hún fékkst við innan veggja heimilisins, þ.e.a.s. lærdóm og vinnu, á meðan hún bjó hjá móður sinni og ömmu. Ástæðan var sú að þær fullorðnu sögðu fréttirnar en „þad á alltíd ad vera hlutfall mitt ad skrifa um giptingarna þvi alt annad er tekid fra mér”.25 I Skólaræðum Magnúsar Helgasonar (f. 1857) kemur fram að vetrarvinna stúlkna fólst aðallega i að prjóna, sem þær lærðu yfirleitt á fimmta ári eða fyrr, en síðar lærðu þær að spinna, tvinna og tæja ull.25 Þetta kemur heim og saman við störf Sigríðar og lagði hún mikinn metnað i að standa sig vel. Hún ýmist spann, prjónaði, saumaði eða tætti ull og þótti mikið til þess koma að fá hrós frá móður sinni og ömmu: „... spann og á Rock efsta vikuna firir hatidina 10 merkum af hespubandi feck eg firir þad mikid hros því mier voru ei settar nema 3”.27 Ákefðin var jafnvel það mikil að stundum kvartaði hún yfir að fá ekki að spinna á rokk vegna plássleysis. I fyrsta bréfinu kemur fram að hún prjónaði vettlinga á bróður sinn og sendi honum reglulega ásamt sokkaböndum. Einnig prjónaði hún og saumaði talsvert á sig og systur sina. Sigríði leiddust útiverkin eins og greina má i eftirfarandi orðum: „til allrar lukku slapp eg firir ad sitja lömbin”.28 Að öðru leyti minntist hún ekkert á þau og bendir það til þess að annað hvort hafi henni ekki þótt þau frásagnarverð eða hún hafi sloppið að mestu við þau. Hjá Magnúsi kemur fram að störf barna voru af ýmsu tagi. Á vorin þurfti að sitja yfir ám, verja tún fyrir skepnum, reka kýr og smala sauðfé um sauðburð. Um 7-8 ára aldur voru börn fyrst fær um að raka en fram að því fengu þau einungis að hafa hrífu sér til gamans. Upplagt var að nota börn í sendiferðir t.d. til að færa sláttufólki mat og þess háttar. Magnús segir að vinsælast hafi verið að komast á hestbak og hafi börn verið orðin nokkuð lagin við það þegar um 6-7 ára aldur.29 Þetta á einnig við um Sigriði en hún eignaðist hest níu ára gömul sem henni þótti mikið til koma. Mikils lærdómsáhuga gætir hjá

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.